2.000 Palestínumenn voru hraktir af heimilum sínum í Hebron á Vesturbakkanum í gær. Ísraelski varnarmálaráðherrann Israel Katz segir að fólkið hafi verið flutt burt og sérstakar herdeildir hafi tekið yfir svæðið. Hann greindi frá þessu í Kan, ísraelskum fjölmiðli.
Herinn hóf aðgerðir á Vesturbakkanum aðfaranótt laugardags eftir að tveir ísraelskir hermenn voru drepnir þar á föstudag.
Katz segir að fólk sem var flutt á brott fái ekki að snúa aftur heim á leið fyrir en ísraelski herinn hefur lokið afskiptum af Hamas í Hebron.