Meta, fyrirtækið sem rekur Facebook og Instagram auk annarra samfélagsmiðla, tilkynnti á föstudag að fyrirhuguðum breytingum á notendaskilmálum fyrirtækjareikninga verði seinkað til 20. nóvember.
Bandaríski sérmiðillinn NiemanLab greinir frá.
Með nýjum notendaskilmálum Meta áskilur fyrirtækið sér rétt til þess að safna og vista efni af vefjum sem tengdir eru fyrirtækjareikningum. Eins og þeir eru orðaðir getur Meta fært rök fyrir því að fyrirtækið geti notað efni af vefsíðum fyrirtækja, þar með talið fjölmiðla, til þess að þjálfa gervigreindartól.
Notendum eru ekki gefnar neinar leiðir til þess að mótmæla eða hafna skilmálunum heldur þurfa þeir einfaldlega að hætta á miðlunum.
Þessar breytingar áttu að taka gildi 30. október en voru harðlega gagnrýndar af fjölmiðlum, stjórnmálafólki og blaðamannasamtökum beggja megin Atlantshafsins.
NiemanLab segir að 16. október hafi Meta fjarlægt orðið þjálfa úr skilmálum sínum. Þess í stað eigi söfnun upplýsinga að miðast við auglýsingar og vörur fyrirtækja. Ekki hafa aðrar breytingar verið gerðar á skilmálunum.
NiemanLab hefur eftir talsmanni Meta að ástæður þess að fyrirtækið ákvað að seinka breytingunum til 20. nóvember séu svo fyrirtækið geti kynnt þær betur fyrir notendum og hvað felst í þeim.
Talið er að Meta reyni að spara sér milljónir bandaríkjadala í höfundarréttargreiðslur með breytingu á skilmálunum.