Þyngdarstjórnunarlyf geta aukið líkur á að neglur losni frá naglabeði samkvæmt nýrri rannsókn. Nær 40% þátttakenda sem notuðu GLP-1 þyngdarstjórnunarlyf fundu fyrir því að neglur þeirra losnuðu frá naglabeði samanborið við 9% fólks sem tók ekki slík lyf.
Notkun lyfja líkt og Ozempic og Wegovy, sem eru ætluð til meðferðar við sykursýki og til þyngdartaps, hefur stóraukist síðustu ár.
Niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar á ráðstefnu EAVD (European Academy of Dermatology and Venereology) um húð- og kynsjúkdómafræði í Sviss. Þátttakendur voru frá Frakklandi, Bandaríkjunum, Brasilíu og Mexíkó.
Þær sýndu að neglur losnuðu frá naglabeði hjá 39% af 575 manns sem notuðu GLP-1 þyngdarstjórnunarlyf. Sá hópur var borinn saman við 1.329 sem tóku ekki slík lyf.
66% fólks sem notaði lyfin greindu frá einkennum sem höfðu áhrif á neglur, samanborið við 53% þeirra sem tóku lyfin ekki. Þegar litið var til litabreytinga í nöglum var mikill munur milli hópanna. 46% þeirra sem notuðu þyngdarstjórnunarlyfin greindu frá slíkum áhrifum á móti aðeins 17% þeirra sem tóku ekki slík lyf.
Charles Taïeb, einn þeirra sem stóðu að rannsókninni, segir niðurstöðurnar gefa til kynna skýr tengsl en sanni hins vegar ekki með afgerandi hætti að lyfin valdi breytingum á nöglum.
Áhrif á hárvöxt og hársvörð voru einnig könnuð og greindi helmingur þeirra sem notuðu þyngdarstjórnunarlyf frá óeðlilegu hárlosi á móti 34% fólks sem notaði þau ekki. 42% fólks sem notaði lyfin fannst hár sitt þynnast á móti 19% úr hinum hópnum.
Höfundar rannsóknarinnar segja að niðurstöðunum sé ætlað að vekja fólk til umhugsunar fremur en hræðslu við þyngdarstjórnunarlyf.