Um þetta leyti á árinu 1995 var vinna við innleiðingu á einu neyðarsímanúmeri fyrir allt landið langt á veg komið. Fram að því hringdi fólk í símanúmer lögreglu eða slökkviliðs í sinni heimabyggð og ekki hægt að styðjast við netið til að fletta upp símanúmeri ef það var á ferðalagi fjarri heimabyggð. Þá þurfti að fletta upp í símaskrá eða vera svo forsjár að hafa skráð hjá sér neyðarsímanúmer til öryggis áður en lagt var af stað í ferðalagið, enda númerin á annað hundrað.
Í þættinum Dagsljósi var fjallað um innleiðinguna í nóvember 1995, þegar 39 dagar voru í að nýja númerið yrði tekið í gagnið. Landssamband lögreglumanna hafði lýst áhyggjum af því að nýja númerið myndi draga úr öryggi. Í Dagsljósi var rætt við Guðmund Vigni Óskarsson, þáverandi formann Landssambands slökkviliðsmanna, sem tók undir þau sjónarmið. Lögregla og slökkvilið ættu að vera inni í stöðinni þótt aðrir komi að henni.
Eiríkur Þorbjörnsson, þáverandi framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, sagði að ekki myndi draga úr öryggi vegna þess hve fullkomið kerfið væri og gefi möguleika á að staðsetja útkallið. Hann var ekki í nokkrum vafa um að tímaramminn næðist. „Það gæti þó gerst að við verðum ekki komið í fullt gagnið um áramót en fljótlega eftir mjög fljótlega upp úr áramótum verður þetta komið alveg í gagnið.
Ný símaskrá kom ekki út fyrr en nokkuð var liðið á árið 1996. Eiríkur sagði kynningarátak fara í gang með upplýsingabæklingum og heimsóknum í skóla, vinnustaði og fleiri staði.
Í dag þekkir hvert mannsbarn í landinu númer Neyðarlínunnar en því var ekki að skipta þegar vegfarendur voru spurðir í Dagsljósi hvort þeir vissu hvert númerið væri.
Hvað langar þig til að rifja upp úr safni RÚV? Sendu okkur línu á spola@ruv.is