Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir

Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir

Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir

Því það eru ótrúlegustu atriði sem eru að hafa áhrif á okkur! 

Og sumir spila auðvitað á þetta.

Dýra steikin á matseðlinum er til dæmis ekkert endilega þar vegna þess að hún eigi að seljast. Og þótt við séum almennt í hollustu og heilsu gætum við samt valið súkkulaði frekar en ávaxtabita í ákveðnum aðstæðum.

Í dag fáum við tækifæri til að máta okkur við alls kyns skemmtileg dæmi. Mörg þeirra eitthvað sem í raun tengjast einfaldlega okkar daglega lífi eða umhverfi.

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, hefur rannsakað tengsl heilsu og afdrifa á vinnumarkaði, hvaða áhrif efnahagssveiflur hafa á heilsu og heilsuhegðun og svo mætti lengi telja. Nýlega ýtti hún líka úr vör rannsókn sem kallast VAL og við munum segja betur frá: Eflaust munu margir lesendur hafa gaman af því að taka þátt í því verkefni.

„Líf okkar er í raun röð ákvarðana,“ segir Tinna.

Svo rétt: Því frá því að við vöknum og þar til við förum að sofa erum við að taka ákvarðanir.

Á ég að snúsa? 

Í hvaða fötum ætla ég? 

Hvað ætla ég að borða? 

Og svo framvegis…



Dæmi #1: Verðið á veitingastaðnum

Tinna segir fáa kunna betur að spila á okkur en fólk í markaðssetningu.

„Við þekkjum þetta flest,“ nefnir hún og tekur dæmi:

Þú ert að skoða matseðil á veitingastað og tekur þá eftir því að einn rétturinn á seðlinum er langdýrastur.

„Það er ekkert endilega búist við því að margir panti hann,“ segir Tinna og bætir við:

„En hann er settur þarna til að breyta verðskynjun okkar á öllum hinum réttunum.“

Því jú, hvað gerist?

Við byrjum á því að horfa á einhvern rétt sem kostar um þrjú þúsund krónur. Sjáum síðan dýra réttinn og þá allt í einu virðist rétturinn sem kostar 4.500 kr. ekkert svo dýr, þannig að við pöntum hann.

Tinna segir þetta trix þekkt um allan heim. Oft séu til dæmis auglýst áskriftarverð.

Þar er ein leið sem er rosa dýr og nánast enginn er með hana. 

En hún lætur miðjutilboð áskriftarinnar líta svo vel út þannig að þú velur þá leið frekar en ódýrasta pakkann.“

Nýlega var rannsókninni VAL ýtt úr vör sem Tinna hvetur sem flesta til að taka þátt - búsetta á höfuðborgarsvæðinu - enda nokkuð skemmtileg og svarendur geta fengið endurgjöf síðar þar sem fram kemur hvernig við erum að hegða okkur eða taka ákvarðanir í samanburði við aðra. Hlekkur á rannsókn er neðst í grein. Vísir/Anton Brink

Dæmi #2: Fyrsti stafurinn ræður

Það hefur löngum verið þekkt að sjá verð sem eru til dæmis 1.999 kr. en ekki 2.000 kr. eða 8.990 frekar en 9.000 kr. og svo framvegis.

Skýringin á þessu tengist því hvernig við lesum.

„Af því að við lesum frá vinstri til hægri hefur það miklu meiri áhrif ef fyrsti tölustafurinn breytist heldur en ef jafnstór breyting verður aftar í tölunni,“ útskýrir Tinna.

Sumsé: Það er fyrsti stafurinn sem ræður.

Svo ríkjandi sé þessi fyrsti stafur að í raun geti hann svolítið skekkt verðvitundina okkar.

Sem dæmi nefnir Tinna leik sem rannsóknarhópur Tinnu bauð upp á á Vísindavöku Rannís á dögunum.

Leikurinn gekk þannig fyrir sig að á skjánum birtust tvær upphæðir: Fólk átti að smella á lægri upphæðina – eins hratt og það gat.

„Þegar fólk sá 1.995 og 2.080 var það enga stund að smella, þótt munurinn væri lítill. En þegar tölurnar voru 7.329 og 7.645 hægði á öllum,“ segir Tinna og bætir við:

„Þá þarf fólk virkilega að hugsa, jafnvel þótt bilið á milli talnanna sé stærra.“

Dæmi #3: Stóru ákvarðanirnar okkar

Tinna segir ýmsa þætti hafa áhrif á okkur: veður, dagur vikunnar, myrkrið og svo framvegis. Allt þetta hafi verið rannsakað í þaula.

Það sem fólk oft áttar sig ekki á er hversu mikið er hægt að hafa áhrif á stóru ákvarðanirnar okkar.

Jafnvel þær sem við teljum okkur vera að taka að vel ígrunduðu máli, eftir góða yfirlegu og við vel upplýst.

„Flestir upplifa að þeir séu að afla gagna og taka upplýsta ákvörðun. En í tilraunum hefur verið sýnt að með því að vekja ólíkar tilfinningar hjá fólki, til dæmis með því efni sem það er látið sjá áður en það svarar spurningum, er hægt að gera það ýmist hægrisinnaðra eða vinstrisinnaðra.“

Sumsé: Það er hægt að hafa áhrif á stórar ákvarðanir hjá okkur – með því að spila svolítið inn á tilfinningarnar okkar og upplifun.

Tinna segir okkur oft halda að við séum að taka rökréttar ákvarðanir. Annað kemur í ljós þegar málin eru skoðuð. Frá því að við vöknum og þar til við förum að sofa, erum við samt að taka ákvarðanir. Enda segir Tinna lífið í raun röð ákvarðana.Vísir/Anton Brink

Dæmi #4: Þreyttur heili velur súkkulaðið

Tinna nefnir tilraun. Fólk er látið fara ákveðna vegalengd gangandi eða hlaupandi og þegar það kemur til baka má það velja á milli ávaxtabita og súkkulaðimola.

Áður en fólk hleypur fær það tölu sem það þarf að muna á meðan. Sumir fá stutta og auðvelda tölu, aðrir langa og flókna.

„Því lengri og flóknari tölu sem fólk þarf að muna, því líklegra er það til að velja súkkulaðimolann,“ segir Tinna og bætir við:

„Þetta skýrist af því sem kallað er vitsmunaleg þreyta.“

Sem þýðir að heilinn okkar verður þreyttari á því álagi að þurfa að muna langa og flókna tölu og þar með aukast líkurnar á að við veljum súkkulaði.

Dæmi #5: Ókunnugi maðurinn

Ókunnugur maður stoppar þig á götu og spyr til vegar. Þú byrjar að útskýra leiðina. Þá ganga tveir menn á milli ykkar með hurð, svo þú sérð viðmælandann ekki í um sekúndu. Síðan heldur samtalið áfram.

En bíddu. Nú stendur annar maður fyrir framan þig.

Myndirðu taka eftir því?

„Þetta var prófað í tilraun þar sem skipt var um þann sem spurði til vegar á meðan hurðin skyggði á hann. Mennirnir voru ekki eins klæddir og höfðu ólíkar raddir. Samt sögðust aðeins sjö af þeim fimmtán sem tóku þátt hafa tekið eftir skiptunum," segir Tinna og útskýrir:

Þetta er dæmi um svokallaða breytingablindu. Við tökum ekki sjálfkrafa eftir öllum breytingum á því sem við horfum á. Jafnvel þótt breytingin sé sú að það er komin önnur manneskja inn í samtalið.

En hvað með hjarðhegðun?

Samfélagsmiðlar geta haft mikil áhrif á okkur og nú er gervigreindin mögulega að bætast við sem áhrifavaldur.

En hvernig skýrist það sem oft er talað um sem hjarðhegðun: eitthvað slær í gegn og þá þurfa allir að eiga svoleiðis eða allir að gera eins?

Tinna segir lítið samfélag oft kalla á að upplýsingar ferðist hraðar á milli fólks í samanburði við stærri samfélög.

„Taktu tvo handahófskennda einstaklinga á Ítalíu sem þekkjast ekki. Hvað er líklegt að þeir eigi marga sameiginlega vini á Facebook? Ekkert rosalega marga, ef einhverja“ segir Tinna en bætir við:

Á Íslandi finnur maður varla þann Íslending á samfélagsmiðlum sem er ekki með einhverja sameiginlega vini. Það er bara ein manneskja á milli. 

Og í slíku samfélagi breyðast hugmydnir hraðar út.“

Skemmtilega rannsóknin: VAL

Nýlega var rannsóknarverkefninu VAL ýtt úr vör, en það snýst um hvernig skynjun okkar á umhverfinu og hugsun okkar hefur áhrif á ákvarðanir.

Markmiðið sé að fá sem flesta á aldrinum 18–66 sem búa eða dvelja töluvert á höfuðborgarsvæðinu til að taka þátt. Rannsóknin er viðamikil og eflaust mun taka 1–2 ár að vinna úr henni.

En hún sé skemmtileg.

Fólk geti til dæmis fengið endurgjöf eftir að henni lýkur: Hvernig hegðun þeirra er í samanburði við aðra.

Þá geti handahófskenndir hlutir gerst: Sumir fá greidda peninga og sumum býðst að kaupa tímabilskort á afslætti: strætókort, sund- eða menningarkort Reykjavíkur eða líkamsræktarkort hjá Kötlu Fitness. Verðið er ekki það sama hjá öllum.

Taktu þátt með því að smella HÉR.

„Í vísindum skiptir slembun svo miklu máli. Þegar rannsókn er gerð á músum fær ein lyfið og önnur ekki. Hjá okkur kemur til dæmis lukkuhjól þegar einhver ætlar að kaupa áskriftarkort, þannig að ekki allir fá sama verð,“ segir Tinna og bætir við:

Ég held að fólki eigi eftir að finnast þetta forvitnilegt og vonandi líka gaman að taka þátt.“

#dýra #ekki #matseðlinum #steikin #þarna


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262952213d/dyra-steikin-a-mat-sedlinum-er-ekki-tharna-til-ad-seljast

📰 Aðrar fréttir

Pawel Bartoszek: Kerfið í dag alls ekki einfaldara og betra en ef við værum í ESB
📅 26.10.2026 👁️ 0
Pawel Bartoszek: Kerfið í dag alls ekki einfaldara og betra en ef við værum í ESB
Í EES innleiðum við reglur sem samþykktar eru og settar úti í Evrópu án íslenskrar aðkomu en værum við í ESB tækju íslenskir þingmenn þátt í að setja ...
„Líklega er Hannes Hólmsteinn eini stuðningsmaður ættarinnar á Íslandi, eftir að Davíð Oddsson féll frá“
📅 26.10.2026 👁️ 0
„Líklega er Hannes Hólmsteinn eini stuðningsmaður ættarinnar á Íslandi, eftir að Davíð Oddsson féll frá“
Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður, fagnar óvæntum sigri vinstrimannsins Lula í forsetakosningunum í Brasilíu í gær. Hann segir þó í raun undarlegt...
Leita á morgun að líkamsleifum Lúðvíks
📅 26.10.2026 👁️ 1
Leita á morgun að líkamsleifum Lúðvíks
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík...
Vinkona Claudiu lést eftir ranga greiningu – „Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvort það að vera erlend hafi átt þátt í því“
📅 26.10.2026 👁️ 1
Vinkona Claudiu lést eftir ranga greiningu – „Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvort það að vera erlend hafi átt þátt í því“
Clauda Wilson Molloy, lögmaður, greinir frá máli vinkonu sinnar sem lést úr krabbameini eftir að hafa verið ranglega greind í mörg skipti á Íslandi. H...
Skikkaður í sótt­kví og fær á­heyrn Hæsta­réttar - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Skikkaður í sótt­kví og fær á­heyrn Hæsta­réttar - Vísir
Í ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfisbeiðni mannsins segir að málið varði miskabótakröfu mannsins vegna stjórnvaldsákvörðunar sóttvarnalæknis frá ...
Kanna möguleika á að geyma koldíoxíð á Grundartanga
📅 26.10.2026 👁️ 1
Kanna möguleika á að geyma koldíoxíð á Grundartanga
Rannsóknir standa yfir á því hvort að jarðlög á Grundartanga henti til að binda þar koldíoxíð.Boruð var hola sem nær niður á 1.504 metra dýpi. Hún er ...
„Við getum ekki öll búið í Reykja­vík“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
„Við getum ekki öll búið í Reykja­vík“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Í stað þess að fargjald sé...
Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagn­rýni Jóns Gnarr - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagn­rýni Jóns Gnarr - Vísir
Þá greinum við frá því að fjármálaráðherra segist sjálfur ekki hafa hafnað fundi með Herði Arnarsyni, fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar. Hörður segi...
Tóku í gegn fjögur hundruð fer­metra ein­býli í Hafnar­firði - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Tóku í gegn fjögur hundruð fer­metra ein­býli í Hafnar­firði - Vísir
Hún og eiginmaðurinn hafa núna tekið það rækilega í gegn, innan sem utan. Eins og fram kom í þættinum elskar Lucinda þunga hluti, gamla muni og að ger...
Leita Lúðvíks á morgun
📅 26.10.2026 👁️ 1
Leita Lúðvíks á morgun
Hópur manna á vegum lögreglustjórans á Suðurnesjum vinnur að því í dag að undirbúa leit að líki Lúðvíks Péturssonar sem féll í gryfju í Grindavík í ja...
Hefja leit að Lúð­vík í fyrra­málið - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Hefja leit að Lúð­vík í fyrra­málið - Vísir
Í fréttatilkynningu þess efnis frá lögreglunni segir að viðbragðsaðilar og og sérfræðingar verði við vinnu í dag til að huga að öryggi og setja upp vi...
„Rými fyrir betri útskýringar gagnvart kennurum“
📅 26.10.2026 👁️ 1
„Rými fyrir betri útskýringar gagnvart kennurum“
Nemendur í 10. bekk grunnskóla fá lokaeinkunn í tölum í stað bókstafa í vor, verði áætlanir Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, að veruleika. Þ...
Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp - Vísir
Dægurmálamiðillinn US Weekly greindi fyrst frá sambandi Brady og Swanepoel og hafa fleiri fjölmiðlar síðan fjallað um málið. „Þau hafa verið að slá sé...
Emin hafði þetta að segja strax eftir bardagann í viðtali við Nútímann
📅 26.10.2026 👁️ 3
Emin hafði þetta að segja strax eftir bardagann í viðtali við Nútímann
„Ég stoppa ekki,“ sagði hnefaleikakappinn Emin Kadri Eminsson þegar Nútíminn ræddi við hann strax eftir sigur hans á Lettanum Dinars Skripkins á Spáni...
Spænsk kona lýsir því hversu mikið hún græddi á að vinna á Íslandi – Aðeins 4.400 krónur fóru í afþreyingu
📅 26.10.2026 👁️ 2
Spænsk kona lýsir því hversu mikið hún græddi á að vinna á Íslandi – Aðeins 4.400 krónur fóru í afþreyingu
Ung spænsk kona sem kom til Íslands segist hafa náð að vinna sér inn talsverða summu fyrir 200 klukkutíma vinnu. Hún er ein af fjölmörgum útlendingum ...
Kæra lokun dekkjaverkstæðis í Vesturbænum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Kæra lokun dekkjaverkstæðis í Vesturbænum
Eigendur fasteignar í vesturbæ Reykjavíkur og eigandi dekkjaverkstæðis sem rekið hefur verið í umræddri fasteign hafa kært ákvörðun byggingarfulltrúa ...
Íhugar að fara í mál við Sigfús
📅 26.10.2026 👁️ 1
Íhugar að fara í mál við Sigfús
Íhugar að fara í mál við Sigfús Sigfús Aðalsteinsson Mynd: BHJ Jasmina Vajzovic segist íhuga að leita lögfræðilegrar aðstoðar vegna ummæla Sigfúsar Að...
Þúsundir fögnuðu stórsigri fjöldahreyfingar stúdenta í Serbíu
📅 26.10.2026 👁️ 3
Þúsundir fögnuðu stórsigri fjöldahreyfingar stúdenta í Serbíu
Serbar þurstu út á götur borga í landinu strax og kjörstöðum lokaði fyrir þingkosningar sem fóru fram í gær. Þegar Aleksandar Vučić, fyrrverandi forse...
Tókst ekki moða neitt úr miðjunni - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Tókst ekki moða neitt úr miðjunni - Vísir
Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, gaf Andreasi Norlén, þingforseta, skýrslu um afrakstur af viðræðum hennar við leiðtoga annarra flokk...
Enn ein tilraunin til stjórnarmyndunar runnin út í sandinn
📅 26.10.2026 👁️ 3
Enn ein tilraunin til stjórnarmyndunar runnin út í sandinn
Elisabeth Thand Ringqvist, formaður Miðflokksins, sagði í dag að henni hefði ekki tekist að mynda ríkisstjórn. Hún fékk stjórnarmyndunarumboðið í síðu...
Enn enginn grunaður um inn­brotið - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Enn enginn grunaður um inn­brotið - Vísir
Þetta segir Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Aðfaranótt 29. júlí síðastliðin...
Fögnuðu sögulegum sigri Lula
📅 26.10.2026 👁️ 3
Fögnuðu sögulegum sigri Lula
Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, vann í síðari umferð forsetakosninga í landinu í gær. Afar mjótt var á munum milli hans og Flavio Bolsona...
Ekki hissa á viðbrögðum ráðherra við gagnrýninni
📅 26.10.2026 👁️ 3
Ekki hissa á viðbrögðum ráðherra við gagnrýninni
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi, segir að það hafi ekki komið sér á óvart að innvi...
Consultant doctors in England to strike next month
📅 26.10.2026 👁️ 3
Consultant doctors in England to strike next month
Senior doctors to stage 48-hour walkout, beginning on 25 November, in dispute over pay and pensions.
Mismunuðu kven­kyns sérfræðilækni Land­spítalans - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Mismunuðu kven­kyns sérfræðilækni Land­spítalans - Vísir
Konan hóf störf á spítalanum árið 2007 og var þá í grunnlaunaflokki 300. Eftir nýjan kjarasamning Læknafélags Íslands og ríkisins árið 2015 gátu starf...
Vikan á Instagram: „Sjaldan hefur kona verið jafn glöð að fá kótilettur!“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Vikan á Instagram: „Sjaldan hefur kona verið jafn glöð að fá kótilettur!“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Daði Már: „Það er ekki þannig að ríkið banni þessu fólki að hittast“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Daði Már: „Það er ekki þannig að ríkið banni þessu fólki að hittast“
„Það er ekki þannig að ríkið banni þessu fólki að hittast. Lögin kveða bara á um hvernig stjórnarfundir fara fram. Þeir hafa farið að lögum,“ segir Da...
Theo­dór Elmar og Móheiður ást­fangin - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Theo­dór Elmar og Móheiður ást­fangin - Vísir
Theodór og Móheiður hafa verið að slá sér upp undanfarna mánuði, mættu saman á sýningaropnun í Hannesarholti í ágúst og hafa sést saman í Vesturbæjarl...
John Healey's Budget to shield low-income pensioners from income tax
📅 26.10.2026 👁️ 3
John Healey's Budget to shield low-income pensioners from income tax
Changes are needed to prevent the full, flat-rate state pension becoming liable for income tax after it rises in April.
„Sögulegur sigur“ gegn fjarhægribylgjunni
📅 26.10.2026 👁️ 2
„Sögulegur sigur“ gegn fjarhægribylgjunni
„Sögulegur sigur“ gegn fjarhægribylgjunni Leið­togar víða um heim fagna kosn­inga­sigri Lula í Brasilíu mitt í upp­gangi leið­toga langt til hægri sem...
Hræði­legir dagar í Par­ty­landi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Hræði­legir dagar í Par­ty­landi - Vísir
Hrekkjavakan er á næsta leyti og óhætt að segja að Partyland í Holtagörðum sé komið í hátíðarbúning, en þar úði og grúði af hinum ýmsu kynjaskepnum, l...
Crowds welcome Venezuela's María Machado after months in exile
📅 26.10.2026 👁️ 3
Crowds welcome Venezuela's María Machado after months in exile
The Venezuelan opposition leader spent more than 10 months in exile after escaping the country on a speedboat.
Einstök paradís úti á landi komin á sölu
📅 26.10.2026 👁️ 3
Einstök paradís úti á landi komin á sölu
Einstök paradís úti á landi komin á sölu Kambastaðir Einstök eign að Kambastöðum í Ölfusi, skammt frá Hveragerði, hefur verið sett á sölu. Um er að ræ...
Lula vann - Bolsonaro ósáttur
📅 26.10.2026 👁️ 3
Lula vann - Bolsonaro ósáttur
Luiz Inácio Lula da Silva var endurkjörinn forseti Brasilíu í nótt með 51,8% atkvæða. Mótframbjóðandi hans, öldungadeildarþingmaðurinn Flávio Bolsonar...
Hafi ekki fundað form­lega án Harðar heldur snætt há­degis­mat - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Hafi ekki fundað form­lega án Harðar heldur snætt há­degis­mat - Vísir
Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni þar sem rætt var við Daða. Tilefnið eru orð Harðar sem sagði á Sprengisandi í gær að stjórnarfundir hafi verið hal...
„Fjárframlög til framhaldsskóla hafa dregist saman allar götur frá því fyrir hrun“
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Fjárframlög til framhaldsskóla hafa dregist saman allar götur frá því fyrir hrun“
„Frumvarpið er engan veginn fjármagnað. Það er ekki gert ráð fyrir neinu fjármagni samhliða því,“ segir Anton Már Gylfason, formaður Félags stjórnenda...
Fundu auðgað úran í dánar­búi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Fundu auðgað úran í dánar­búi - Vísir
Pilla, fimm sinnum tíu millímetrar, fannst í dánarbúi manns í Asikkala í sunnanverðu Finnlandi árið 2024. Lögregla var kölluð til en ef umbúðirnir uta...
Storm Boelo clean-up begins as thousands left without power
📅 26.10.2026 👁️ 3
Storm Boelo clean-up begins as thousands left without power
Around 90,000 properties are without power after Scotland and north England is battered by strong winds.
„Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráð­herrann“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráð­herrann“ - Vísir
Þetta kemur fram í skoðanagrein sem birtist á Vísi en undir hana rita Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri Borgarhólsskóla á Húsavík, Jón Páll Haral...
Þríhliða viðræður í næsta mánuði
📅 26.10.2026 👁️ 3
Þríhliða viðræður í næsta mánuði
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að þríhliða viðræður milli Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna fari fram í næsta mánuði. Markmiðið með þeim...
Residents of Fuerteventura demand lower rents and limits on holiday lets
📅 26.10.2026 👁️ 1
Residents of Fuerteventura demand lower rents and limits on holiday lets
Residents are being urged to join a protest in Puerto del Rosario on Wednesday, 11th November, demanding action on rising rents and the shortage of af...
Líkja ákvörðun Ingu Sæland við ævintýrið um keisarann klæðalausa
📅 26.10.2026 👁️ 3
Líkja ákvörðun Ingu Sæland við ævintýrið um keisarann klæðalausa
Skólamálanefnd Skólastjórafélags Íslands segir að álitamálum og vafaatriðum vegna breytinga Ingu Sæland menntamálaráðherra á námsmati hafi fjölgað eft...
Djúp lægð úr suðri fer að hafa á­hrif í kvöld - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Djúp lægð úr suðri fer að hafa á­hrif í kvöld - Vísir
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Þar segir að lægðardrag sem liggur yfir landinu valdi rigningu eða slyddu um norðanv...
Um­ferð gæti tafist á Arnar­nes­vegi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Um­ferð gæti tafist á Arnar­nes­vegi - Vísir
Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni verður byrjað á framkvæmdum við hringtorg við Vetrarbraut og síðar við Fífuhvammsveg. Vinnusvæ...
Vetur konungur mættur í Þórsmörk
📅 26.10.2026 👁️ 3
Vetur konungur mættur í Þórsmörk
Segja má að haust og vetur hafi mæst í hlíðum Þórsmerkur, sem voru að hluta til í haustlitunum en þó komnar með hvítan koll þegar myndatökumaður sjónv...
Tóku á móti barni í sjúkra­bíl - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Tóku á móti barni í sjúkra­bíl - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá slökkviliði. Þar segir að meðal annarra verkefna hafi verið að aðstoða köttinn Sigurlaugu eftir f...
3.1 magnitude earthquake recorded off west coast of Lanzarote
📅 26.10.2026 👁️ 3
3.1 magnitude earthquake recorded off west coast of Lanzarote
Two earthquakes were recorded west and south-west of Lanzarote yesterday, Sunday 25th October, with the stronger measuring 3.1 magnitude on the Richte...
Hægviðri víðast hvar en sums staðar vetrarlegt á vegum úti
📅 26.10.2026 👁️ 5
Hægviðri víðast hvar en sums staðar vetrarlegt á vegum úti
Vetrarlegt er um að litast víða á vegum landsins þrátt fyrir að útlit sé fyrir hæglætisveður í dag. Öllu hvassara verður á morgun.Rigning eða slydda e...
Hrun stefnumótaforrita: „Þetta er einfaldlega ekki spennandi lengur“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hrun stefnumótaforrita: „Þetta er einfaldlega ekki spennandi lengur“
Staðan í rekstri vinsælustu stefnumótaappa í heimi er dökk. Hefur Match Group, móðurfélag Tinder, Match.com, OkCupid og fjölmargra annarra stefnumótaa...
Stjörnulífið: Laumugifting í helli - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Stjörnulífið: Laumugifting í helli - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Laumubrúðkaup í helli Gerður Arinbjarnardóttir, betur þekkt sem Gerður...