Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

Kona sem er mikill stuðningsmaður Manchester United hefur heitið því að birta mynd af brjóstum sínum á hverjum degi þar til Michael Carrick verður rekinn úr starfi knattspyrnustjóra félagsins.
Carrick hefur sætt harðri gagnrýni eftir niðurlægjandi tap United gegn Como á miðvikudag. Liðið fékk þá á sig fjögur mörk gegn ítalska liðinu í Meistaradeildinni og óánægjan með stöðu mála hjá stórliðinu hefur farið vaxandi.
Stuðningskonan Skylar Skye ákvað að nóg væri komið.
„Dagur eitt þar sem ég birti mynd af brjóstunum á mér á hverjum degi þar til Manchester United rekur Michael Carrick,“ skrifaði hún við mynd þar sem hún lyfti upp bolnum og sýndi brjóstahaldara skreyttan hjörtum.
Skylar, sem er Only Fans-módel, lét ekki staðar numið við fyrstu myndina. Hún birti fleiri myndir næstu daga, meðal annars í bláum brjóstahaldara og síðar rauðum.
Fylgjendur hennar tóku vel í uppátækið og margir gerðu grín að stöðunni hjá United.
„Ég vona að hann verði aldrei rekinn,“ skrifaði einn. Annar sagði: „Lengi lifi Carrick! Þetta er eina ljósið í myrkrinu!“ Þriðji lagði til að stofnaður yrði fjáröflunarsjóður til að tryggja að Carrick fengi ævilangan samning. Einn fylgjandi viðurkenndi jafnvel að hann vildi nú ekki lengur að Carrick yrði rekinn, svo lengi sem myndbirtingarnar héldu áfram.
Á meðan Skylar heldur áfram að birta myndirnar berst Carrick fyrir því að halda starfi sínu. Á blaðamannafundi á föstudag flutti hann sex mínútna tilfinningaþrungna ræðu og sagði að félagið hefði „villst af leið“.
Carrick hefur aðeins unnið tvo af fyrstu ellefu leikjum sínum og sætir auknum þrýstingi eftir að fyrirliðinn Bruno Fernandes gagnrýndi opinberlega leikaðferðir liðsins og beindi gagnrýni að Carrick.
Í óvenjulegu upphafi blaðamannafundarins hóf Carrick mál sitt með eigin yfirlýsingu áður en hann svaraði spurningum blaðamanna. Hann viðurkenndi slæmt gengi liðsins en lagði áherslu á að leikmennirnir þyrftu að taka sig á og minnti á að goðsagnir félagsins hefðu ávallt sett liðið í fyrsta sæti.
Manchester United tekur á móti Bournemouth á Old Trafford í dag. Aðeins munar einu stigi á milli liðanna, Man Utd er í 13. sæti deildarinnar, en Bournemouth situr í 15. sæti.
Allt annað en sigur gæti aukið þrýstinginn á Carrick verulega, og jafnvel bundið enda á uppátæki Skylar fyrr en hún hafði ætlað sér.