Málverkið af danska kónginum

Málverkið af danska kónginum

Málverkið af danska kónginum

Málverkið af danska kónginum

Í Frið­riks­borg­ar­höll­inni á Norður – Sjálandi má sjá mál­verk af dönskum þjóð­höfð­ingjum, langt aftur í aldir. Fyrsta mál­verkið af Friðriki X eftir að hann varð kon­ungur Dan­merkur var afhjúpað fyrir skömmu. Verkið er umdeilt.

Hlustaðu 08:30 · Eitt og annað

Í Hillerød á Norður- Sjálandi, um það bil 35 kíló­metrum norðan við Kaup­manna­höfn stendur Frið­riks­borg­ar­höllin (Frederiks­borg Slot), stærsta höll end­ur­reisn­ar­tím­ans á Norð­ur­löndum. Svæðið umhverfis höll­ina þykir ein­stak­lega skemmti­legt, einkum garð­arnir.

Friðrik II kon­ungur eign­að­ist svæðið árið 1560, keypti það af efn­aðri danskri fjöl­skyldu, sem bjó í stóru húsi, nefnt Hill­erød­holm. Þótt Hill­erød­holm hafi ekki verið neitt smá­hýsi vildi kóngur bæta um betur, stækk­aði húsið og nefndi það Frederiks­borg. Syni Friðriks II, Krist­jáni IV, sem iðu­lega hefur verið kall­aður bygg­inga­kóngur vegna fram­kvæmda­gleði hans þótti höllin hreint engin höll og lét rífa stærstan hluta hennar og lét byggja nýja höll, á árunum 1600–1620. Það var Frið­riks­borg­ar­höllin eins og hún er í dag, ásamt kirkju, Frederiks­borg Slots­kirke. Kirkjan rúmar 650 manns í sæti.

Stórbruninn 1859

Frið­riks­borg­ar­höllin skemmd­ist mikið í elds­voða árið 1859, en var á næstu árum eftir brun­ann end­ur­byggð með opin­beru fé og stórum styrk frá J.C. Jacobsen stofn­anda Carlsberg. Kirkjan slapp að mestu óskemmd, en Ridd­ara­sal­ur­inn sem er fyrir ofan skemmd­ist mikið en var end­ur­byggður í sama stíl og í upp­hafi. Skömmu eftir end­ur­bygg­ingu hall­ar­innar ákvað kóng­ur­inn að kon­ungs­setrið skyldi flutt til Kaup­manna­hafnar. Nokkru síðar, árið 1878, var ákveðið að Danska þjóð­minja­safnið fengi stærstan hluta Frið­riks­borg­ar­hallar, ásamt kirkj­unni, til umráða. Þar er í dag stærsta safn Dan­merkur af por­trettum (and­lits­myndum), sögu­legum mál­verkum, hús­bún­aði og fleiru sem rekur sögu dönsku þjóð­ar­innar aftur í aldir. Í höll­inni eru sömu­leiðis haldnar ýmsar sér­sýn­ingar og nefna má að árið 2014 voru sýndar þar 35 por­trett­myndir eftir mann sem þekktur er að öðru en mál­ara­list, nefni­lega Bob Dylan. Þess má og geta að árið 2011 sýndi Bob Dylan 48 myndir, flestar frá Brasilíu, á Rík­is­lista­safn­inu í Kaup­manna­höfn.

Löng hefð

Á liðnum öldum hafa verið gerðar ótal myndir, og mynda­styttur, af dönskum kóngum og kon­ungs­fjöl­skyldum. Gormur (Gorm den gamle 890 – 958/959 ) var fyrsti form­legi kon­ungur Dan­merkur. Til eru á rúna­steinum ýmis tákn og stutt­orðar frá­sagnir sem tengj­ast Gormi en á síð­ari tímum hafa verið gerðar af honum ótal til­gátu­myndir og styttur. Elsta mál­verk sem varð­veist hefur af dönskum kon­ungi sýnir Kristján I (1426 – 1481). Talið er að myndin hafi verið máluð nokkrum árum eftir að hann lést. Mál­verkið er nú í Frið­riks­borg­ar­höll­inni eins og fjöl­mörg önnur mál­verk af dönskum kóngum og kónga­fólki. Slíkar myndir er víða að finna á dönskum söfnum og í opin­berum bygg­ingum. Eitt slíkt, sem oft er minnst á í bókum, er mál­verk sem sjá má í Dóm­kirkj­unni í Hró­arskeldu. Það sýnir Kristján IV í sjóor­ust­unni við Kol­berger Heide (við mynni Kíl­ar­fjarðar) árið 1644. Kóng­ur­inn stjórn­aði her­liði sínu en missti annað augað í átök­unum. Áður­nefnd mynd er 4 × 7 metrar á stærð. Mál­ar­anum hafði aðeins orðið á í mess­unni því myndin sýnir kóng­inn með lepp fyrir heila aug­anu. Kristján IV er jafn­framt sá danski þjóð­höfð­ingi sem flest mál­verk eru til af, en þess ber að geta að hann var kóngur í næstum 60 ár og mjög atkvæða­mik­ill.

Árið 2020 kom út bókin Kong­elige por­trætter i 500 år. Í bók­inni fer höf­und­ur­inn, Thyge Christian Fønss-Lundberg, ítar­lega yfir sögu mál­verk­anna af þjóð­höfð­ingj­unum. Bókin fékk góða dóma og rokseld­ist enda eru Danir áhuga­samir um allt sem við­kemur kónga­fólk­inu.

Konungsmálverkið

Friðrik, eldri sonur Mar­grétar Þór­hildar og Henriks drottn­ing­ar­manns, varð kon­ungur Dan­merkur 14. jan­úar 2024, en þá hafði Margrét Þór­hildur afsalað sér krún­unni. Í fram­haldi af því þótti sjálf­sagt, eins og hefðin býður, að lista­manni yrði falið að mála mynd af kóng­inum, hið opin­bera mál­verk. Út af fyrir sig var ekki brýn þörf á mál­verki af Friðriki því vita­skuld eru til fjöl­mörg mál­verk af honum, ýmist einum eða með fjöl­skyld­unni. Þau mál­verk eru frá ýmsum tímum en ekk­ert þeirra eftir að hann tók við krún­unni. Ekki eru ákveðnar reglur um hvernig „hið opin­bera mál­verk“ skuli vera en sam­kvæmt hefð­inni skal slíkt skilirí vera þokka­lega stórt.

14 mál­verk
Í Ridd­ara­sal Frið­riks­borg­ar­hallar eru 14 mál­verk af dönskum þjóð­höfð­ingjum. Önnur slík verk eru ann­ars staðar í höll­inni.

Starfs­fólk hirð­ar­innar, í sam­vinnu við þjóð­höfð­ingj­ann og ýmsa sér­fræð­inga, velur lista­mann til verks­ins. Ef við­kom­andi lista­maður vill taka verkið að sér hefst vinnan. Hún getur verið tíma­frek og fram hefur komið að vinnan við nýja mál­verkið af Friðriki tók rúm tvö ár.

Cathrine Raben Davidsen

Lista­mað­ur­inn sem varð fyrir val­inu til að mála kóngs­mynd­ina heitir Cathrine Raben Davidsen. Hún er fædd 1972 og þótt nafnið hljómi kannski ekki kunn­ug­lega er hún ekki nýgræð­ingur á lista­svið­inu. Hún er hámenntuð, fyrst í heima­land­inu Danmörku og síðar á Ítalíu og í Hollandi. Cathrine Raben er meðal virt­ustu list­mál­ara sinnar kyn­slóðar í Danmörku. Hún hefur hlotið fjölda við­ur­kenn­inga fyrir list sína, bæði heima og erlendis, og er fyrsta konan til að mála „hið opin­bera mál­verk“ af dönskum þjóð­höfð­ingja.

Nýja mál­verkið af danska kóng­inum var afhjúpað 25. sept­em­ber síð­ast­lið­inn í Ridd­ara­salnum á Frið­riks­borg, sem er, eins og áður var nefnt, fyrir ofan kirkj­una. Salurinn er um það bil 50 metra langur og 13 metra breiður, loft­hæðin 7 metrar. Þótt þar sé ágæt­lega hátt til lofts og vítt til veggja fer því fjarri að öll „hin opin­beru mál­verk“ sem til eru af þjóð­höfð­ingjum Dan­merkur gegnum tíð­ina kom­ist þar fyrir. Í salnum eru 14 mál­verk, þau nýj­ustu, ef svo mætti að orði kom­ast, önnur verk eru ann­ars staðar í höll­inni. Myndin af Friðriki, sem er 2,40 metrar á hæð og 1,40 metrar á breidd­ina, sýnir kon­ung­inn í hátíð­ar­bún­ingi yfir­manna í flot­anum þar sem hann stendur með lauf­skrúð í bak­grunni og þar er fag­ur­fíf­ill einnig áber­andi. Fag­ur­fíf­ill­inn, daisy á dönsku, er eft­ir­læt­is­blóm Mar­grétar Þór­hildar en Daisy er einmitt gælu­nafn hennar innan fjöl­skyld­unnar. Í blaða­við­tali greindi Cathrine Raben frá því að Friðrik kon­ungur hefði sér­stak­lega óskað eftir að fag­ur­fíf­ill sæist á mynd­inni og kon­ung­ur­inn greip reyndar í pensil­inn þegar verið var að mála bak­grunn­inn. Að sögn Cathrine Raben hafði hún skóg­inn í Ods­her­red á Norð­vestur-Sjálandi sem fyr­ir­mynd, þar stund­aði Friðrik IX, afi núver­andi kon­ungs, veiðar.

Blandaðar viðtökur

Friðrik kon­ungur og Mary drottn­ing voru við­stödd þegar verkið var afhjúpað, þar voru sömu­leiðis full­trúar margra danskra fjöl­miðla ásamt fleiri gestum. Miðl­arnir fjöll­uðu síðan ítar­lega um mál­verkið, enda ekki á hverjum degi sem nýtt ,,opin­bert mál­verk’’ af dönskum þjóð­höfð­ingja lítur dags­ins ljós.

„Þetta er ekki frétta­mynd dags­ins í dag“
Cathrine Raben Davidsen
Lista­mað­ur­inn sem mál­aði kon­ungs­mynd­ina.

Eins og við mátti búast voru sér­fræð­ingar dönsku fjöl­miðl­anna og list­fræð­ingar ekki á einu máli um mál­verkið og sömu sögu er segja um fólk sem frétta­menn tóku tali eftir að myndir af mál­verk­inu voru birtar í sjón­varpi og á vef­síðum. Friðrik er mik­ill áhuga­maður um íþróttir og heilsu­rækt og ein­hverjir sem við var rætt nefndu að hann hefði frekar átt að vera í ein­hvers konar íþrótta­bún­ingi. Cathrine Raben sagði að slíkt hefði aldrei komið til greina. „Þetta er ekki frétta­mynd dags­ins í dag,“ sagði hún.

Gagnrýni hefur einkum beinst að ásjónu kon­ungs­ins, and­litið sé of mjóslegið og húð­lit­ur­inn óeðli­legur. Þá sé nefið allt öðru­vísi en á fyr­ir­mynd­inni. Engu lík­ara en lista­mað­ur­inn hafi haft nef Jóakims, bróður Friðriks, sem fyr­ir­mynd. Friðrik kon­ungur hefur lýst ánægju með mál­verkið og varð­andi gagn­rýn­ina sagði hann að mál­verkið „ikke skal ple­ase alle der beskuer det“.

Kon­ungs­myndirGervi­greind­ar­út­gáfa af nýja mál­verk­inu af Friðriki X, til hægri, vakti athygli þegar hún var sýnd í morg­un­þætti dönsku sjón­varps­stöðv­ar­innar TV2.

Gervigreindarútgáfan

Í morg­un­þætti sjón­varps­stöðv­ar­innar TV2 sýndi sér­fræð­ingur í notkun gervi­greindar mynd sem hann hafði beðið gervi­greind­ina að búa til af Friðriki kon­ungi, með nýja mál­verkið sem útgangs­punkt. Skemmst er frá því að segja að þetta vakti mikla athygli, sumum fannst gervi­greind­ar­myndin taka mál­verk­inu fram, aðrir sögðu það bein­línis móðgun við þjóð­höfð­ingj­ann að láta tölvu­for­rit gera mynd af honum.

#danska #kónginum #málverkið


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/70079/malverkid-af-danska-konginum/

📰 Aðrar fréttir

LA PERDITION – Glötun Frakklands
📅 25.10.2026 👁️ 1
LA PERDITION – Glötun Frakklands
LA PERDITION – Glötun Frakklands Fréttin25. október 2026Erlent, Hælisleitendur, Helga Dögg SverrisdóttirLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrif...
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
📅 25.10.2026 👁️ 1
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
Leikarinn og leikstjórinn Taika Waititi hefur opinberað eina reglu sem hann og eiginkona hans, söngkonan Rita Ora fylgja í sambandi sínu, í þeim tilga...
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
📅 25.10.2026 👁️ 1
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri Fréttin25. október 2026InnlendarLeave a Comment Miklar óeirðir brutust út í...
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Lands­virkjunar“ - Vísir
„Grundvöllurinn er traust og traust er mjög flókið fyrirbrigði sem þarf að vera til staðar þegar menn eru að sinna svona starfi og þá er líka mikilvæg...
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
📅 25.10.2026 👁️ 1
Nichole spyr Elliða hvort fjölmenningarfulltrúi starfi hjá Ölfusi
Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi þingkona Bjartrar framtíðar og fyrrverandi forstöðukona Fjölmenningarseturs, spyr Elliða Vignisson, bæjarstjóra Ölfus...
Loka Vestur­bakkanum á kjör­dag Ísraela - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Loka Vestur­bakkanum á kjör­dag Ísraela - Vísir
Þetta hefur BBC eftir ísraelska hernum en þingkosningar fara fram í Ísrael á þriðjudaginn. Lokunin nái sérstaklega til verkamanna „um alla Júdeu, Sama...
Serbar ganga til skyndikosninga - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Serbar ganga til skyndikosninga - Vísir
Ðuro Macut forsætisráðherra óskaði eftir því að Aleksandar Vucic, forseti og flokksbróðir hans, ryfi þing og boðaði til kosninga þann 9. september síð...
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 2
Segir að endurskoða þurfi breytingar á Loftbrú
Þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi telur að innviðaráðherra þurfi að endurskoða boðaðar breytingar á niðurgreiðslu vegna Loftbrúar. Sjö þú...
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
📅 25.10.2026 👁️ 2
Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið
Ef Alþingi samþykkir bókun 35 á næstu vikum er mál ESA gegn okkur orðið ansi veikt. Pawel Bartoszek, formaður þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi for...
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Um­deildur sýknudómur þegar haft al­var­legar af­leiðingar - Vísir
Brasilíumenn ganga að kjörborðinu í dag í seinni umferð forsetakosninga. Val kjósenda stendur á milli sitjandi forseta og frambjóðanda hægrimanna sem ...
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
📅 25.10.2026 👁️ 2
Ísraelsher hrekur íbúa Hebron frá heimilum sínum
Ísraelsher ætlar að loka öllum landamærastöðvum á Vesturbakkanum á þriðjudag þegar kosningar eru í Ísrael.Tvö þúsund Palestínumenn voru hraktir frá he...
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Skiljan­lega skiptar skoðanir á stærstu kerfis­breytingu í ára­tug - Vísir
Ráðherrann kynnti fyrir nokkrum vikum nýjar breytingar á umdæmum lögreglunnar þar sem fækka á þeim úr sjö í þrjú. Áformin hafa sætt töluverðri gagnrýn...
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
📅 25.10.2026 👁️ 2
Lögregla kölluð til vegna líkamsárásar í Skeifunni
Lögregla var kölluð að Hagkaup í Skeifunni um sjöleytið í gærkvöld. 18 ára karlmaður óskaði eftir aðstoð eftir að hópur manna réðst á hann með barsmíð...
Vetrartími í Evrópu
📅 25.10.2026 👁️ 2
Vetrartími í Evrópu
Vetrartími tók gildi í Evrópu í nótt og klukkan var þá færð klukkustund aftur.Tímamunurinn milli Íslands og vesturhluta Evrópu og Skandinavíu er nú ei...
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
📅 25.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Pilsfaldakapítalistar vilja maka krókinn – á okkar kostnað!
Orðið á götunni er að vert sé að staldra við og skoða vandlega þau áform sem nú eru uppi um rekstur Litla spítalans, sem boðað er að hefji senn starfs...
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Fluttur á bráða­mót­töku eftir líkams­á­rás í Skeifunni - Vísir
Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að tilkynning barst um líkamsárás í hverfi 108 og sé málið í rannsókn. Um hóp manna hafi verið a...
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
📅 25.10.2026 👁️ 2
Manstu þegar 112 var nýtt neyðarnúmer?
Um þetta leyti á árinu 1995 var vinna við innleiðingu á einu neyðarsímanúmeri fyrir allt landið langt á veg komið. Fram að því hringdi fólk í símanúme...
„Ég var al­veg skelfingu lostinn“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
„Ég var al­veg skelfingu lostinn“ - Vísir
Tolli var vel upp lagður þegar hann hitti blaðamann, nýkominn úr jóga þar sem hann segist vera nýgræðingur. Sem kemur á óvart, eins mikið og hann hefu...
Föstudagar fortíðar: „Kannski er ágætt að lenda í kulnun þegar maður er 14 ára, þá lendir maður ekkert aftur í því“
📅 25.10.2026 👁️ 1
Föstudagar fortíðar: „Kannski er ágætt að lenda í kulnun þegar maður er 14 ára, þá lendir maður ekkert aftur í því“
Ida Karolina Harris tók þátt í loftslagsverkföllunum á Austurvelli í sjö ár, lengur en flestir. Hún segir að það hafi verið margt jákvætt við þátttöku...
Bar­áttan um Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Bar­áttan um Brasilíu - Vísir
Flávio Bolsonaro hafði betur gegn hinum áttræða Lula í fyrri umferð forsetakosninganna þann 4. október síðastliðinn. Hann náði þó ekki hreinum meirihl...
Neglur losnuðu hjá nær 40% notenda þyngdarstjórnunarlyfja
📅 25.10.2026 👁️ 1
Neglur losnuðu hjá nær 40% notenda þyngdarstjórnunarlyfja
Þyngdarstjórnunarlyf geta aukið líkur á að neglur losni frá naglabeði samkvæmt nýrri rannsókn. Nær 40% þátttakenda sem notuðu GLP-1 þyngdarstjórnunarl...
Lægir víðast hvar á morgun
📅 25.10.2026 👁️ 2
Lægir víðast hvar á morgun
Búast má við norðan kalda eða strekkingi í dag en austan Öræfa má reikna meðallhvössum eða hvössum vindi fram að hádegi samkvæmt Veðurstofu Íslands.Úr...
Hörður Arnars­son og náttúru- og inn­viða­gjald á Sprengi­sandi - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hörður Arnars­son og náttúru- og inn­viða­gjald á Sprengi­sandi - Vísir
Fyrsti gestur Páls verður Dr. Hafsteinn Dan Kristjánsson, lagaprófessor. Hann hefur meðal annars kennt Evrópu- og stjórnsýslurétt við Oxford-háskóla o...
Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir
Þetta segir Hrund Ottósdóttir, 47 ára Grindvíkingur, en í desember verða þrjátíu ár liðin frá því að tvíburabróðir hennar, Hafliði, féll fyrir eigin h...
14,600 people are waiting for home care support in the Canary Islands
📅 25.10.2026 👁️ 2
14,600 people are waiting for home care support in the Canary Islands
Thousands of people who need help with everyday activities are still waiting for support in the Canary Islands, despite a substantial reduction in del...
Stigmögnun skuggastríðsins
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stigmögnun skuggastríðsins
Orðin fjölþáttaógnir, fjölþáttaárásir og fjölþáttastríð hafa heyrst töluvert í fréttum síðustu mánuði og ekki að ástæðulausu því samhliða innrásarstrí...
Sleit sam­bandi við föður sinn í ljósi á­sakana - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Sleit sam­bandi við föður sinn í ljósi á­sakana - Vísir
The Sun og BBC greina frá. BBC hefur eftir heimildarmönnum sínum sem nákomnir væru Meghan að hún hefði tjáð föður sínum að samskiptum þeirra á milli v...
Musk says SpaceX restricted Ukraine's Starlink connection as service restored
📅 25.10.2026 👁️ 2
Musk says SpaceX restricted Ukraine's Starlink connection as service restored
The tech billionaire accuses Ukraine of violating its terms of service by using the network for military activity.
Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Dýra steikin á mat­seðlinum er ekki þarna til að seljast - Vísir
Því það eru ótrúlegustu atriði sem eru að hafa áhrif á okkur!  Og sumir spila auðvitað á þetta. Dýra steikin á matseðlinum er til dæmis ekkert endileg...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Annars verða allir drepnir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Annars verða allir drepnir
Mynd Skapandi einstaklingur með frumlega hugsun rekst
Nóg sé komið af Trump - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Nóg sé komið af Trump - Vísir
„Eftir tveggja ára óreiðu, grimmd, spillingu og vanhæfni, sem á sér enga hliðstæðu í nútímanum, gefst ykkur tækifæri til að segja: „Nú er nóg komið,““...
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
📅 25.10.2026 👁️ 2
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn Skylar SkyeÖrlög Carrick gætu ráðist í dag Mynd: Instagram Kona sem er mi...
19-year-old airlifted to hospital after serious motorbike accident in Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 2
19-year-old airlifted to hospital after serious motorbike accident in Tenerife
A 19-year-old man was seriously injured and a second man taken to hospital after a collision involving two motorcycles and a car on the TF-24 in Tener...
Norðan kaldi og snjó­koma til fjalla - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Norðan kaldi og snjó­koma til fjalla - Vísir
„Úrkomusvæði sem kemur úr austri mjakast yfir landið í dag með úrkomu, en sunnan- og vestanlands verður úrkomulítið þangað til í kvöld. Þó gæti hann h...
SUNDAY WEATHER: Temperatures up to 30°C as calima returns
📅 25.10.2026 👁️ 4
SUNDAY WEATHER: Temperatures up to 30°C as calima returns
Temperatures could reach 30°C in parts of the Canary Islands today, Sunday 25th October, with sunny spells, passing cloud and a return of calima, main...
Obama gagnrýndi Trump harðlega
📅 25.10.2026 👁️ 4
Obama gagnrýndi Trump harðlega
Fyrrum forseti Bandaríkjanna Barack Obama fór hörðum orðum um núverandi forseta Donald Trump á kosningafundum frambjóðenda Demókrataflokksins í Ohio o...
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
📅 25.10.2026 👁️ 3
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“ Mynd: Golli Reynir Pétur Steinunnarson vakti athygli landans árið 1985 þegar hann gekk hringinn í kring...
Fyrrverandi sjaríadómari hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi
📅 25.10.2026 👁️ 4
Fyrrverandi sjaríadómari hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi
Sheikh Muhammad Taqi Usmani, fyrrverandi dómari í sjaríadeild Hæstaréttar Pakistans, hélt fyrirlestur í Stórmoskunni á Íslandi í Skógarhlíð í Reykjaví...
Beneath Lanzarote: discover the volcanic tunnels of Cueva de los Verdes
📅 25.10.2026 👁️ 3
Beneath Lanzarote: discover the volcanic tunnels of Cueva de los Verdes
Lanzarote’s volcanic scenery is spectacular from the surface, but some of its most intriguing sights lie beneath your feet.In the north of the island,...
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
📅 25.10.2026 👁️ 3
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“ „Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segi...
2.000 Palestínumenn hraktir frá Hebron
📅 25.10.2026 👁️ 4
2.000 Palestínumenn hraktir frá Hebron
2.000 Palestínumenn voru hraktir af heimilum sínum í Hebron á Vesturbakkanum í gær. Ísraelski varnarmálaráðherrann Israel Katz segir að fólkið hafi ve...
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds að auðga samfélagið
📅 25.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds að auðga samfélagið
Mynd Mannréttindabarátta hefur mestu varðað um bætta ásýnd samfé
Krakkatía vikunnar: Ill­menni, bofs og Einar Ás­kell - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 4
Krakkatía vikunnar: Ill­menni, bofs og Einar Ás­kell - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Four ways Labour could raise money in the Budget without hiking income tax
📅 25.10.2026 👁️ 3
Four ways Labour could raise money in the Budget without hiking income tax
Chancellor John Healey may need to raise money to boost his fiscal headroom - BBC Verify examines what options could be on the table.
Meta frestar breytingu á skilmálum til 20. nóvember
📅 25.10.2026 👁️ 4
Meta frestar breytingu á skilmálum til 20. nóvember
Meta, fyrirtækið sem rekur Facebook og Instagram auk annarra samfélagsmiðla, tilkynnti á föstudag að fyrirhuguðum breytingum á notendaskilmálum fyrirt...
Israel to close West Bank crossings on election day as crackdown escalates
📅 25.10.2026 👁️ 3
Israel to close West Bank crossings on election day as crackdown escalates
The Israeli Defense Forces announces restrictions on the movement of Palestinian workers in the run-up to Tuesday's election.
Erkibiskupsdæmið í New York samþykkir sáttagreiðslur til þolenda kynferðisofbeldis
📅 25.10.2026 👁️ 3
Erkibiskupsdæmið í New York samþykkir sáttagreiðslur til þolenda kynferðisofbeldis
Rómversk-kaþólska erkibiskupsdæmið í New York og lögmenn þess hafa samþykkt að greiða sáttagreiðslur að upphæð 800 milljónir dollara til þolenda kynfe...
Budget to include £1bn for social and affordable housing
📅 25.10.2026 👁️ 4
Budget to include £1bn for social and affordable housing
The move will take funding for the 10-year programme to more than £40bn.
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad opnaður að nýju
📅 25.10.2026 👁️ 2
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad opnaður að nýju
Alþjóðaflugvöllurinn í Ríad í Sádi-Arabíu verður opnaður að nýju í dag eftir tveggja vikna lokun vegna árása Húta á flugvöllinn. Hútar hafa gert nokkr...
Meghan broke contact with father in letter citing abuse claims
📅 25.10.2026 👁️ 3
Meghan broke contact with father in letter citing abuse claims
Sources close to the duchess said she warned her father last year that he would never meet his grandchildren.