Ísraelsher ætlar að loka öllum landamærastöðvum á Vesturbakkanum á þriðjudag þegar kosningar eru í Ísrael.
Tvö þúsund Palestínumenn voru hraktir frá heimilum sínum í borginni Hebron á Vesturbakkanum í gær.
Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísraels, segir fólkið hafa verið flutt burt og sérstakar herdeildir hafa tekið yfir Hebron.
Tveir ísraelskir hermenn drepnir á föstudag
Ísraelski herinn hóf aðgerðir á Vesturbakkanum aðfaranótt laugardags eftir að tveir ísraelskir hermenn voru drepnir þar á föstudag. Síðan þá hefur herinn hert ferðatakmarkanir og staðið fyrir niðurrifi bygginga í Hebron.
Kosningar eru í Ísrael á þriðjudag og Ísraelsher bannar, frá og með deginum í dag, ferðir flestra palestínskra verkamanna inn í ísraelskar landnemabyggðir.
Kosningar í Ísrael á þriðjudag
Ísraelsher hefur umkringt Hebron og takmarkað mjög ferðafrelsi um 200.000 íbúa hennar. Youssef al-Jaabari, borgarstjóri Hebron, segir að hernaðaraðgerðirnar séu vegna kosninganna á þriðjudag.
Hann segir Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og ráðherra hans reyna að tryggja sér stuðning hægriöfgamanna og landnema.
Netanyahu sækist eftir því að sitja áfram í embætti en í kosningabaráttunni hefur hann meðal annars verið gagnrýndur fyrir viðbrögð stjórnvalda við árás Hamas-samtakanna 7.október 2023.
Skoðanakannanir benda til þess að mjótt sé á mununum milli Netanyahu og keppinauta hans í stjórnarandstöðunni.