Lögregla var kölluð að Hagkaup í Skeifunni um sjöleytið í gærkvöld. 18 ára karlmaður óskaði eftir aðstoð eftir að hópur manna réðst á hann með barsmíðum.
Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir hópinn hafa yfirgefið vettvang áður en lögreglu bar að garði en að hún hafi haft uppi á tveimur grunuðum um verknaðinn. Annar þeirra var 25 ára karlmaður en hinn 16 ára piltur. Hann var færður á lögreglustöð og forráðamenn hans og barnavernd kölluð til.
Þolandi árásarinnar var með minniháttar áverka á hné og var fluttur á sjúkrahús. Vitni voru að árásinni en tildrög hennar eru ókunn. Þá kvaðst Skúli ekki hafa upplýsingar um hvort þolandi þekkti árásarmennina. Ekki liggur fyrir hvort hann hyggist kæra málið og því er óljóst með framhald rannsóknar.
Aðspurður segir Skúli flesta sem að málinu komi vera með erlent ríkisfang. Lögregla kannist við nokkra þeirra sem hafi vanið komur sínar í Skeifuna.