Leikarinn og leikstjórinn Taika Waititi hefur opinberað eina reglu sem hann og eiginkona hans, söngkonan Rita Ora fylgja í sambandi sínu, í þeim tilgangi að forðast óþarfa „vesen“ í hjónabandinu.„Við reynum í raun bara að vera ekki of lengi í sundur,“ sagði Waititi í viðtali við tímaritið Woman's Day. „Þetta er mjög erfitt þegar báðir aðilar eru með starfsferil og eru á ferðalagi um heiminn, sífellt að reyna að ná tíma saman. En við leggjum okkur virkilega fram um að láta ekki líða meira en nokkrar vikur á milli þess sem við hittumst.“
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja