Ðuro Macut forsætisráðherra óskaði eftir því að Aleksandar Vucic, forseti og flokksbróðir hans, ryfi þing og boðaði til kosninga þann 9. september síðastliðinn og varð hann við þeirri bón. Þann 27. september sagði Vucic síðan af sér embætti forseta.
Sjá einnig: Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu
Möguleiki er á að hreyfing undir forystu stúdenta skáki stjórnarflokki Vucics, Serbneska framfaraflokknum (SNS), í kosningunum, segir í umfjöllun Politico. Í skoðanakönnun fyrirtækisins New Serbian Political Thought sem birt var á þriðjudaginn hafi Stúdentalistinn verið með naumt forskot á SNS, 44,5 prósenta fylgi gegn 42,7 prósenta fylgi Vučić.
Sé það í fyrsta sinn í meira en áratug að framboðslisti stjórnarandstöðu leiði í skoðanakönnun fyrir kosningar. Stúdentalistinn er sagður berjast gegn spillingu og kúgun.
Sjá einnig: Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“
Mótmælaalda hófst í Serbíu í nóvember 2024 þegar nýuppgert skyggni á járnbrautarstöð hrundi í borginni Novi Sad og varð sextán manns að bana. Mótmæli undir forystu námsmanna hafa nú staðið yfir í tvö ár. Saka þau stjórnvöld um spillingu og krefjast þess að einhver axli ábyrgð á harmleiknum.