„Við bara erum bara klárir í startholunum og bíðum þangað til við fáum nægilegt frost,“ Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu. Stefnt sé að því að opna fyrir jól, „og ef það er 1. desember er það bara geggjað,“ segir Einar.
Er þetta fjórði veturinn sem Bláfjöll nota snjóframleiðslukerfi til þess að lengja opnunartíma vetursins. Snjóframleiðsluvélarnar hafi reynst afskaplega vel.
„Þetta hefur bara bjargað síðustu árum þegar er verið að gefa okkur svona milli 12 og 15 aukadaga.“
Síðasta vetur hafi snjórinn þó ekki látið sjá sig fyrr en í lok febrúar. Enn eitt árið hafi mikilvægi snjóframleiðslunnar sannað sig þó að það hafi sannarlega ekki verið eins augljóst og síðustu vetur.
Sjá einnig: Óvenjulegu tímabili að ljúka
„Það er náttúrulega einstakt að það komi varla náttúrulegt snjókorn vetrarmánuðina sjálfa, nóvember, desember, janúar og nánast allan febrúar. Og ekki nóg með það, hitastigið þessa mánuði var það hátt að nánast aldrei gaf til snjóframleiðslu,“ segir á síðu skíðasvæðanna um síðasta vetur.
„Við vorum tvisvar tilbúnir, búnir að troða fyrir jól og græja allt saman. Þá kom hvað, þriggja vikna rigning?,“ segir Einar.
Þannig þið vonist eftir betri vetri í ár?
„Já, við eigum það bara skilið. Við skulum orða það þannig,“ segir Einar Bjarnason, rekstrarstjóri skíðasvæðanna.