Þetta hefur BBC eftir ísraelska hernum en þingkosningar fara fram í Ísrael á þriðjudaginn. Lokunin nái sérstaklega til verkamanna „um alla Júdeu, Samaríu og Jórdandalinn, þar á meðal á iðnaðarsvæðum, auk lokunar allra landamærastöðva“. Einnig verði flestum verkamönnum meinaður aðgangur að landtökubyggðum frá og með sunnudeginum.
Takmarkanirnar koma í kjölfar þess að tveir Palestínumenn skutu tvo ísraelska hermenn til bana á hernumdu svæði Vesturbakkans. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, skipaði umfangsmiklar aðgerðir í kjölfarið og hefur ísraelski herinn rifið heimili og fyrirtæki í borginni Hebron.
Um tvö þúsund Palestínumenn voru hraktir að heiman vegna þessa og að minnsta kosti ein gata var jöfnuð við jörðu. Algengt er að ísraelski herinn rífi heimili Palestínumanna sem grunaðir eru um að hafa gert árásir á Ísraela á Vesturbakkanum. Búið er að girða Hebron af og takmarka verulega ferðafrelsi íbúa hennar. Um tvö hundruð þúsund manns búa í borginni.
Mikil spenna er á Vesturbakkanum og hefur ofbeldi ísraelskra landtökumanna í garð Palestínumanna aukist til muna. Í tíð ríkisstjórnar Netanjahús hefur ólöglegum landtökubyggðum á svæðinu fjölgað til muna. Á Vesturbakkanum búa núna um fimm hundruð þúsund landtökumenn og þrjár milljónir Palestínumanna.
Ísraelar greiða atkvæði á þriðjudaginn og gefa skoðanakannanir í skyn að það muni muna litlu þegar kemur að flokki Netanjahú. Í umfjöllun Al Jazeera segir að stjórnarandstöðuflokkarnir fái 52 sæti í nýjustu skoðanakönnunum á meðan flokkur Netanjahú fái 52. Til að ná meirihluta í ísraelska þinginu þarf 61 sæti.