Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir

Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir

Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst - Vísir

Þetta segir Hrund Ottósdóttir, 47 ára Grindvíkingur, en í desember verða þrjátíu ár liðin frá því að tvíburabróðir hennar, Hafliði, féll fyrir eigin hendi, átján ára gamall.

Andlát hans hefur haft djúpstæð áhrif á Hrund sem hefur lært að lifa með sorginni en glímdi lengi við sektarkennd og reiði yfir því hvernig líf bróður hennar hafði þróast.

Missirinn er eitt þeirra áfalla sem Hrund gerir upp í sjálfsævisögu sinni, Skömmin var aldrei mín, sem kemur út hjá Sögum útgáfu í lok mánaðarins. Þar greinir hún meðal annars í fyrsta sinn frá nauðgunum sem hún varð fyrir á yngri árum, baráttu við áfengisfíkn og langvarandi álagi sem varð að lokum til þess að hún örmagnaðist og neyddist til að hætta að vinna tímabundið.

Þrátt fyrir að bókin spanni áratugi af ævi Hrundar varð handritið sjálft til á tiltölulega skömmum tíma. Sjálf skrifin tóku tæpt ár og allt ferlið, frá því hún hóf að skrifa bókina þar til útgáfan varð að veruleika, tók rétt rúmlega ár. Ákvörðunin um að opinbera svo persónulega reynslu var þó ekki auðveld.

„Ég er logandi hrædd við að bókin sé að koma út,“ segir Hrund í samtali við blaðamann.

„Óttinn hefur minnkað eftir því sem ég vinn meira í þessu, en stundum hugsa ég: „Guð minn góður, hvað er ég að gera? Er ég eitthvað klikkuð að segja frá þessu öllu?“

„Þá ætla ég bara að vera tossi“

Hrund og Hafliði ólust upp í Grindavík og voru lengi nánast óaðskiljanleg. Frá fyrstu tíð var litið á þau sem tvíbura og nöfn þeirra sjaldnast nefnd hvort í sínu lagi.

„Fram að átján ára aldri þekkti ég ekkert annað en að vera tvíburi. Í Grindavík, þar sem ég ólst upp, var varla hægt að nefna mig án þess að nefna bróður minn líka. Það var alltaf „Hrund og Hafliði“,“ rifjar Hrund upp.

Þótt systkinin hefðu alist upp við svipaðar aðstæður þróuðust líf þeirra í ólíkar áttir. Hrund var samviskusamur námsmaður og lagði mikla áherslu á að standa sig, en Hafliði átti sífellt erfiðara uppdráttar í skólanum.

Þegar þau voru komin á unglingsár var ákveðið að endurskipuleggja bekkina í grunnskólanum í Grindavík. Hrund var sett í svokallaðan A-bekk en Hafliði í B-bekk.

„Það var mikið áfall fyrir hann að lenda í B-bekk á meðan ég var sett í A-bekk. Við vissum bæði að B-bekkurinn þótti ekki jafn góður og A-bekkurinn. Þess vegna tala ég um gjána sem myndaðist smám saman á milli okkar. Umhverfið ýtti undir hana og við fundum það, þótt við segðum ekkert. Vanlíðan hans jókst og honum fannst hann passa sífellt verr inn.“

Eitt atvik frá þessum árum hefur sérstaklega setið í Hrund.

Hafliði kom heim með lélega prófseinkunn, reif prófið í tætlur og kastaði því í ruslið. Síðan lýsti hann því yfir að fyrst hann hefði verið settur í tossabekk ætlaði hann bara að vera tossi. Hrund telur að bróðir hennar hafi smám saman farið að samsama sig því hlutverki sem honum var úthlutað. Börnum sem glímdu við náms- og hegðunarerfiðleika hafi oft verið mætt með skömmum eða refsingum í stað þess að reynt væri að skilja hvað lægi að baki.

„Þú átt ekki heima í skólanum. Þú átt eiginlega ekki heima í frístundum heldur.“ Þetta voru skilaboðin sem bróðir minn fékk oft og tíðum.“

Hún veltir því fyrir sér hvernig líf Hafliða hefði getað þróast ef meiri þekking á ADHD og öðrum erfiðleikum barna hefði verið til staðar á þessum tíma.

Prúðbúin systkini á fermingardaginn.Aðsend

„Það vantaði svo rosalega mikið einhvern skilning. Og bara smá umburðarlyndi. Við skildum ekki hvað þetta var, en gátuð þið ekki reynt að sjá að þessum börnum leið illa? Þau voru ekki vandamálið heldur, þeim leið illa út af einhverju.“

Á meðan Hafliði átti erfitt með að fóta sig lagði Hrund sífellt meira á sig. Hún vildi ekki bæta við áhyggjur foreldra sinna og reyndi að halda eigin erfiðleikum fyrir sig.

„Mögulega fæddumst við bæði með ADHD, en einkennin voru mun sýnilegri hjá honum. Eftir á að hyggja finnst mér svo augljóst að hann hafi verið með ADHD. Hjá mér birtist þetta allt öðruvísi og ég hef stundum efast um það, þótt ég uppfylli mörg greiningarviðmið. Ég var alltaf að „maska“ og passa að vera ekki of mikil byrði, því foreldrar mínir höfðu nóg með bróður minn. Ég vildi ekki auka á byrði þeirra, en það gerði lífið ekki auðveldara fyrir mig. Sem lítil stelpa hugsaði ég: Ef ég stend mig og held öllu gangandi verður þetta kannski betra.“

Hrund tók jafnframt á sig mikla ábyrgð gagnvart Hafliða og vildi hjálpa honum þegar erfiðleikarnir jukust.

„Ég ákvað að standa mig fyrir okkur bæði, hjálpa honum og helst bjarga honum. Eftir á glímdi ég lengi við sektarkennd yfir því að hafa ekki náð að bjarga honum.“

Vissi hvað hafði gerst áður en nokkur sagði henni það

Í bókinni er sérstakur kafli helgaður þeim örlagaríka degi í desember árið 1996 þegar Hafliði, aðeins átján ára gamall, féll fyrir eigin hendi. Þar rifjar Hrund upp atburðarásina í átakanlegri frásögn, meðal annars augnablikið þegar hún vaknaði við öskur móður sinnar og vissi samstundis hvað hafði gerst.

„Ég vissi þetta strax þótt mamma hefði ekki sagt neitt. Ég man ekki hvað hún öskraði. Ég man öskrið, en ekki orðin. Ég hljóp beint út í bílskúr þar sem hann var. Ég veit ekki af hverju ég vissi að hann væri þar. Sem betur fer var ég ekki sú sem vaknaði fyrst og fann hann.“

Hrund hafði vitað að bróður hennar liði mjög illa en hafði engu að síður ekki séð fyrir að hann myndi taka eigið líf.

Missirinn hafði ekki aðeins í för með sér mikla sorg heldur einnig djúpstæð áhrif á sjálfsmynd hennar.

„Þetta hljómar kannski eins og klisja en ég get alveg sagt það. Þegar bróðir minn féll frá þá missti ég í rauninni mjög stóran hluta af mér.“

Sorginni fylgdi jafnframt reiði. Hrund velti lengi fyrir sér hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir andlátið.

„Svo ég sé alveg hreinskilin þá beindist reiðin líka mjög mikið að öðrum. Ég kenndi öðrum um frekar en sjálfri mér, þótt sektarkenndin væri auðvitað líka til staðar.“

Fjölskyldan fékk mikinn stuðning frá vinum og öðrum íbúum Grindavíkur fyrst eftir andlátið en eftir því sem tíminn leið varð Hrund einnig vör við hversu erfitt fólk átti með að ræða það sem hafði gerst.

„Það kom endalaust af fólki: vinir Hafliða, vinir mínir, vinir foreldra okkar, skólafélagar og fleiri sem tengdust fjölskyldunni. Það var auðvitað ákveðinn styrkur í því, en maður var samt í algjöru áfalli og varla viðstaddur í eigin lífi. Svo leið tíminn, og það skipti máli að við bjuggum í litlu samfélagi árið 1996. Ég kveið því oft að fara eitthvert vegna þess að ég vissi að fólk gat ekki einu sinni horft á mig. Maður varð næstum eins og heit kartafla eða eitrað epli sem enginn vildi snerta. Fólk vissi ekki hvað það átti að segja.“

Sjálfsvíg voru mikið tabú á þessum tíma, um miðjan tíunda áratuginn.

Hrund telur að þögnin hafi aukið á vanlíðan aðstandenda. Hún telur að þótt umræðan hafi breyst mikið til batnaðar á síðustu áratugum sé enn ákveðin skömm tengd sjálfsvígum.

„Ég man að ég varð allt í einu mjög upptekin af minningargreinum. Og enn þann dag í dag, þegar ég sé minningargrein um unga manneskju, þá hugsa ég oft með mér hvort hún hafi fallið fyrir eigin hendi.“

Hrund og Hafliði voru mjög samrýnd í æsku, en þegar leið á skólagönguna fór að skilja á milli þeirra. Hrund stóð sig vel í námi á meðan bróðir hennar lenti í sívaxandi erfiðleikum.Vísir/Anton Brink

Hrund vill með bókinni meðal annars varðveita minningu Hafliða og vekja athygli á mikilvægi þess að börn og ungmenni fái viðeigandi stuðning. Hún vill þó ekki leita að sökudólgum heldur reyna að skilja betur þær aðstæður sem mótuðu líf bróður hennar.

„Mig hefur lengi langað að bæði ég og aðrir skiljum betur hvað lá að baki dauða hans. Auðvitað get ég aldrei fengið fullkomið svar, því hann er ekki hér til að segja okkur það. En mig langar að fólk, hvort sem það þekkti hann eða ekki, muni hann ekki bara sem strákinn sem tók eigið líf. Það var stór saga að baki þessum strák og ýmsar ástæður fyrir því að þetta fór eins og það fór. Það er ekki það sama og að leita að blóraböggli. Maður vill reyna að skilja betur hvað gerðist.“

„Mér fannst aldrei hlustað á rödd mína“

Hrund hafði sjálf alist upp við að bæla tilfinningar sínar og reyna að falla inn í ákveðinn ramma. Hún telur að þær kröfur sem gerðar voru til hennar hafi einnig endurspeglað ríkjandi viðhorf til stúlkna og kvenna.

„Lengi hefur sú hugmynd verið ríkjandi, ekki bara á Íslandi, að stelpur og konur eigi að vera fínar og sætar og ekki rugga bátnum of mikið. Það eru alls konar skilyrði og óskrifaðar reglur um hvernig konur eiga að vera. Ég veit ekki einu sinni hvaðan þetta kemur, líklega nær það aldir aftur í tímann. En það er ekki hægt að standa undir þessum væntingum endalaust. Eitthvað hlýtur að láta undan að lokum.“

Sjálf átti hún oft erfitt með að stjórna sterkum tilfinningum og fann fyrir mikilli reiði þegar henni þótti eitthvað óréttlátt. En þegar hún reyndi að tjá sig upplifði hún að lítið væri hlustað.

„Mér fannst aldrei hlustað á rödd mína. Viðbrögðin voru oft á þá leið: „Já, já, Hrund mín,“ eins og það sem ég hefði að segja skipti ekki máli. Ég reyndi að koma skilaboðum á framfæri af einlægni, en ég fékk oft á tilfinninguna að ég hefði ekki rétt til að tala og ætti bara að þegja. Þannig byggðist þessi reiði og ólga upp innra með mér.“

Á unglingsárunum fór uppsöfnuð reiði meðal annars að brjótast fram þegar hún drakk áfengi. Hrund tengir þessa reynslu við möguleg ADHD-einkenni og svokallaða möskun, þegar einstaklingur reynir að fela eigin erfiðleika og laga sig að væntingum umhverfisins.

Hún hefur á fullorðinsárum farið í ADHD-mat hjá sálfræðingi og telur að aukinn skilningur á einkennunum hafi hjálpað sér að sjá ýmsa atburði úr fortíðinni í nýju ljósi.

„Ég er meistari í að maska. Og svo er það líka þannig að það er svo erfitt að átta sig á því að maður sé að þessu, því ég hef alltaf gert það.“

Þagði um nauðganirnar í áratugi

Í bókinni fjallar Hrund um kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir í æsku og á unglingsárum, þar á meðal tvær nauðganir sem hún hafði aldrei áður sagt opinberlega frá. Hún hafði reynt að bæla niður minningarnar og lengi gert lítið úr því hversu mikil áhrif reynslan hafði haft.

„Ég hafði aldrei komið fram og sagt opinberlega að mér hefði verið nauðgað, hvað þá lýst aðstæðunum og tilfinningunum. Ég hafði raunar aldrei farið almennilega í gegnum þetta frá A til Ö fyrr en ég fór til Stígamóta. Ég hafði nefnt þetta við einhverjar vinkonur, oft þegar ég var undir áhrifum áfengis, en það hafði aldrei orðið að alvöru samtali.“

Það reyndist Hrund sérstaklega erfitt að ákveða að fjalla um kynferðislegt atvik sem tengdist langafa hennar þegar hún var barn. Hún hafði um árabil reynt að ýta minningunni til hliðar.

„Það hafði bara gríðarlega mikil áhrif á mig, en ég lagði mig alla fram um að loka þetta niðri. Og ég gerði það held ég í mörg ár.“

Hrund skammaðist sín lengi fyrir að glíma enn við afleiðingar atvika sem höfðu gerst á æsku- og unglingsárunum

Hún taldi að hún ætti að vera búin að komast yfir reynsluna, enda væru margir áratugir liðnir.

„Ég vil líka að það komi fram það sem ég segi frá um langafa minn og eineltið sem ég varð fyrir. Þetta var stelpueinelti sem var lítt sýnilegt öðrum en olli mér miklum sársauka. Svo var það fyrsta ástarsorgin, allt á þessum mikilvægu mótunarárum. Lengi skammaðist ég mín fyrir hversu mikil áhrif þetta hafði á mig. Ég hugsaði að ég væri orðin svo gömul og ætti að vera búin að komast yfir þetta. En þetta mótaði mig fyrir lífstíð.“

Hrund er í dag orðin 47 ára en segir minningarnar frá þessum árum enn vera afar sterkar.

#MeToo-umræðan á árunum 2020 og 2021 vakti upp sársaukafullar minningar hjá Hrund. Hún vildi segja frá reynslu sinni en fannst stöðufærsla á samfélagsmiðlum ekki vera rétta leiðin til þess.Vísir/Anton Brink

„Þess vegna finnst mér svo mikilvægt að hlustað sé á börn. Það sem þau upplifa hefur raunveruleg áhrif á þau og getur mótað allt þeirra líf.“

#MeToo vakti upp sársaukann

Það var í #MeToo-umræðunni á árunum 2020 og 2021 sem Hrund fór fyrst að finna fyrir sterkri þörf til að segja sína eigin sögu.

Á þessum tíma var hún undir miklu álagi í vinnu og námi. Samhliða því birtust fjölmargar frásagnir af kynferðisofbeldi á samfélagsmiðlum sem kölluðu fram erfiðar minningar.

„Fræið að því að ég þyrfti að segja sögu mína var fyrst sáð þegar ég var í miklum sársauka. Það var á Covid-tímanum, þegar MeToo-umræðan stóð sem hæst. Á þessum tíma voru allir innilokaðir vegna heimsfaraldursins. Ég var sjálf undir gríðarlegu álagi, eins og ég er reyndar meistari í að koma mér í. Ég var bæði í meistaranámi og vinnu. Samt varð maður einhvern veginn að horfast í augu við sjálfan sig, og það gat ég ekki. MeToo-umræðan var eins og einhver væri stöðugt að pota í bakið á mér og segja: „Þú verður að horfast í augu við þennan sársauka.““

Hrund vildi sjálf segja frá en treysti sér ekki til þess. Henni fannst stöðufærsla á samfélagsmiðlum engan veginn ná yfir eigin reynslu og í stað þess að tala um hana leitaði hún í auknum mæli í áfengi.

„Ég var farin að drekka vegna sársaukans, til að deyfa hann. Ég var farin að drekka meira heima hjá mér, meðal annars vegna þess að þetta var á Covid-tímanum, bauð kannski vinkonu heim og áttaði mig svo á að ég hélt stundum áfram ein að drekka þegar vinkonan var farin, það var nýtt fyrir mér. Það var að vakna upp sársauki sem ég réð bara ekki við.“

Hrund telur mikilvægt að halda áfram þeirri umræðu sem #MeToo hratt af stað. Sjálf vill hún leggja sitt af mörkum með því að segja frá eigin reynslu en ákvað að nafngreina ekki gerendur ofbeldisins í bókinni.

„Ég vil ekki að bókin fari að snúast um ákveðnar persónur og sökudólga. Þá er málefnið farið.“

Hún leggur áherslu á að ábyrgðin á kynferðisofbeldi liggi hjá gerendum, ekki þeim sem verða fyrir því.

„Þetta er bara svo miklu stærra. Þetta snýst um að þolendum sé treyst og þeim trúað.“

Átti erfitt með að viðurkenna áfengisvandann

Hrund er háskólamenntuð, hefur starfað við fjármál og verkefnastjórnun og sinnt fjölskyldulífi samhliða krefjandi störfum. Á sama tíma glímdi hún við áfengisvanda sem hún átti erfitt með að viðurkenna fyrir sjálfri sér.

Hún hafði áður hætt að drekka nokkrum sinnum og meðal annars verið án áfengis í tæp fimm ár. Síðar byrjaði hún aftur að drekka og smám saman fóru gamlir brestir að verða fyrirferðarmeiri og andleg líðan fór versnandi. Hún telur að skömmin og fordómarnir sem hún tengdi við áfengisvanda hafi gert henni sérstaklega erfitt fyrir að leita sér hjálpar.

„Ég gat ekki horfst í augu við það og viðurkennt fyrr en ég var orðin fjörutíu og þriggja ára að ég þyrfti aðstoð frá einhverjum öðrum til þess að hætta að drekka. Ég hafði hætt að drekka oft áður og ég hafði meira að segja gert það í tæp fimm ár á svokölluðum hnefa. Það erfiðasta fyrir mig var að viðurkenna að einhver annar gæti hjálpað mér. Ég vil vera sjálfstæð og sjá um hlutina sjálf. En ég þurfti einmitt speglun, stuðning og sjálfsvinnu.“

Hrund telur jafnframt að sérstök skömm geti fylgt fíknisjúkdómum kvenna, enda geri samfélagið ríkar kröfur til þeirra um að vera ábyrgar og hafa stjórn á hlutunum. Hún bendir á að staðalímynd alkóhólista sé sjaldnast vel menntuð kona í ábyrgðarstarfi sem sinnir fjölskyldu og heimili.

„Mér finnst bara vanta rosalega mikið meiri umræðu um alkóhólisma og um fíknisjúkdóma,“ segir Hrund en hún vill að meiri áhersla sé lögð á að skoða mögulegar undirliggjandi ástæður fíknivanda, meðal annars áföll, geðræna erfiðleika og taugaþroskaraskanir. Hún telur að neyslan sé í mörgum tilfellum leið fólks til að deyfa vanlíðan eða flýja erfiðar tilfinningar.

Hugsaði um alla nema sjálfa sig

Þótt Hrund hefði hætt að drekka í ágúst árið 2022 og leitað sér aðstoðar þá var álagið í lífi hennar áfram mikið. Hún hafði lokið meistaranámi í verkefnastjórnun og hafið störf á nýjum vettvangi þar sem ábyrgðin jókst hratt. Á sama tíma var móðir hennar langt gengin með Alzheimer-sjúkdóm, systir hennar var alvarlega veik og eldsumbrotin í Grindavík höfðu haft mikil áhrif á fjölskylduna.

„Í byrjun apríl í fyrra, eftir allt þetta, fann ég að ég gat ekki meira. Ég hafði verið á fullu í þessu blessaða hamstrahjóli, reynt að haka við alla reitina, halda mér gangandi og vera bjartsýn. Ég ætlaði að ráða við allt, hjálpa veikri systur minni, annast móður mína sem var komin á hjúkrunarheimili og hugsa um alla nema sjálfa mig. Svo hrundi ég gjörsamlega.“

Hrund hafði sagt upp starfi sínu og við tók tímabil þar sem hún þurfti að horfast í augu við eigin líðan. Eftir að hafa árum saman lagt mikla áherslu á dugnað og samviskusemi gat hún ekki lengur brugðist við erfiðleikum með því að vinna meira eða taka að sér ný verkefni.

„Ég var nærri því að fá taugaáfall, þótt ég viti ekki hvort það er rétt hugtak eða hvernig slíkt er skilgreint. Ég var farin að gráta út af öllu. Það mátti varla segja neitt við mig án þess að ég brytist í grát. Þarna hófst mikil sjálfsvinna. Ég neyddist til að stoppa og gat ekki lengur flúið sjálfa mig með því að vinna, haka við verkefnin og æða áfram. Það var þá sem alvöru skrifin hófust og ég fór að skrifa bókina.“

Þótt Hrund kvíði því að almenningur fái að lesa svo persónulega frásögn telur hún mikilvægt að segja sögu sína og vekja athygli á skömm og fordómum sem tengjast kynferðisofbeldi, sjálfsvígum og fíknivanda.Vísir/Anton Brink

„Ég geri þetta þrátt fyrir óttann“

Dagbókarskrifin sem Hrund hóf í tengslum við bataferlið þróuðust smám saman yfir í handrit að bók.

Með því að rifja upp fortíðina öðlaðist hún aukinn skilning á sjálfri sér og þeim atburðum sem höfðu mótað líf hennar.

Skrifin vöktu þó minningar sem hún hafði lengi reynt að ýta til hliðar.

„Það kom mér á óvart hvað skrifin voru heilandi. Suma daga gat ég verið bæði grátandi og hlæjandi með nokkurra mínútna millibili. Þegar ég horfi til baka skil ég betur hvernig mér leið sem barni og hvers vegna ég brást við eins og ég gerði. En með skilningnum kemur líka sorg yfir barnið sem enginn hlustaði á og ekki var tekið mark á.“

Hrund lítur á bókina sem mikilvægan hluta af bataferlinu.

Hún vill með útgáfunni vekja athygli á áhrifum áfalla, fíknivanda og skammar en ekki síður hafi hún þurft að segja söguna fyrir sjálfa sig.

„Mig langaði sérstaklega að segja frá kynferðisofbeldinu og koma því frá mér. Ég gat ekki lengur borið skömmina og þessar tilfinningar. Ég þurfti að losa mig við þær. Þess vegna heitir bókin Skömmin var aldrei mín. Mér fannst ég verða að koma þessu út, því ég gat ekki lifað svona lengur.“

Þótt tilhugsunin um að bókin verði aðgengileg almenningi sé enn kvíðvænleg ætlar Hrund ekki að láta það koma í veg fyrir útgáfuna.

„Ég vil samt leggja áherslu á að ég er oft hrædd. Ég geri þetta þrátt fyrir óttann. Ég geri það samt, því eldmóðurinn og réttlætiskenndin vega þyngra en óttinn. Mér finnst mikilvægt að gera það sem maður veit innst inni að er rétt, jafnvel þótt maður sé hræddur.“

#móður #sinnar #vaknaði #við #öskur


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262953337d/vaknadi-vid-oskur-modur-sinnar-og-vissi-strax-hvad-hafdi-gerst

📰 Aðrar fréttir

Pawel Bartoszek: Kerfið í dag alls ekki einfaldara og betra en ef við værum í ESB
📅 26.10.2026 👁️ 0
Pawel Bartoszek: Kerfið í dag alls ekki einfaldara og betra en ef við værum í ESB
Í EES innleiðum við reglur sem samþykktar eru og settar úti í Evrópu án íslenskrar aðkomu en værum við í ESB tækju íslenskir þingmenn þátt í að setja ...
„Líklega er Hannes Hólmsteinn eini stuðningsmaður ættarinnar á Íslandi, eftir að Davíð Oddsson féll frá“
📅 26.10.2026 👁️ 0
„Líklega er Hannes Hólmsteinn eini stuðningsmaður ættarinnar á Íslandi, eftir að Davíð Oddsson féll frá“
Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður, fagnar óvæntum sigri vinstrimannsins Lula í forsetakosningunum í Brasilíu í gær. Hann segir þó í raun undarlegt...
Leita á morgun að líkamsleifum Lúðvíks
📅 26.10.2026 👁️ 1
Leita á morgun að líkamsleifum Lúðvíks
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum verður á morgun með aðgerð sem miðar að leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll niður um jarðfall í Grindavík...
Vinkona Claudiu lést eftir ranga greiningu – „Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvort það að vera erlend hafi átt þátt í því“
📅 26.10.2026 👁️ 1
Vinkona Claudiu lést eftir ranga greiningu – „Ég get ekki annað en velt því fyrir mér hvort það að vera erlend hafi átt þátt í því“
Clauda Wilson Molloy, lögmaður, greinir frá máli vinkonu sinnar sem lést úr krabbameini eftir að hafa verið ranglega greind í mörg skipti á Íslandi. H...
Skikkaður í sótt­kví og fær á­heyrn Hæsta­réttar - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Skikkaður í sótt­kví og fær á­heyrn Hæsta­réttar - Vísir
Í ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfisbeiðni mannsins segir að málið varði miskabótakröfu mannsins vegna stjórnvaldsákvörðunar sóttvarnalæknis frá ...
Kanna möguleika á að geyma koldíoxíð á Grundartanga
📅 26.10.2026 👁️ 1
Kanna möguleika á að geyma koldíoxíð á Grundartanga
Rannsóknir standa yfir á því hvort að jarðlög á Grundartanga henti til að binda þar koldíoxíð.Boruð var hola sem nær niður á 1.504 metra dýpi. Hún er ...
„Við getum ekki öll búið í Reykja­vík“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
„Við getum ekki öll búið í Reykja­vík“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Í stað þess að fargjald sé...
Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagn­rýni Jóns Gnarr - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagn­rýni Jóns Gnarr - Vísir
Þá greinum við frá því að fjármálaráðherra segist sjálfur ekki hafa hafnað fundi með Herði Arnarsyni, fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar. Hörður segi...
Tóku í gegn fjögur hundruð fer­metra ein­býli í Hafnar­firði - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Tóku í gegn fjögur hundruð fer­metra ein­býli í Hafnar­firði - Vísir
Hún og eiginmaðurinn hafa núna tekið það rækilega í gegn, innan sem utan. Eins og fram kom í þættinum elskar Lucinda þunga hluti, gamla muni og að ger...
Leita Lúðvíks á morgun
📅 26.10.2026 👁️ 1
Leita Lúðvíks á morgun
Hópur manna á vegum lögreglustjórans á Suðurnesjum vinnur að því í dag að undirbúa leit að líki Lúðvíks Péturssonar sem féll í gryfju í Grindavík í ja...
Hefja leit að Lúð­vík í fyrra­málið - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 1
Hefja leit að Lúð­vík í fyrra­málið - Vísir
Í fréttatilkynningu þess efnis frá lögreglunni segir að viðbragðsaðilar og og sérfræðingar verði við vinnu í dag til að huga að öryggi og setja upp vi...
„Rými fyrir betri útskýringar gagnvart kennurum“
📅 26.10.2026 👁️ 1
„Rými fyrir betri útskýringar gagnvart kennurum“
Nemendur í 10. bekk grunnskóla fá lokaeinkunn í tölum í stað bókstafa í vor, verði áætlanir Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, að veruleika. Þ...
Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp - Vísir
Dægurmálamiðillinn US Weekly greindi fyrst frá sambandi Brady og Swanepoel og hafa fleiri fjölmiðlar síðan fjallað um málið. „Þau hafa verið að slá sé...
Emin hafði þetta að segja strax eftir bardagann í viðtali við Nútímann
📅 26.10.2026 👁️ 3
Emin hafði þetta að segja strax eftir bardagann í viðtali við Nútímann
„Ég stoppa ekki,“ sagði hnefaleikakappinn Emin Kadri Eminsson þegar Nútíminn ræddi við hann strax eftir sigur hans á Lettanum Dinars Skripkins á Spáni...
Spænsk kona lýsir því hversu mikið hún græddi á að vinna á Íslandi – Aðeins 4.400 krónur fóru í afþreyingu
📅 26.10.2026 👁️ 2
Spænsk kona lýsir því hversu mikið hún græddi á að vinna á Íslandi – Aðeins 4.400 krónur fóru í afþreyingu
Ung spænsk kona sem kom til Íslands segist hafa náð að vinna sér inn talsverða summu fyrir 200 klukkutíma vinnu. Hún er ein af fjölmörgum útlendingum ...
Kæra lokun dekkjaverkstæðis í Vesturbænum
📅 26.10.2026 👁️ 3
Kæra lokun dekkjaverkstæðis í Vesturbænum
Eigendur fasteignar í vesturbæ Reykjavíkur og eigandi dekkjaverkstæðis sem rekið hefur verið í umræddri fasteign hafa kært ákvörðun byggingarfulltrúa ...
Íhugar að fara í mál við Sigfús
📅 26.10.2026 👁️ 1
Íhugar að fara í mál við Sigfús
Íhugar að fara í mál við Sigfús Sigfús Aðalsteinsson Mynd: BHJ Jasmina Vajzovic segist íhuga að leita lögfræðilegrar aðstoðar vegna ummæla Sigfúsar Að...
Þúsundir fögnuðu stórsigri fjöldahreyfingar stúdenta í Serbíu
📅 26.10.2026 👁️ 3
Þúsundir fögnuðu stórsigri fjöldahreyfingar stúdenta í Serbíu
Serbar þurstu út á götur borga í landinu strax og kjörstöðum lokaði fyrir þingkosningar sem fóru fram í gær. Þegar Aleksandar Vučić, fyrrverandi forse...
Tókst ekki moða neitt úr miðjunni - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Tókst ekki moða neitt úr miðjunni - Vísir
Elisabeth Thand Ringqvist, leiðtogi Miðflokksins, gaf Andreasi Norlén, þingforseta, skýrslu um afrakstur af viðræðum hennar við leiðtoga annarra flokk...
Enn ein tilraunin til stjórnarmyndunar runnin út í sandinn
📅 26.10.2026 👁️ 3
Enn ein tilraunin til stjórnarmyndunar runnin út í sandinn
Elisabeth Thand Ringqvist, formaður Miðflokksins, sagði í dag að henni hefði ekki tekist að mynda ríkisstjórn. Hún fékk stjórnarmyndunarumboðið í síðu...
Enn enginn grunaður um inn­brotið - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Enn enginn grunaður um inn­brotið - Vísir
Þetta segir Hildur Rún Björnsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Aðfaranótt 29. júlí síðastliðin...
Fögnuðu sögulegum sigri Lula
📅 26.10.2026 👁️ 3
Fögnuðu sögulegum sigri Lula
Luiz Inacio Lula da Silva, forseti Brasilíu, vann í síðari umferð forsetakosninga í landinu í gær. Afar mjótt var á munum milli hans og Flavio Bolsona...
Ekki hissa á viðbrögðum ráðherra við gagnrýninni
📅 26.10.2026 👁️ 3
Ekki hissa á viðbrögðum ráðherra við gagnrýninni
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi, segir að það hafi ekki komið sér á óvart að innvi...
Consultant doctors in England to strike next month
📅 26.10.2026 👁️ 3
Consultant doctors in England to strike next month
Senior doctors to stage 48-hour walkout, beginning on 25 November, in dispute over pay and pensions.
Mismunuðu kven­kyns sérfræðilækni Land­spítalans - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Mismunuðu kven­kyns sérfræðilækni Land­spítalans - Vísir
Konan hóf störf á spítalanum árið 2007 og var þá í grunnlaunaflokki 300. Eftir nýjan kjarasamning Læknafélags Íslands og ríkisins árið 2015 gátu starf...
Vikan á Instagram: „Sjaldan hefur kona verið jafn glöð að fá kótilettur!“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Vikan á Instagram: „Sjaldan hefur kona verið jafn glöð að fá kótilettur!“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Daði Már: „Það er ekki þannig að ríkið banni þessu fólki að hittast“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Daði Már: „Það er ekki þannig að ríkið banni þessu fólki að hittast“
„Það er ekki þannig að ríkið banni þessu fólki að hittast. Lögin kveða bara á um hvernig stjórnarfundir fara fram. Þeir hafa farið að lögum,“ segir Da...
Theo­dór Elmar og Móheiður ást­fangin - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Theo­dór Elmar og Móheiður ást­fangin - Vísir
Theodór og Móheiður hafa verið að slá sér upp undanfarna mánuði, mættu saman á sýningaropnun í Hannesarholti í ágúst og hafa sést saman í Vesturbæjarl...
John Healey's Budget to shield low-income pensioners from income tax
📅 26.10.2026 👁️ 3
John Healey's Budget to shield low-income pensioners from income tax
Changes are needed to prevent the full, flat-rate state pension becoming liable for income tax after it rises in April.
„Sögulegur sigur“ gegn fjarhægribylgjunni
📅 26.10.2026 👁️ 2
„Sögulegur sigur“ gegn fjarhægribylgjunni
„Sögulegur sigur“ gegn fjarhægribylgjunni Leið­togar víða um heim fagna kosn­inga­sigri Lula í Brasilíu mitt í upp­gangi leið­toga langt til hægri sem...
Hræði­legir dagar í Par­ty­landi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Hræði­legir dagar í Par­ty­landi - Vísir
Hrekkjavakan er á næsta leyti og óhætt að segja að Partyland í Holtagörðum sé komið í hátíðarbúning, en þar úði og grúði af hinum ýmsu kynjaskepnum, l...
Crowds welcome Venezuela's María Machado after months in exile
📅 26.10.2026 👁️ 3
Crowds welcome Venezuela's María Machado after months in exile
The Venezuelan opposition leader spent more than 10 months in exile after escaping the country on a speedboat.
Einstök paradís úti á landi komin á sölu
📅 26.10.2026 👁️ 3
Einstök paradís úti á landi komin á sölu
Einstök paradís úti á landi komin á sölu Kambastaðir Einstök eign að Kambastöðum í Ölfusi, skammt frá Hveragerði, hefur verið sett á sölu. Um er að ræ...
Lula vann - Bolsonaro ósáttur
📅 26.10.2026 👁️ 3
Lula vann - Bolsonaro ósáttur
Luiz Inácio Lula da Silva var endurkjörinn forseti Brasilíu í nótt með 51,8% atkvæða. Mótframbjóðandi hans, öldungadeildarþingmaðurinn Flávio Bolsonar...
Hafi ekki fundað form­lega án Harðar heldur snætt há­degis­mat - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Hafi ekki fundað form­lega án Harðar heldur snætt há­degis­mat - Vísir
Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni þar sem rætt var við Daða. Tilefnið eru orð Harðar sem sagði á Sprengisandi í gær að stjórnarfundir hafi verið hal...
„Fjárframlög til framhaldsskóla hafa dregist saman allar götur frá því fyrir hrun“
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Fjárframlög til framhaldsskóla hafa dregist saman allar götur frá því fyrir hrun“
„Frumvarpið er engan veginn fjármagnað. Það er ekki gert ráð fyrir neinu fjármagni samhliða því,“ segir Anton Már Gylfason, formaður Félags stjórnenda...
Fundu auðgað úran í dánar­búi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Fundu auðgað úran í dánar­búi - Vísir
Pilla, fimm sinnum tíu millímetrar, fannst í dánarbúi manns í Asikkala í sunnanverðu Finnlandi árið 2024. Lögregla var kölluð til en ef umbúðirnir uta...
Storm Boelo clean-up begins as thousands left without power
📅 26.10.2026 👁️ 3
Storm Boelo clean-up begins as thousands left without power
Around 90,000 properties are without power after Scotland and north England is battered by strong winds.
„Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráð­herrann“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráð­herrann“ - Vísir
Þetta kemur fram í skoðanagrein sem birtist á Vísi en undir hana rita Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri Borgarhólsskóla á Húsavík, Jón Páll Haral...
Þríhliða viðræður í næsta mánuði
📅 26.10.2026 👁️ 3
Þríhliða viðræður í næsta mánuði
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að þríhliða viðræður milli Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna fari fram í næsta mánuði. Markmiðið með þeim...
Residents of Fuerteventura demand lower rents and limits on holiday lets
📅 26.10.2026 👁️ 1
Residents of Fuerteventura demand lower rents and limits on holiday lets
Residents are being urged to join a protest in Puerto del Rosario on Wednesday, 11th November, demanding action on rising rents and the shortage of af...
Líkja ákvörðun Ingu Sæland við ævintýrið um keisarann klæðalausa
📅 26.10.2026 👁️ 3
Líkja ákvörðun Ingu Sæland við ævintýrið um keisarann klæðalausa
Skólamálanefnd Skólastjórafélags Íslands segir að álitamálum og vafaatriðum vegna breytinga Ingu Sæland menntamálaráðherra á námsmati hafi fjölgað eft...
Djúp lægð úr suðri fer að hafa á­hrif í kvöld - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Djúp lægð úr suðri fer að hafa á­hrif í kvöld - Vísir
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Þar segir að lægðardrag sem liggur yfir landinu valdi rigningu eða slyddu um norðanv...
Um­ferð gæti tafist á Arnar­nes­vegi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Um­ferð gæti tafist á Arnar­nes­vegi - Vísir
Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni verður byrjað á framkvæmdum við hringtorg við Vetrarbraut og síðar við Fífuhvammsveg. Vinnusvæ...
Vetur konungur mættur í Þórsmörk
📅 26.10.2026 👁️ 3
Vetur konungur mættur í Þórsmörk
Segja má að haust og vetur hafi mæst í hlíðum Þórsmerkur, sem voru að hluta til í haustlitunum en þó komnar með hvítan koll þegar myndatökumaður sjónv...
Tóku á móti barni í sjúkra­bíl - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Tóku á móti barni í sjúkra­bíl - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá slökkviliði. Þar segir að meðal annarra verkefna hafi verið að aðstoða köttinn Sigurlaugu eftir f...
3.1 magnitude earthquake recorded off west coast of Lanzarote
📅 26.10.2026 👁️ 3
3.1 magnitude earthquake recorded off west coast of Lanzarote
Two earthquakes were recorded west and south-west of Lanzarote yesterday, Sunday 25th October, with the stronger measuring 3.1 magnitude on the Richte...
Hægviðri víðast hvar en sums staðar vetrarlegt á vegum úti
📅 26.10.2026 👁️ 5
Hægviðri víðast hvar en sums staðar vetrarlegt á vegum úti
Vetrarlegt er um að litast víða á vegum landsins þrátt fyrir að útlit sé fyrir hæglætisveður í dag. Öllu hvassara verður á morgun.Rigning eða slydda e...
Hrun stefnumótaforrita: „Þetta er einfaldlega ekki spennandi lengur“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hrun stefnumótaforrita: „Þetta er einfaldlega ekki spennandi lengur“
Staðan í rekstri vinsælustu stefnumótaappa í heimi er dökk. Hefur Match Group, móðurfélag Tinder, Match.com, OkCupid og fjölmargra annarra stefnumótaa...
Stjörnulífið: Laumugifting í helli - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Stjörnulífið: Laumugifting í helli - Vísir
Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni. Laumubrúðkaup í helli Gerður Arinbjarnardóttir, betur þekkt sem Gerður...