Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkjanna, og verulegir hagsmunir eru undir að mati framkvæmdastjóra Ferðamálastofu.
Talsverð viðhöfn var í Leifsstöð í morgun, þegar von var á Airbus-þotu Air China frá kínversku höfuðborginni Beijing.
Þetta var í fyrsta skiptið sem flogið var beint frá Kína með Ísland sem áfangastað.
Leikbreytir, segir sendiherrann
„Þetta er veruleg aukning á tvíhliða samskiptum. Ég kalla þetta leikbreyti (e. gamechanger) í 55 ára sögu stjórnmálasambands Íslands og Kína,“ sagði He Rulong sendiherra Kína á Íslandi í tilefni þessa.
Flogið verður þrisvar í viku - ferðin tekur um fjórtán og hálfan tíma og fyrst í stað verður millilent í Kaupmannahöfn.
Verulegir hagsmunir undir
Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu segir þetta hafa mikla þýðingu fyrir ferðaþjónustuna. „Kínverjar hafa verið hratt vaxandi hópur hjá okkur undanfarin ár og með þessu beina flugi má gera ráð fyrir að sú þróun haldi áfram. Ef 50.000 ferðamenn bætast við þá sem þegar koma, þá eru það tugir milljarða. Þannig að þetta eru verulegir hagsmunir sem eru undir.“
Í sama streng tekur Haukur Hauksson framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Bjarmalands sem m.a. býður upp á ferðir til Kína.
„Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir einn stærsta markað sem er að opnast fyrir okkur í ferðaþjónustunni,“ segir Haukur.
Hvað þýðir þetta fyrir þitt fyrirtæki? „Við erum að auka í og fara lengra austur á bóginn.“
Vélin var nánast fullsetin í þessari fyrstu Íslandsferð - og margir að koma hingað í fyrsta sinn. Meðal þeirra var Henng Wang sem leist nokkuð vel á landið við fyrstu sýn en fannst heldur kalt.
Mikilvægt fyrir sjávarútveg og ferðaþjónustu
Og litlu færri fóru svo með vélinni til baka - til Beijing. Meðal þeirra var Sigríður Ragnarsdóttir sem var á leið á sjávarútvegssýningu.
„Þetta er mjög mikilvægt bæði fyrir sjávarútveginn og ferðaþjónustuna. Og stórkostlegt tækifæri fyrir Íslendinga að kynnast Kína. Sjálf er ég að fara í fyrsta skiptið þangað.“
Skiptir máli fyrir fraktina
Ólafur Hannesson var líka í hópi farþega, en hann hefur átt talsverð viðskipti við Kína.
„Þetta flug mun, að ég vona og tel, gera það að verkum að mjög margir sem hefðu miklað fyrir sér að fara þarna út vilji taka tækifærið og stökkva. Bara í eina flugvél - og þú ert kominn til Kína.“
Nú átt þú sjálfur í viðskiptum við Kínverja - skiptir þetta máli fyrir þína starfsemi? „Já, og ég tala nú ekki um fyrir fraktflugið - þarna erum við komin með beint flug fyrir fraktina sem skiptir máli, sérstaklega þegar þú ert kominn með ferskvöruna.“