Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi Suðursveitunga sem haslað hafa sér völl í ferðaþjónustu en halda þó enn í sauðfjárbúskap.
Samfélagsbyltingin sem orðin er í Suðursveit með mikilli fjölgun ferðamanna er tekin fyrir og meðal annars heimsótt glæsihótel sem Skúli Gunnar Sigfússon, kenndur við Subway, hefur opnað í landi Reynivalla.
Þáttaröðin Um land allt hóf fyrst göngu sína á Stöð 2 árið 2012 og hafa síðan verið framleiddir um 150 þættir. Núna bætist ný þáttaröð við með alls sex þáttum og verður sá fyrsti frumsýndur á Sýn+ næstkomandi miðvikudagskvöld, 28. október, klukkan 19:20.
Sem fyrr eru samfélög heimsótt vítt og breitt um landið. Við kynnumst sögu, náttúru og mannlífi viðkomandi staða og héraða. Heilsað er upp á fólk í leik og starfi og hlýtt á sjónarmið sem helst brenna á fólki í ólíkum byggðum.
Í fyrsta þættinum á miðvikudagskvöld verða helstu sögustaðir síðustu aftökunnar á Íslandi heimsóttir. Aftökustaðurinn var á Þrístöpum í Vatnsdalshólum en þar voru þau Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir hálshöggvin árið 1830 fyrir morð á tveimur mönnum. Morðin voru framin tveimur árum fyrr á jörðinni Illugastöðum á Vatnsnesi.
Í þáttaröðinni verður einnig fjallað um sveitabyggðina á Vatnsnesi, farið í Vatnsdal og Þing, Þórshöfn og Langanes verða heimsótt sem og Suðursveit.
Hér má sjá nokkur dæmi um viðfangsefni nýjustu þáttaraðarinnar Um land allt: