„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, um innleiðingu nýs einkunnakerfis í Kastljósi. Hann segir marga grunnskóla þegar komna langt í undirbúningi og því ekki raunhæft að snúa við.
Stefnt er að því að nemendur í 10. bekk útskrifist næsta vor með tölueinkunnir á kvarðanum 4-10 í stað bókstafseinkunna. Jón Páll segir breytingarnar ekki endilega slæmar en gagnrýnir hversu hratt þær hafi verið innleiddar.
Jón Páll var meðal þeirra sex skólastjórnenda sem eiga sæti í skólamálanefnd sem gagnrýndu hvernig ráðherra hefur staðið að breytingum á einkunnagjöf í aðsendri grein á Vísi í dag.
Nýi einkunnakvarðinn hafi fyrst verið kynntur í byrjun ágúst, þegar undirbúningur skólaársins var þegar langt kominn. Enn sé óvissa um hvernig eigi að túlka einstakar einkunnir og tryggja að þær hafi sömu merkingu milli skóla.
„Það að tryggja að einkunnin sjö í einum skóla þýði það sama og einkunnin sjö í öðrum skóla er flóknara mál en svo að það sé hægt að ákveða þetta á einni skrifstofu og kýla á þetta.“
Hætta á að mistök frá innleiðingu bókstafakerfisins endurtaki sig
Jón Páll segir hættu á að mistök frá innleiðingu bókstafakerfisins endurtaki sig. Sú breyting hafi skapað mikla óvissu meðal kennara og valdið vantrausti milli skóla, foreldra og nemenda.
„Við upplifum það eins og við séum aftur að fara á þennan stað inn í hreina óvissu,“ sagði hann.
Hann telur að skortur á miðlægum stuðningi við skóla flæki innleiðinguna. Skólarnir þurfi sjálfir að útbúa stóran hluta námsefnis, kennsluáætlana og námsmatsverkefna. Meira samræmi og skýrari leiðbeiningar gætu auðveldað breytingarnar.
Jón Páll fagnar því að menntamálaráðherra hafi ákveðið að hægja á innleiðingunni með því að innleiða tölustafina ekki strax inn í alla árganga og að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vilji kanna hvernig staðið hafi verið að málinu.
„Við klárum þetta og vöndum okkur og gerum þetta vel,“ sagði Jón Páll.
Hægt er að horfa á Kastljós í heild sinni í spilaranum hér að neðan.