Meira að segja megrunin hefur gengið ágætlega í dag og það sem fyrirhugað er í kvöldmat er ágætlega hollt og gott.
Áður en þú veist af er samt komið súkkulaðistykki á færibandið við afgreiðslukassann. Eða lakkríspoki.
Eitthvað til að gæða sér á strax. Í bílnum á leiðinni heim?
Í alvörunni! Hvers vegna gerist þetta aftur og aftur hjá okkur?
Er þetta skortur á aga? Við viljalaust verkfæri þegar kemur að þessu gamalkunna trixi búðareigenda, að stilla góðgætinu svona sýnilega upp við afgreiðslukassann.
Erum við kannski bara aumingjar?
Nei, málið er að þótt okkur líði oft eins og viljastyrkurinn einfaldlega hverfi og við séum að svíkja öll loforðin okkar (finnum það svo vel um leið og súkkulaðistykkið er búið) erum við reyndar að upplifa eitthvað sem frekar mætti segja að snúist um líffræði og sálfræði.
Til viðbótar við afar úthugsaða verslunarhönnun.
Málið er þetta:
Það er til fyrirbæri sem kallast ákvarðanaþreyta (e. decision fatigue). Hugmyndin á bak við þessa þreytu er að viljastyrkurinn okkar sé meira eins og vöðvi sem verður þreyttur eftir daginn. Sem þýðir að viljastyrkurinn okkar er ekki eitthvað óþrjótandi eða óbrjótandi persónueinkenni okkar.
Þegar við erum orðin svolítið þreytt. Eins og eftir vinnu. Er þessi vöðvi einfaldlega orðinn svolítið þreyttur líka.
Og þá… lætur hann stundum undan.
Enda svo sem ekkert skrýtið. Því allt frá því að við vöknum á morgnana erum við að taka ákvarðanir. Í hvaða fötum ætlum við í vinnuna? Hvað ætlum við að borða í morgunmat? Stærri og smærri atriði eru einfaldlega metin og ákvörðuð allan daginn.
Sem þýðir að stundum þegar við komum loksins að kassanum er vitsmunalegi bensíntankurinn okkar einfaldlega orðinn svolítið tómur. Heilinn leitar ósjálfrátt að auðveldustu leiðinni til að fá skjóta dópamínhleðslu og glúkósa: Súkkulaðið er svarið!
Auðvitað vita verslanir þetta mætavel. Því auðvitað er það engin tilviljun að nammi sé svona sýnilegt við hvern kassa.
Einföldustu ráðin eru kannski þessi:
- Borðaðu eitthvað áður en þú ferð í búðina
- Fylgdu innkaupalista
- Beindu athyglinni markvisst að öðru en namminu þegar þú ert kominn á kassann.