Þúsund ára gömul mynt frá tíma danska konungsins Sveins tjúguskeggs, sonar Haraldar blátannar, var seld á uppboði á þriðjudag fyrir 18.300 evrur, eða 2,5 milljónir íslenskra króna.
Myntin er að öllum líkindum fyrsti formlegi gjaldmiðill Danmerkur, en hún var slegin árið 995 af myntmeistara sem merkti sér hana nafninu Godwine. Myntina sló hann að beiðni konungsins sem hafði fyrirmyndina frá Bretlandseyjum þar sem myntir voru þegar komnar í notkun.
Á myntinni stendur: „ZVEN REX AD DENER“, sem útleggst á íslensku nútímamáli sem „Sveinn, konungur Dana“ og á henni miðri er andlit konungsins. Á hinni hlið myntarinnar stendur „GOD-WINE M-AN D-NER“, sem er aðeins óræðara en þýðir „Godwine, myntmeistari meðal Dana“.
Danska ríkisútvarpið greinir frá sölu myntarinnar.
Aðeins átta myntir til
Fyrsti eigandi myntarinnar sem vitað er um var dansk-norskur myntsafnari að nafni Ole Devegge sem fæddur var árið 1772. Hið danska konunglega mynt- og orðusafn keypti myntina af Devegge en þaðan rataði hún til auðmannsins Lars Emils Bruun árið 1922.
Myntin hefur nú fengið nýjan eiganda en ekki hefur verið gefið upp hver hann er. Aðeins sjö aðrar sambærilegar myntir eru til en þessi er sú eina sem er ekki á safni heldur í einkaeigu.