Það tekur um tíu daga að draga nýja Ölfusárbrú yfir ána, á sinn stað. Ferðalagið nemur 330 metrum og hún fer um fimm metra á klukkustund.
Brúin var smíðuð í einingum í Póllandi og síðustu mánuði hefur hún verið sett saman á bökkum Ölfusár.
Nú er því lokið og snemma í morgun hófust starfsmenn ÞG verktaka handa við að draga hana frá eystri bakka árinnar yfir á þann vestari.
Tekur 8-10 daga
„Við áætlum að þetta taki 8-10 daga að draga yfir alla lengdina,“ segir Þorvaldur Hrafn Gissurarson forstjóri ÞG verktaka.
„Hún er um 330 metrar að lengd, heildarþyngdin er rétt um 2.000 tonn,“ segir hann um stærð brúarinnar.
50 sentímetrar í einu
Að flytja langa og þunga brú krefst mikils mannafla.
Að verkinu koma um 70 manns sem vinna með öflugan tækjabúnað.
„Það er búið að hengja í brúna gríðarlega öfluga tjakka og búnað sem draga hana um það bil 50 sentímetra í einu. Þannig er þetta gert skref fyrir skref.“
Spurður hversu langt brúin fari á degi hverjum svarar Þorvaldur: „Við erum að flytja hana um það bil 5 metra á klukkustund, eins og það er núna.“
65 metra turn er næsta verkefni
Þegar brúin er komin á sinn stað tekur næsti áfangi verksins við.
„Að reisa 65 metra háan turn hér í Laugdælaeyju sem er hið eiginlega burðarvirki brúarinnar. Sem stögin sem halda uppi brúnni festast síðan við,“ segir Þorvaldur.
Áætluð verklok eru haustið 2028. „Í ljósi þess að við erum að ná þessum áfanga þá erum við vel á undan áætlunum. Okkar markmið er að skila brúnni á undan áætlun,“ segir Þorvaldur.
Hægt er að horfa á sjónvarpsfrétt um verkið í spilaranum hér að neðan. Rétt er að taka fram að í inngangi er rangt farið með hve langan tíma tekur að draga brúna yfir. Hið rétta er 10 dagar.