Neyð á Kúbu hefur aukist eftir að Bandaríkjastjórn herti í ársbyrjun á viðskiptabanni sem hefur verið í gildi í yfir sex áratugi. Á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag og á morgun er rædd ályktun um niðurfellingu bannsins. Slíkar ályktanir hafa verið samþykktar árlega síðan 1992. Það hefur þó enginn vald til að fella bannið úr gildi nema Bandaríkjaþing. Sendiherra Kúbu gagnvart Íslandi segir viðskiptabannið stríð gegn landinu.
Bandaríkjastjórn herti viðskiptabann á Kúbu í byrjun árs og síðan hefur verið mikill skortur á olíu. Þá hefur Trump hótað ríkjum tollum sem að selja Kúbverjum olíu. „Þetta hefur skapað þjóð okkar ómæld vandræði, einkum þegar kemur að olíuviðskiptum; fyrir heilbrigðiskerfið, skólana, landbúnað, fæðuöflun, allt. Svo að allt samfélagið finnur fyrir skorti á olíu,“ segir Raúl Delgado, sendiherra Kúbu gagnvart Íslandi. Hann er með aðsetur í Svíþjóð en var hér á landi á dögunum.
Hann segir áhrifanna af hertu viðskiptabanni einnig gæta á spítölum. Þar sé oft rafmagnslaust með þeim afleiðingum að fresta þurfi aðgerðum. „Þetta er í andstöðu við alþjóðalög og samræmist ekki stofnskrá Sameinuðu þjóðanna. Svo að þeir hafa þverbrotið allt í þessari þjóðarmorðsstefnu gagnvart Kúbu. Þetta er stríð gegn Kúbu, þögult stríð,“ segir sendiherrann.
Til að bregðast við skorti á olíu hafa Kúbverjar í auknum mæli nýtt sér sólarljós til rafmagnsframleiðslu. Slíkum orkuverum hefur verið fjölgað. „Til að efla rafmagnið sem við þurfum daglega en skorturinn hefur verið afar tilfinnanlegur.“
Bandaríkin settu viðskiptabann á Kúbu 1962 eftir að kommúnistastjórnin komst til valda og það er enn í gildi. Trump hefur hert á banninu á árinu. Eins hefur hann hótað því að taka yfir stjórn landsins.