Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var ein þeirra sem sagt var upp hjá Reykjavíkurborg í dag. Hún greinir frá þessu í færslu á Facebook.
Hildur hafði starfað hjá borginni í rúm 18 ár.
Hún var á leið til útlanda í morgun þegar hún sá fréttir um leynifund í Ráðhúsinu. Þegar hún lenti á flugvelli erlendis sá hún að hún hafði fengið fundarboð á meðan hún var í flugi og uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg.
Boðin sálfræðiþjónusta
Skömmu seinna fékk hún póst frá yfirmanni þar sem henni var sagt að henni stæði til boða að „tala við eitthvað fólk eða einhverja sálfræðistofu“.
Hildur segist sár að svona hafi verið farið að uppsögninni. „Ég hef sinnt starfinu mínu af svo ógeðslega mikilli samviskusemi og metnaði að stundum hefur mér fundist ég ganga alltof langt og fram af sjálfri mér. Mér hefði þótt örlítið meiri sómi af því að kannski þakka mér fyrir þessa tæpu tvo áratugi eða... eða bara eitthvað,“ skrifar hún.
50 manns var sagt upp í miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar í dag.