Hildi sagt upp hjá borginni

Baráttukonan og verkefnastjórinn Hildur Lilliendahl Viggósdóttir var á leið til útlanda í dag þegar hún sá fréttir um að borgarstjórn Reykjavíkur væri á lokuðum fundi um niðurskurð í starfemi borgarinnar. Hildur hefur verið starfsmaður borgarinnar í 18 ár.
„Um klukkan 16 í gær kvaddi ég vinnufélaga mína og sagði „sjáumst á mánudaginn“ eftir að hafa undirbúið fjögurra daga fjarveru mína eins rækilega og ég mögulega gat. Í morgun sat ég á Keflavíkurflugvelli og sá fréttir um leynifund í Ráðhúsinu. Spurði skrifstofuna hvað væri að gerast en fékk engin svör,“ skrifar Hildur á Facebook-síðu sína.
Hún steig upp í flugvélina. Á meðan fluginu stóð þróuðust málin áfram hjá borginni.
„Á meðan ég var í flugi fékk ég fundarboð, sem ég eðlilega sá ekki, og í rúllustiga á flugvelli á leið í lest fékk ég uppsagnarbréf frá Reykjavíkurborg á ísland punktur is. Svo kom einhver póstur um að yfirmanni mínum þætti leiðinlegt að ég hafi ekki komist á fundinn áður en ég var rekin og mér bent á mér standi til boða að tala við eitthvað fólk eða einhverja sálfræðistofu en ekki væri óskað eftir frekara vinnuframlagi frá mér.“
Hildi er orða vant eftir að hafa fengið uppsögnina.
„Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Átján og hálft ár. Ég hef sinnt starfinu mínu af svo ógeðslega mikilli samviskusemi og metnaði að stundum hefur mér fundist ég ganga alltof langt og fram af sjálfri mér. Mér hefði þótt örlítið meiri sómi af því að kannski þakka mér fyrir þessa tæpu tvo áratugi eða ... eða bara eitthvað. En svona er þetta. Ég er sár og leið og reið og vonsvikin en ég er í útlöndum í nokkra daga og ætla að reyna að njóta þess. Svo kemur bara nóvember og ég fer að æfa mig í nýju lífi.“
Hildur hefur verið mikið á milli tannana á fólki og til umfjöllunar í fjölmiðlum vegna hispurslausrar tjáningar og baráttu fyrir réttindum kvenna. Sumarið 2020 velti stjórnmálafræðiprófessorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson því upp hvers vegna Hildur héldi vinnunni hjá Reykjavíkurborg, vegna þess að hún var uppvís að grófum ummælum á netinu árið 2014.
Árið 2017 kallaði Hildur sjónvarpsmanninn Sindra Sindason „epalhomma“, sem varð til þess að útvarpsmaðurinn Heimir Karlsson, sem starfaði hjá sama fjölmiðlafyrirtæki, velti því upp hvort hún yrði látin líða fyrir tjáninguna sem opinber starfsmaður. „Epalhommi“ var síðan valið orð ársins 2017 í kosningu sem RÚV, Stofnun Árna Magnússonar og Mímir, félag stúdenta í íslensku og almennum málvísindum við Háskóla Íslands stóðu að.
Í færslu sinni í kvöld segist Hildur hafa „óskaplega lítinn áhuga á að lesa athugasemdir frá ókunnugum sem fagna þessu persónulega áfalli mínu“.