Samfylkingin í Reykjavík mótmælir harðlega nýjustu hrinu uppsagna hjá Reykjavíkurborg. Segir flokkurinn að ekki hafi verið á nokkurn hátt sýnt fram á nauðsyn þess að ráðast í uppsagnirnar og fullyrðingar um að fjárhagsstaða borgarinnar kalli á slíkar aðgerðir eigi sér enga stoð í veruleikanum, heldur lygum um fjárhag borgarinnar. Borgarfulltrúar Vinstrisins gagnrýna harðlega að fundi borgarstjórnar þar sem áform um uppsagnirnar voru lagðar fram hafi verið lokað.
Segja uppsagnirnar hjá borginni fullkomlega óþarfar - „Farið með endurteknar lygar um stöðu Reykjavíkur“