Maðurinn var handtekinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 4. október og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október daginn eftir.
Maðurinn var handtekinn þegar hann kom með flugi frá Portúgal, þar sem hann er búsettur. Lögreglan ætlaði að handtaka hann í umfangsmiklum aðgerðum í september en hann var þá ytra. Sautján manns voru handteknir vegna málsins 22. september. Sex þeirra voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Öllum sautján hefur síðan verið sleppt úr haldi.
Eftir að gæsluvarðhald mannsins rann út var ekki farið fram á að það yrði framlengt heldur var hann úrskurðaður í farbann til föstudagsins í síðustu viku. E. Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn rannsóknarsviðs Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að ekki hafi verið talin ástæða til að krefjast framlengingar þess.
Rannsókn málsins sé þó enn í fullum gangi og miði vel. Einhverjir þeirra sem handteknir voru séu enn með réttarstöðu sakbornings.