50 manns verður sagt upp í miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Alls fækkar stöðugildum um 74 á fimm sviðum. Þetta er þriðji og síðasti áfanginn við fækkun stöðugilda í miðlægri stjórnsýslu hjá borginni.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
„Samtals 50 starfsmenn fá beina uppsögn en fækkun kemur að öðru leyti til vegna starfsmannaveltu, tímabundinna starfa og stöðvunar ráðninga,“ segir þar
Starfsmennirnir starfa á fimm sviðum og tveimur skrifstofum. Af þeim verður þremur boðin önnur laus störf.
Talið er að aðgerðirnar skili um 1,3 milljörðum í varanlegan árlegan sparnað.
Fréttastofa greindi frá því fyrr í dag að uppsagnir tuga starfsmanna hefðu verið til umræðu á lokuðum borgarstjórnarfundi í morgun. Honum lauk upp úr klukkan 10.
Síðan nýr meirihluti tók við hefur Reykjavíkurborg fækkað u.þ.b. 130 stöðugildum í þremur áföngum.
Fyrr á árinu var ráðist í uppsagnir á skóla- og frístundasviði, skrifstofu borgarstjóra og velferðarsviði.
86 var sagt upp á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði borgarinnar í ágúst. 32 bauðst vinna aftur og 29 þáðu það boð. Í sumarbyrjun ákvað borgarráð að leggja niður 18 störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara.
Aðgerðirnar í dag ná til mannauðs- og starfsumhverfissviðs, fjármála- og áhættustýringarsviðs, þjónustu- og nýsköpunarsviðs, umhverfis- og skipulagssviðs og menningar- og íþróttasviðs auk skrifstofu borgarlögmanns og skrifstofu borgarstjórnar.
Í tilkynningu frá borginni segir að fækkun starfsfólks nái fyrst og fremst til miðlægrar stjórnsýslu, innri þjónustu og stjórnunarstarfa en ekki starfa sem sinna daglegri þjónustu við borgarbúa. Talið er að aðgerðirnar hafi samtals lækkað launakostnað um 2,3 milljarða króna á ári.
Næstu aðgerðir hagræðingarhóps borgarstjórnar munu snúa að fjarvistum og veikindahlutfalli í borginni, segir í tilkynningu.
Fréttin hefur verið uppfærð.