Fimmtíu sagt upp hjá borginni í dag
Fækka á stöðugildum um 74 í miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Fimmtíu verður sagt upp og ráðningar verða stöðvaðar.
Borgarstjórn samþykkti í morgun umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir sem fela meðal annars í sér uppsagnir 50 starfsmanna á fimm sviðum og tveimur skrifstofum borgarinnar. Þremur þeirra verður boðið annað laust starf innan borgarkerfisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þorsteini Gunnarssyni borgarritara.
Fækka á um 74 stöðugildi í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar. Auk beinna uppsagna verður stöðugildum fækkað með því að ráða ekki í störf sem losna, láta tímabundnar ráðningar renna út og nýta náttúrulega starfsmannaveltu.
50
Um er að ræða þriðja og síðasta áfanga þeirrar fækkunar stöðugilda sem nýr meirihluti borgarstjórnar hefur ráðist í frá því hann tók við í júní. Samtals hefur verið ákveðið að fækka stöðugildum um 130 á tímabilinu og áætlar borgin að aðgerðirnar lækki árlegan launakostnað um 2,3 milljarða króna. Þar af eiga aðgerðirnar sem …