Gengst við dul­nefninu en vill samt ekki kannast við það - Vísir

Gengst við dul­nefninu en vill samt ekki kannast við það - Vísir

Gengst við dul­nefninu en vill samt ekki kannast við það - Vísir

Páfagaukagarðurinn kom út við dularfullar aðstæður sumarið 2025 en ekki nóg með að höfundurinn kæmi fram undir dulnefni heldur var útgefandinn, Bannaðar bækur – Edisjón Pósthúmus, einnig óþekktur semog umbrotsmaðurinn sem kom fram undir dulnefninu Tvífygli.

Útgáfa bókarinnar var óhefðbundin að því leyti að bókin barst í pósti til útvalinna einstaklinga í bókmenntaheiminum. Aðeins eitt eintak bókarinnar fór í almenna sölu en það barst sem gjöf til bóksalans Einars Björns Magnússonar í Skáldu með leiðbeiningum um að bókin ætti að kosta þrjátíu þúsund krónur og yrði áfram til sýnis í búðinni í þrjá mánuði þó búið væri að selja hana

„Ég veit ekkert meira. Ég er ekki búinn að lesa bókina en það stendur á bakkápunni að um sé að ræða glæpasögu og höfundurinn sé þjóðþekktur,“ sagði Einar Björn á sínum tíma. Bókin væri sú dýrasta í búðinni og hafði enginn enn boðið í hana þegar blaðamaður ræddi við Einar.

Leiðbeiningarnar sem Einari bárust.

Þó nokkur fjöldi fólks úr bókmenntaheiminum fékk bókina senda til sín, þar á meðal Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur sem sagði um að ræða hörkusögu um alþjóðlega glæpi með tengsl við Ísland, spillta auðmenn, afundnar löggur, hátæknimorð, tegundadauða, kynusla og lærdóm fyrir spilltan heim.

„Akörn (flott dulnefni!) er greinilega alvöruhöfundur sem kann til verka. Við þekkjum það frá útlöndum að þekktir höfundar vilja prófa eitthvað nýtt, þar með líka nýtt höfundarsjálf, rífa sig frá því vörumerki sem höfundarnafn þeirra er,“ sagði Guðmundur Andri á sínum tíma.

Rannsökuðu málið

Skömmu eftir útgáfu bókarinnar hófu dagskrárgerðarmennirnir Jóhannes Ólafsson og Tómas Ævar Ólafsson formlega rannsókn á málinu í þættinum Bara bækur á Rás 1 og reyndu að komast til botns í málinu. 

Þeir sem voru orðaðir við gjörninginn voru meðal annars fyrrnefndur Guðmundur Andri Thorsson, Bragi Páll Sigurðarson, Steinar Bragi, Eiríkur Örn Norðdahl, Jón Örn Loðmfjörð og Hermann Stefánsson sem þótti líklegastur.

Jóhannes og Tómas ræddu meðal annars við málfarsráðgjafana Guðrúnu Línberg Guðjónsdóttur og Önnu Sigríði Þráinsdóttur sem töldu báðar ólíklegt að um gervigreindarskrif væri að ræða. Guðrún giskaði þó á að um ungan höfund væri að ræða út frá undirliggjandi enskum áhrifum í setningagerð og uppsetningu. 

Eiríkur Örn taldi sig vissan um það hver Akörn væri.

Þeir ræddu einnig við rithöfundinn Eirík Örn Norðdahl sem var einn þeirra sem fékk sent eintak af bókinni og var jafnframt viss um það hver hefði skrifað bókina.

„Ég ætla ekki að gefa það upp en ég veit alveg hver skrifaði þessa bók,“ sagði Eiríkur Örn og bætti við: „Ég held að ef maður les hana og þekkir höfundinn þá finnur maður alveg út úr því.“

Sagðist ekki þekkja manninn

Loks ræddi Jóhannes við Hermann Stefánsson sem var talinn líklegastur til að hafa skrifað bókina en hann hafði einmitt fengið eintak af bókinni.

„Ég þekki ekki manninn en ég hef fengið bók. Ég hef ekki lesið hana, byrjaði aðeins á henni og þetta er gott,“ sagði Hermann sem bætti við að hann fengi reglulega sendingar undir dulnefni eða engu nafni.

Kápa Páfagaukagarðsins.

„Ég hef fengið alls konar sendingar. Fólk sendir mér dulnefnt, sem er smá krípí en samt bara skemmtilegt ef það er ekki einhver brjálæðingur. Nú veit ég ekkert hvort þetta er brjálæðingur eða ekki,“ sagði hann um höfund Páfagaukagarðsins sem hann hafði haft gaman af.

Haustið 2025 bættist við nýr kafli í sögunni af Páfagaukagarðinum en þá barst Skáldu fullur kassi af annarri prentun þessarar umtöluðu skáldsögu. Það eina sem fylgdi sendingunni var miði sem á stóð „Útsöluverð 3.333 kr.“ og hefur hún verið til sölu í Skáldu síðan þá.

Höfundur vísar á umbrotsmann sem vísar á útgefanda

Blaðamaður sló á þráðinn til Hermanns sem var á leið á fund með manni á kaffihúsi. Þegar blaðamaður nefndi Akörn og Páfagaukagarðinn á nafn vildi Hermann ekki kannast við það.

„Þetta hlýtur að vera einhver prentvilla, umbrotsmenn gera alls konar sem maður veit ekkert um. Hringdu í Aðalstein Svan umbrotsmann, ég hugsa að þetta sé á hans ábyrgð,“ sagði Hermann hlæjandi.

Þú kannast ekki við þetta?

„Ég svara þessari spurningu hvorki játandi né neitandi,“ sagði höfundurinn þá.

Hermann Stefánsson. Algleymi kemur út í Þýskalandi í haust.

Blaðamaður heyrði þvínæst í Aðalsteini Svani sem kom af fjöllum þegar Páfagaukagarðurinn var borinn undir hann.

„Ég man ekkert hvaðan þessi texti kom, ég sem ekki textana á bókakápur. Ég man ekkert hvaðan það kom, ef það er ekki Hermann þá er það örugglega útgefandinn,“ sagði Aðalsteinn og átti þá við Jakob F. Ásgeirsson hjá Uglu.

„Hermann er náttúrulega ólíkindatól eins og sést á kvótunum fyrir þessa nýju bók, þau eru mjög skemmtileg. Ég firra mig því allavega að hafa sett þetta þarna sjálfur óbeðinn. Það gerði ég aldrei, ábyrgðin er útgefandans,“ sagði Aðalsteinn.

Þá heyrði blaðamaður í Jakobi hjá Uglu sem var jafn forviða og Aðalsteinn.

„Ég man ekkert eftir þessu,“ sagði Jakob og bætti við: „Þetta hlýtur að vera frá Hermanni komið, hann hlýtur að vera að segja frá þessu sjálfur.“

„Ég get hvorki staðfest né neitað þessari sögusögn og vísa til Hermanns,“ sagði Jakob að lokum.

#dulnefninu #gengst #samt #vill #við


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262954425d/gengst-vid-dul-nefninu-en-vill-samt-ekki-kannast-vid-thad

📰 Aðrar fréttir

Top reasons online vehicle appraisals secure fast cash
📅 27.10.2026 👁️ 0
Top reasons online vehicle appraisals secure fast cash
Selling a used vehicle privately is a stressful process that consumes your valuable time. Creating online advertisements, answering phone calls, and o...
Segist hafa neyðst til að vera góða stelpan til verndar kynvæðingu sem barnastjarna
📅 27.10.2026 👁️ 1
Segist hafa neyðst til að vera góða stelpan til verndar kynvæðingu sem barnastjarna
Natalie Portman komst snemma að því að það að alast upp í Hollywood fól í sér að verja sig fyrir þeirri ímynd sem gerði hana fræga.Óskarsverðlaunaleik...
Segja uppsagnirnar hjá borginni fullkomlega óþarfar - „Farið með endurteknar lygar um stöðu Reykjavíkur“
📅 27.10.2026 👁️ 1
Segja uppsagnirnar hjá borginni fullkomlega óþarfar - „Farið með endurteknar lygar um stöðu Reykjavíkur“
Samfylkingin í Reykjavík mótmælir harðlega nýjustu hrinu uppsagna hjá Reykjavíkurborg. Segir flokkurinn að ekki hafi verið á nokkurn hátt sýnt fram á ...
Maríu Lilju sagt upp hjá Samstöðinni – „Ráðningasambandi mínu var rift, á afar hæpnum grundvelli svo það sé sagt“
📅 27.10.2026 👁️ 1
Maríu Lilju sagt upp hjá Samstöðinni – „Ráðningasambandi mínu var rift, á afar hæpnum grundvelli svo það sé sagt“
María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp greinir frá því að henni hafi verið sagt upp hjá Samstöðinni. Hún deilir við stöðina um uppsagnarfrest og ætl...
Hörð gagnrýni á sölu Ljósleiðarans: „Þetta er ekkert öðruvísi en að selja vegakerfið, raforkudreifingu, vatnslagnir og fleira“
📅 27.10.2026 👁️ 1
Hörð gagnrýni á sölu Ljósleiðarans: „Þetta er ekkert öðruvísi en að selja vegakerfið, raforkudreifingu, vatnslagnir og fleira“
Áform meirihlutans í borginni að selja Ljósleiðarann eru harðlega gagnrýnt og er sagt að þannig sé verið að einkavæða innviði, aðrir segja að um sé að...
Gruna að Flavio Bolsonaro sé flúinn úr landi – Grunaður um peningaþvætti
📅 27.10.2026 👁️ 1
Gruna að Flavio Bolsonaro sé flúinn úr landi – Grunaður um peningaþvætti
Brasilíska lögreglan telur að Flavio Bolsonaro, forsetaframbjóðandi, sé flúinn úr landi. Hann var krafinn um að skila inn vegabréfi vegna þess að hann...
Russell Brand told police he never had non-consensual sex
📅 27.10.2026 👁️ 0
Russell Brand told police he never had non-consensual sex
His trial hears statements he gave to police between 2023 and 2025, denying allegations against him.
Engin bein þjónustustörf lögð niður
📅 27.10.2026 👁️ 0
Engin bein þjónustustörf lögð niður
Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og formaður borgarráðs, segir uppsagnirnar sem gripið var til í dag miða að því að verja og bæt...
Gervigreindarbólan nú þegar sprungin í Kína
📅 27.10.2026 👁️ 0
Gervigreindarbólan nú þegar sprungin í Kína
Milljarðar bandaríkjadala hafa tapast á kínverskum hlutabréfamörkuðum undanfarna mánuði í skugga áhyggja af framtíð gervigreindar og gervigreindarkapp...
Erfitt og flókið að átta sig á nýjum einkunnum
📅 27.10.2026 👁️ 0
Erfitt og flókið að átta sig á nýjum einkunnum
10. bekkingarnir Guðdís Magnúsdóttir í Akurskóla, Urður Óskarsdóttir í Laugalækjarskóla og Jakob Ægisson í Álfhólsskóla mættu í Spegilinn til að ræða ...
„Hrika­legt högg“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 1
„Hrika­legt högg“ - Vísir
Fækkað var um sjötíu og fjögur stöðugildi hjá Reykjavíkurborg í morgun og þar af fengu fimmtíu starfsmenn beina uppsögn. Í tilkynningu borgarinnar kem...
Engin á­stæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 1
Engin á­stæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur - Vísir
Maðurinn var handtekinn í flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 4. október og úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október daginn eftir.  Maðurinn var handtek...
Sveitarfélög á Norðurlandi eystra vilja aðalstöð í sameinuðu lögregluembætti á Akureyri
📅 27.10.2026 👁️ 1
Sveitarfélög á Norðurlandi eystra vilja aðalstöð í sameinuðu lögregluembætti á Akureyri
Sveitarfélög á Norðurlandi eystra sjá tækifæri í stærri lögregluembættum, að því er segir í umsögn í samráðsgátt. Formaður þeirra segir aðalstöð embæt...
Fleiri uppsagnir ekki á dagskrá
📅 27.10.2026 👁️ 2
Fleiri uppsagnir ekki á dagskrá
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir fleiri uppsagnir ekki á dagskrá innan borgarkerfisins.„Næstu aðgerðir hagræðingarhóps munu snúa að því að rýna ...
„Fyrst og fremst erfitt“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
„Fyrst og fremst erfitt“ - Vísir
Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn. Í tilkynningu segir að um sé að ræða síðasta áfanga við f...
„Við ætlum ekki að selja félagið ódýrt“
📅 27.10.2026 👁️ 2
„Við ætlum ekki að selja félagið ódýrt“
„Niðurstaðan getur orðið að Orkuveitan eigi áfram allt fyrirtækið. Það er auðvitað ekkert útilokuð niðurstaða [...] Við ætlum ekki að selja félagið ód...
Velja þann sem rabbíninn segir þeim að kjósa
📅 27.10.2026 👁️ 2
Velja þann sem rabbíninn segir þeim að kjósa
Ísraelsmenn kjósa til þings í dag og ljóst er að árásin 7. október fyrir þremur árum, sú mannskæðasta í sögu landsins, hefur veruleg áhrif á val, ekki...
British holidaymaker dies after collapsing at hotel in Puerto del Carmen
📅 27.10.2026 👁️ 2
British holidaymaker dies after collapsing at hotel in Puerto del Carmen
A British holidaymaker has died after collapsing in her hotel room in Puerto del Carmen, Lanzarote, during a trip with her husband and friends.42-year...
Vopnahlé hafið í Oleshky – Melania Trump miðlaði málum
📅 27.10.2026 👁️ 2
Vopnahlé hafið í Oleshky – Melania Trump miðlaði málum
Staðbundið vopnahlé tók gildi í og við bæinn Oleshky í Kherson-héraði í Úkraínu í nótt, þriðjudaginn 27. október. Melania Trump, forsetafrú Bandaríkja...
Davíð segir þetta framtíð stefnumótanna: „Þangað erum við að fara“
📅 27.10.2026 👁️ 2
Davíð segir þetta framtíð stefnumótanna: „Þangað erum við að fara“
Davíð Símonarson, framkvæmdastjóri Smitten, segir að það stefni allt í að fólk geti beðið gervigreindarforrit um maka. Davíð ræddi um stefnumótamarkað...
Orðið á götunni: Enn og aftur verður kennaraforystan sér til skammar – eineltisfræðin alveg upp á 10!
📅 27.10.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Enn og aftur verður kennaraforystan sér til skammar – eineltisfræðin alveg upp á 10!
Orðið á götunni er að kennarar og skólastjórnendur fari offari gegn Ingu Sæland menntamálaráðherra og löngu tímabærra áforma hennar um að koma skikki ...
Niðurskurðarhnífurinn á lofti hjá borginni - 50 reknir og boðin sálfræðiaðstoð
📅 27.10.2026 👁️ 2
Niðurskurðarhnífurinn á lofti hjá borginni - 50 reknir og boðin sálfræðiaðstoð
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að reka 50 starfsmenn á fimm sviðum og tveimur skrifstofum í dag. Þremur þeirra verða boðin önnur laus störf. Þetta kemu...
Hvað kostar að ferðast frá landsbyggð til borgarinnar?
📅 27.10.2026 👁️ 3
Hvað kostar að ferðast frá landsbyggð til borgarinnar?
Íbúar landsbyggðarinnar segja margir að vegið sé að byggðum fjarri borginni með síhækkandi ferðakostnaði, breytingum á loftbrú, kílómetragjaldi og hæk...
Bein út­sending: Hildur svarar fyrir upp­sagnir - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Bein út­sending: Hildur svarar fyrir upp­sagnir - Vísir
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg sem send var á fjölmiðla nú síðdegis segir að stöðugildum hjá Reykjavíkurborg hafi verið fækkað um 74 í dag. Fimmtíu...
Fimmtíu sagt upp hjá borginni í dag
📅 27.10.2026 👁️ 3
Fimmtíu sagt upp hjá borginni í dag
Fimmtíu sagt upp hjá borginni í dag Fækka á stöðu­gildum um 74 í mið­lægri stjórn­sýslu Reykja­vík­ur­borgar. Fimmtíu verður sagt upp og ráðn­ingar ve...
Nota rústa­mynda­vél við leit að Lúð­vík - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Nota rústa­mynda­vél við leit að Lúð­vík - Vísir
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum stýrir aðgerðum í Grindavík en að þeim koma meðal annars aðilar úr rústabjörgunarsveit Landsbjargar sem og sérsveit rík...
50 sagt upp hjá borginni
📅 27.10.2026 👁️ 3
50 sagt upp hjá borginni
50 manns verður sagt upp í miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar. Alls fækkar stöðugildum um 74 á fimm sviðum. Þetta er þriðji og síðasti áfanginn vi...
Fækka um rúm­lega sjö­tíu stöðu­gildi - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Fækka um rúm­lega sjö­tíu stöðu­gildi - Vísir
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg.  Greint var frá því í morgun að boðaður hefði verið borgarstjórnarfundur til að ræða hagræði...
Húð­flúr á hálsi kom upp um síbrotamann - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
Húð­flúr á hálsi kom upp um síbrotamann - Vísir
Þetta er meðal þess sem kemur fram í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 20. október og staðfestur af Landsrétti þremur dögum sí...
Men sexually assaulted Philip Young's wife after online ad, court told
📅 27.10.2026 👁️ 2
Men sexually assaulted Philip Young's wife after online ad, court told
Four men stand trial after the woman's ex-husband has pleaded guilty to drugging and raping her.
„Í­búar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 2
„Í­búar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ - Vísir
Fyrir helgi var greint frá áformum Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra um að breyta fyrirkomulagi Loftbrúarinnar. Núna fá íbúar með lögheimili utan s...
Extreme Chill í febrúar í stað septem­ber - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Extreme Chill í febrúar í stað septem­ber - Vísir
„Með því að færa hátíðina frá september yfir í dimmasta hluta vetrarins viljum við skapa henni enn skýrari sérstöðu og nýta einstakt andrúmsloft Reykj...
Veðrið ætti ekki að spilla hrekkja­vöku eins og í fyrra - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Veðrið ætti ekki að spilla hrekkja­vöku eins og í fyrra - Vísir
„Það er bara svona venjulegt haustveður,“ segir Haraldur Eiríksson veðurfræðingur á Veðurstofunni. Hann segir spána auðvitað breytast dag frá degi en ...
Pawel Bartoszek: Tvíhliða samningur við ESB í stað EES myndi ganga nærri stjórnarskránni
📅 27.10.2026 👁️ 3
Pawel Bartoszek: Tvíhliða samningur við ESB í stað EES myndi ganga nærri stjórnarskránni
Það er engan veginn öruggt að EES-samningurinn verði um aldir og ævi. Nokkuð ljóst er að ef Norðmenn telja hagsmunum sínum gagnvart ESB betur borgið ö...
Leigjandi situr í súpunni eftir að hafa leyft ketti að gera þarfir sínar í íbúðinni
📅 27.10.2026 👁️ 3
Leigjandi situr í súpunni eftir að hafa leyft ketti að gera þarfir sínar í íbúðinni
Kærunefnd húsamála hefur úrskurðað að konu beri að greiða fyrrum leigusala sínum, sem er fyrirtæki, bætur eftir að hún leyfði kettinum sínum að gera þ...
Hildur Rós og Elliði í hár saman: „Er þér alvara?“
📅 27.10.2026 👁️ 3
Hildur Rós og Elliði í hár saman: „Er þér alvara?“
Hildur Rós Guðbjargardóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, segir að hvernig Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi hafi talað undanfar...
Gervigreind var beðin um að fjarlægja frægasta einstaklinginn - Fólk ósammála um niðurstöðuna
📅 27.10.2026 👁️ 3
Gervigreind var beðin um að fjarlægja frægasta einstaklinginn - Fólk ósammála um niðurstöðuna
Gervigreindin Grok valdi Cristiano Ronaldo sem frægasta einstaklinginn á mynd af átta þekktum persónum, eftir að hafa verið beðin um að fjarlægja þann...
Yfir 14 þúsund einingar af ólöglegum peptíðum teknar í tollinum – „Þetta er dauðans alvara“
📅 27.10.2026 👁️ 3
Yfir 14 þúsund einingar af ólöglegum peptíðum teknar í tollinum – „Þetta er dauðans alvara“
Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, segir að tollurinn hafi lagt hald á yfir 14 þúsund einingar af ólöglegum peptíðum það sem af er ...
Reykjavíkurborg hundsar vísindin í málefnum barna
📅 27.10.2026 👁️ 3
Reykjavíkurborg hundsar vísindin í málefnum barna
Eldur Smári Kristinsson skrifar: Reykjavíkurborg hefur gefið út uppfærðan gátlista fyrir skóla: „Gátlisti fyrir skóla til að verða transvænir“. (funct...
Ríkis­stjórnin sam­þykkir frum­varp ráð­herra um herta inn­flytj­endalöggjöf - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Ríkis­stjórnin sam­þykkir frum­varp ráð­herra um herta inn­flytj­endalöggjöf - Vísir
Frumvarpið er sagt fela í sér viðamestu breytingar sem gerðar hafa verið á dvalarleyfiskafla útlendingalag í áratug í tilkynningu frá stjórnarráðinu. ...
Metkjörsókn í Ísrael það sem af er degi
📅 27.10.2026 👁️ 3
Metkjörsókn í Ísrael það sem af er degi
Kjörsókn hefur aldrei verið meiri en á fyrri helmingi þessa kjördags. Ísraelar kjósa sér nýtt þing í dag og þjóðin er klofin í afstöðu sinni til forsæ...
Easyjet to introduce high-speed wifi on flights to the Canary Islands
📅 27.10.2026 👁️ 3
Easyjet to introduce high-speed wifi on flights to the Canary Islands
Passengers flying with easyJet to and from the Canary Islands will soon be able to enjoy high-speed internet during their flights, following a new agr...
Segir Ís­lendinga á tíma­mótum og verða að bregðast við - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Segir Ís­lendinga á tíma­mótum og verða að bregðast við - Vísir
Netöryggisráðstefna Fjarskiptastofu fór fram í þriðja sinn á Hótel Hilton í morgun en þangað mættu meðal annars erlendir sérfræðingar, meðal annars fu...
Efins um „einka­fram­tak Norð­manna og Finna“ - Vísir
📅 27.10.2026 👁️ 3
Efins um „einka­fram­tak Norð­manna og Finna“ - Vísir
Greint var frá því í morgun að þeir Alexander Stubb forseti Finnlands og Jonas Gahr Støre forsætisráðherra hefðu rætt símleiðis við Pútín. Þeir hafa s...
Norway and Finland hold rare call with Putin to discuss ending war
📅 27.10.2026 👁️ 3
Norway and Finland hold rare call with Putin to discuss ending war
This is the first time European leaders have had direct communication with Russia's president in more than a year.
Segir frá hjartnæmri ástæðu þess að hann er með aðra hendi í vasa á rauða dreglinum
📅 27.10.2026 👁️ 4
Segir frá hjartnæmri ástæðu þess að hann er með aðra hendi í vasa á rauða dreglinum
John Cena hefur opinberað ástæðuna fyrir því að hann er alltaf með aðra hendi í vasanum þegar hann kemur fram á rauða dreglinum víðs vegar um heiminn....
Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar
📅 27.10.2026 👁️ 4
Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar
Ein vinsælasta kántrísýning Evrópu, A Country Night in Nashville, snýr aftur til Íslands á næsta ári. Hún kemur hingað beint úr sannkallaðri sigurgöng...
70 ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti
📅 27.10.2026 👁️ 4
70 ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti
70 sakborningar eiga að mæta fyrir rétt á mánudag ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti. Þetta kann að vera það sakamál Íslandssögunnar þar sem fles...
Stefnir í veislu í Landsbankamálinu þar sem 70 manns sæta ákæru fyrir fjársvik sem nema hundruðum milljóna
📅 27.10.2026 👁️ 4
Stefnir í veislu í Landsbankamálinu þar sem 70 manns sæta ákæru fyrir fjársvik sem nema hundruðum milljóna
Það var veisla hjá fjölda manns þegar tímabundinn veikleiki skapaðist við uppfærslu kerfa hjá Reiknistofu bankanna seint á síðasta ári.
Passengers evacuated from plane after bomb threat at Gran Canaria Airport
📅 27.10.2026 👁️ 4
Passengers evacuated from plane after bomb threat at Gran Canaria Airport
Passengers arriving in Gran Canaria were taken off their plane and moved to a separate room after a bomb threat triggered a security operation yesterd...