Milljarðar bandaríkjadala hafa tapast á kínverskum hlutabréfamörkuðum undanfarna mánuði í skugga áhyggja af framtíð gervigreindar og gervigreindarkapphlaupi milli Bandaríkjanna og Kína.
STAR 50, vísitala tækni- og nýsköpunarfyrirtækja, í kauphöllinni í Shanghai hefur fallið um 40 prósent síðan í júní. Aðrar vísitölur stórra fyrirtækja hafa fallið um um það bil 20 prósent á sama tíma.
2.400 milljarðar dala horfnir síðan í maí
Samkvæmt Bloomberg hefur þetta fall orðið til þess að 2.400 milljarðar bandaríkjadala hafa þurrkast út af kínverskum hlutabréfamörkuðum síðan í maí.
Hlutabréf tengd gervigreindarfyrirtækjum standa undir meira en 40 prósentum af markaðsvirði hlutabréfamarkaða í Kína og Hong Kong, samkvæmt bandaríska fjárfestingabankanum Goldman Sachs.
Það þýðir að hvers konar verðfall geti haft víðtæk áhrif á markaðina í heild.
Kína og Bandaríkin eiga um þessar mundir í hatrömmu gervigreindarkapphlaupi.
Hagkerfið hefur ekki undan vextinum
Þetta mikla verðfall bendir til þess að þrátt fyrir aðgerðir kínversku ríkisstjórnarinnar til að efla tæknigeiran í Kína, sérstaklega þegar kemur að gervigreind, hafi hagkerfið þar ekki getu til að viðhalda ört vaxandi markaði.
Kínversk stjórnvöld hafa fjárfest mikið í gervigreind, þar á meðal í gegnum fjárfestingasjóð sem dældi peningum inn í þróunarfyrirtæki í þessum mánuði.
Neytendur hafa hins vegar verið tregir til að eyða peningum í mörgum geirum hagkerfisins, þar á meðal í tæknigreinum. Það hefur orðið til þess að mörg tæknifyrirtæki eigi erfitt með að skila hagnaði.
„Arðsemin hefur verið undir væntingum á þessu ári. Á sama tíma hafa Bandaríkin hækkað vexti og eftirspurn innan Kína er afar dræm,“ segir Dan Wang, framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Eurasia Group í Kína.