Þetta er meðal þess sem kemur fram í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 20. október og staðfestur af Landsrétti þremur dögum síðar.
Þar segir að í greinargerð Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sé atvikum lýst svo að í júlí síðastliðnum hafi borist tilkynning um stunguárás. Árásarmennirnir hafi verið farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði og brotaþoli verið fluttur á sjúkrahús.
„Brotaþoli lýsti því að maður með [afmáð] húðflúr hafi stungið sig en varnaraðili er með eitt slíkt áberandi húðflúr á hálsi. Vitni sem var á inni í herberginu með brotaþola þegar árásaraðilar réðust inn, lýsti því að brotaþoli og varnaraðili hafi verið að rífast. Varnaraðili hafi tekið upp hníf og veist að brotaþola.“
Auk þess máls sé maðurinn með 31 opið mál í kerfum lögreglu framin á tímabili frá 27. mars 2025 til 19. október 2026, þar af 28 framin á árinu 2026.
Meðal brotanna sem lögregla týnir til eru frelsisvipting og kynferðisbrot gegn manni í félagi við aðra menn en langflest snúa þau að þjófnaði.
Niðurstaða héraðsdóms, sem staðfest var af Landsrétti, var að fallast á málatilbúnað lögreglunnar um að maðurinn væri líklegur til að halda afbrotum sínum áfram, yrði hann ekki hnepptur í gæsluvarðhald.