„Það er bara svona venjulegt haustveður,“ segir Haraldur Eiríksson veðurfræðingur á Veðurstofunni.
Hann segir spána auðvitað breytast dag frá degi en að við munum sleppa „þokkalega“ frá þessari lægð. Hann segir mesta vindinn vera á suðvesturlandinu en hann verði ekki óvenjulegur.
Fer vestar og ekki inn á land
Í síðustu viku spáði Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur „snarvitlausu veðri“ næsta föstudag. Um helgina kom svo fram að útlit væri fyrir að lægðin sem hafði verið sýnileg í langtímaspám myndi koma fyrr til landsins en fyrstu spár reiknuðu með að sögn veðurfræðings.
Haraldur segir að nú megi sjá í spám að lægðin fari vestar en spáð hafði verið.
„Þetta verður djúp lægð en vonda veðrið nær ekki inn á land.“
Í fyrra var hrekkjavöku frestað vegna slæms veðurs. Haraldur segir að það megi ekki búast við því sama í ár. Það gæti orðið slydda og suðvestanátt og þó svo að veðrið verði kannski „ekki spennandi“ verði ekkert óveður.
„Veðrið ætti allavega ekki að setja neinn strik í reikninginn á hrekkjavöku,“ segir hann og að það verði fínasta veður á laugardag á NorðurNorður- og Austurlandi.