Það er engan veginn öruggt að EES-samningurinn verði um aldir og ævi. Nokkuð ljóst er að ef Norðmenn telja hagsmunum sínum gagnvart ESB betur borgið öðruvísi en með EES samningnum geta Ísland og Liechtenstein engan veginn borið þær stofnanir sem EES-samstarfið kallar á. Þá er líklegasta lausnin tvíhliðasamningur þar sem Evrópusambandið hefði eftirlit með framkvæmd og Evrópudómstóllinn myndi leysa úr ágreiningsefnum en ekki sjálfstæðar stofnanir og sérstakur dómstóll eins og í EES. Hin kosturinn er að ganga í ESB.
Pawel Bartoszek: Tvíhliða samningur við ESB í stað EES myndi ganga nærri stjórnarskránni