Fækka um rúm­lega sjö­tíu stöðu­gildi - Vísir

Fækka um rúm­lega sjö­tíu stöðu­gildi - Vísir

Fækka um rúm­lega sjö­tíu stöðu­gildi - Vísir

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Greint var frá því í morgun að boðaður hefði verið borgarstjórnarfundur til að ræða hagræðingu og hermdu heimildir fréttastofu að tugum yrði sagt upp störfum. Í tilkynningunni segir að stöðugildin 74 séu öll í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar.

Á fundinum í morgun var samþykkt að hlutfall stöðugilda í miðlægri starfsemi Reykjavíkurborgar ætti ekki að vera hærra en 7,5 prósent af heildarstöðugildum borgarinnar en reyndist hlutfallið vera 8,4 prósent í júní 2026.

„Aðgerðirnar fela í sér að 50 starfsmönnum á fimm sviðum og tveimur skrifstofum verður sagt upp störfum en af þeim verður þremur boðin önnur laus störf. Heildaráhrif aðgerðanna munu fela í sér fækkun upp á 73,8 stöðugildi, m.a. vegna starfsmannaveltu, tímabundinna ráðninga og stöðvunar ráðninga. Starfsfólki sem missir vinnuna býðst að sækja sér aðstoð hjá sálfræðingum og aðstoð við atvinnuleit í gegnum ráðningastofu.“

Þessar aðgerðir eigi að skila 1,3 milljörðum í varanlegum árlegum sparnaði.

„Með þessum aðgerðum lýkur þriðja og síðasta áfanga þeirrar umfangsmiklu fækkunar stöðugilda sem við höfum þurft að ráðast í undanfarna mánuði í miðlægri stjórnsýslu. Þetta hafa verið erfiðar en nauðsynlegar ákvarðanir sem ekki eru teknar af léttúð. Að baki þessum tölum er fólk sem hefur sinnt mikilvægum störfum og ég vil þakka því fyrir þeirra framlag til borgarinnar í gegnum árin,“ er haft eftir Hildi Björnsdóttur í tilkynningunni.

130 stöðugildi

Umrædd svið eru mannauðs- og starfsumhverfissvið, fjármála- og áhættustýringarsvið, þjónustu- og nýsköpunarsvið, umhverfis- og skipulagssvið og menningar- og íþróttasvið. Þá náðu uppsagnirnar einnig til skrifstofu borgarlögmanns og skrifstofu borgarstjórnar. Aðgerðirnar náðu hins vegar ekki til skóla- og frístundasviðs eða velferðarsviðs þar sem ráðist var í hagræðingaraðgerðir þar fyrr á árinu.

Fram kemur að þetta sé síðasti áfanginn við fækkun stöðugilda í miðlægri stjórnsýslu. Hins vegar verður áfram miðað við það að stöðugildi fari ekki umfram 7,5 prósent af heildarstarfsmannafjölda borgarinnar.

Frá því að nýr meirihluti tók við eftir kosningar í vor hefur stöðugildum fækkað um 130. Lækkun launakostnaðar er því 2,3 milljarðar króna á ársgrundvelli. 

„Þar undir falla hagræðingartillögur vegna skrifstofu borgarstjóra og borgarritara sem samþykktar voru í borgarráði 25. júní sl., aðgerðir vegna skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs sem samþykktar voru í borgarráði 25. ágúst sl. og þær aðgerðir sem borgarstjórn samþykkti í dag, 27. október.“

Grunnþjónusta í forgangi

Tekið er fram að áfram eigi lögbundin verkefni og grunnþjónusta að njóta forgangs. 

„Fækkunin nær því fyrst og fremst til miðlægrar stjórnsýslu, innri þjónustu og stjórnunarstarfa en ekki til starfa sem sinna daglegri þjónustu við borgarbúa. Jafnframt verður lögð áhersla á að einfalda verklag, draga úr yfirbyggingu og nýta tækifæri sem skapast hafa með stafrænni umbreytingu,“ segir í tilkynningunni.

Markmiðið sé að styrkja rekstrargrundvöll borgarinnar, draga úr kostnaði við yfirbyggingu og tryggja að fjármunir nýtist sem best. 

Í fundargerð fundarins segir að tillaga Hildar um hagræðingaraðgerðirnar var samþykkt með fimmtán atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins gegn átta atkvæðum borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstrisins og Sósíalistaflokksins.

Næstu skref

Áfram verði þó unnið að því að styrkja undirliggjandi rekstur borgarinnar með áframhaldandi aðhaldi.

Hagræðingarhópur meirihlutans, sem Róbert Ragnarsson leiðir, mun næst skoða aðgerðir sem snúa að sölu eigna og innkaupum borgarinnar. Þá verða einnig greindar og lagðar fram tillögur sem snúa að fjarvistum og veikindahlutfalli hjá borginni.

Fréttin hefur verið uppfærð.

#fækka #rúmlega #sjötíu #stöðugildi #vísir

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262954451d/faekka-um-rumlega-sjotiu-stodugildi

📰 Aðrar fréttir

Í fyrsta sinn utan Úkraínu - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Í fyrsta sinn utan Úkraínu - Vísir
Í fréttatilkynningu segir:  „Sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og er liður í því að standa vörð um menningararf Úkraínu og efla ...
Erlent skipafélag kaupir Samskip og dótturfélög
📅 28.10.2026 👁️ 1
Erlent skipafélag kaupir Samskip og dótturfélög
Erlent skipafélag hefur keypt flutningsfyrirtækið Samskip og dótturfélög. Frá þessu greinir Vísir sem segir að starfsmenn Samskipa hafi verið upplýsti...
Þolinmæði Jóns að þrotum komin eftir Kveiksþáttinn: „Ég skil ekki þessa fyrirstöðu og aðgerðaleysi“
📅 28.10.2026 👁️ 1
Þolinmæði Jóns að þrotum komin eftir Kveiksþáttinn: „Ég skil ekki þessa fyrirstöðu og aðgerðaleysi“
Þingmaðurinn Jón Gnarr segir að það þurfi úrræði fyrir börn með flóknan vanda, ekki eftir nokkur ár heldur núna, þolinmæði hans er algjörlega þrotin. ...
Chris Mason: Budget felt cautious despite range of small measures
📅 28.10.2026 👁️ 1
Chris Mason: Budget felt cautious despite range of small measures
The chancellor has had to grapple with a mix of public finances and household finances being a mess.
Skip­verjar skemmti­ferða­skips sitja fastir í Kambódíu - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Skip­verjar skemmti­ferða­skips sitja fastir í Kambódíu - Vísir
Ferðin hófst í október 2024 og ætluðu ferðalangarnir að heimsækja tæplega 150 lönd á þremur og hálfu ári. Í umfjöllun BBC kemur fram að um tvö hundruð...
Bolsonaro kominn til Bandaríkjanna
📅 28.10.2026 👁️ 1
Bolsonaro kominn til Bandaríkjanna
Flavio Bolsonaro, sem tapaði fyrir Lula Da Silva í forsetakosningum í Brasilíu á sunnudag, er lentur í Bandaríkjunum. Myndir voru teknar af honum á fl...
At the scene of Spain's deadly train crash
📅 28.10.2026 👁️ 1
At the scene of Spain's deadly train crash
People have been killed after a Spanish high-speed train collided with another train south of the capital Madrid, making this the country's worst disa...
Dæmdur ofbeldismaður birtir myndskeið af fjölskyldu viðmælanda Kveiks
📅 28.10.2026 👁️ 1
Dæmdur ofbeldismaður birtir myndskeið af fjölskyldu viðmælanda Kveiks
Börkur Birgisson, sem hlotið hefur dóma fyrir alvarlega ofbeldisglæpi, birti á samfélagsmiðli sínum myndskeið með myndum af eiginkonu og syni Andra Má...
Will I get the £100 energy payment and when will I receive it?
📅 28.10.2026 👁️ 1
Will I get the £100 energy payment and when will I receive it?
Here is what you need to know about the payment that millions will receive from January.
Sýna sögu­lega þing­festingu í öðrum sal - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Sýna sögu­lega þing­festingu í öðrum sal - Vísir
Líkt og Vísir hefur fjallað um gaf Héraðssaksóknari nýverið út ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys ásamt 68 öðrum fyrir umfangsmi...
Skagfirðingar æfir yfir hækkun ríkisins á meðan þeir halda að sér höndum
📅 28.10.2026 👁️ 1
Skagfirðingar æfir yfir hækkun ríkisins á meðan þeir halda að sér höndum
Hækka á kílómetragjaldið um ríflega 15% um næstu áramót. Magnús Barðdal, sveitarstjóri í Skagafirði, segir hækkunina bitna illa á sveitarfélaginu sjál...
Braut kyn­ferðis­lega á fatlaðri stjúp­dóttur sinni - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Braut kyn­ferðis­lega á fatlaðri stjúp­dóttur sinni - Vísir
Konan leitaði á Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisbrots þann í mars árið 2024 og sagði að stjúpfaðir hennar hefði brotið gegn henni á heimili henn...
What are the key points from the Budget and how will they be funded?
📅 28.10.2026 👁️ 1
What are the key points from the Budget and how will they be funded?
The BBC's Joe Pike explains key things outlined by the Chancellor.
Senda þúsund her­menn til Haítí eftir um­sátur - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Senda þúsund her­menn til Haítí eftir um­sátur - Vísir
Hermennirnir hafa verið að lenda á Haíti á undanförnum dögum en umfang verkefnis þeirra, hverjir stjórna þeim og hversu lengi þeir eiga að vera er ólj...
A weekend of spooky fun and Halloween activities in Corralejo
📅 28.10.2026 👁️ 1
A weekend of spooky fun and Halloween activities in Corralejo
Corralejo is gearing up for a Halloween celebration on Saturday 31st October, with escape rooms, spooky walk-through experiences, and activities for f...
Sektaður vegna markaðsmisnotkunar með hlutabréf í Play - Lækkuð vegna slæmrar fjárhagsstöðu
📅 28.10.2026 👁️ 1
Sektaður vegna markaðsmisnotkunar með hlutabréf í Play - Lækkuð vegna slæmrar fjárhagsstöðu
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur sektað ónefndan einstakling vegna markaðsmisnotkunar með hlutabréf í tveimur fyrirtækjum en annað þeirra er ...
Kastaði ítrekað af sér þvagi og hægðum í lestarvagna – Olli talsverðum truflunum á almenningssamgöngum
📅 28.10.2026 👁️ 1
Kastaði ítrekað af sér þvagi og hægðum í lestarvagna – Olli talsverðum truflunum á almenningssamgöngum
Breskur maður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur fyrir að kasta af sér þvagi og saur í lestarvögnum og strætisvögnum um langt skeið. Olli hann töluver...
Önnur lestin fengið leyfi til að keyra á­fram þrátt fyrir að vera á rauðu - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Önnur lestin fengið leyfi til að keyra á­fram þrátt fyrir að vera á rauðu - Vísir
Áreksturinn átti sér stað nærri bænum Urda í Toledo-héraði skömmu eftir klukkan níu að staðartíma í morgun. Báðar lestir voru á leið frá höfuðborginni...
Kerfisvilla og mann­leg mis­tök leitt til slyssins - Vísir

Ragn­heiður Harpa hlaut Bók­mennta­verðlaun Tómasar Guðmunds­sonar - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 1
Ragn­heiður Harpa hlaut Bók­mennta­verðlaun Tómasar Guðmunds­sonar - Vísir
Verðlaunin hafa verið veitt af Reykjavíkurborg frá árinu 1994 til minningar um skáldið Tómas Guðmundsson en frá árinu 2004 hafa þau verið veitt fyrir ...
Öllum starfsmönnum hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga sagt upp
📅 28.10.2026 👁️ 1
Öllum starfsmönnum hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga sagt upp
Öllum starfsmönnum Hjálpartækjamiðstöðvar hefur verið sagt upp og störf þeirra verið lögð niður. Sjúkratryggingar munu hætta eigin rekstri á verkstæða...
Sjálfuglaður ráð­herra og allt í boði mysu - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Sjálfuglaður ráð­herra og allt í boði mysu - Vísir
Fjallað var um áhrifavalda í þættinum og duldar auglýsingar og í framhaldinu tilkynnt að þátturinn væri í boði mysu, vökva sem er síaður úr við skyrge...
What are the standout points from the Budget?
📅 28.10.2026 👁️ 1
What are the standout points from the Budget?
Political editor Chris Mason analyses Chancellor John Healey's Budget 2026 announcements.
Þeir sem hafi framið alvarlega glæpi geti ekki breytt nafni sínu – Ógnar öryggi barna
📅 28.10.2026 👁️ 2
Þeir sem hafi framið alvarlega glæpi geti ekki breytt nafni sínu – Ógnar öryggi barna
Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, hefur lagt fram frumvarp um að heimilt verði að synja afbrotamönnum sem hafa framið alvarlega glæp...
Drógu úr geðlyfjanotkun með persónumiðaðri þjónustu
📅 28.10.2026 👁️ 2
Drógu úr geðlyfjanotkun með persónumiðaðri þjónustu
Rúmlega þriðjungur íbúa á íslenskum hjúkrunarheimilum fékk sterk geðlyf í fyrra, í mörgum tilvikum án greiningar á geðsjúkdómum, eins og fram kom í Kv...
Taldir hafa ætlað að fremja ofbeldisglæpi fyrir fé hér á landi
📅 28.10.2026 👁️ 2
Taldir hafa ætlað að fremja ofbeldisglæpi fyrir fé hér á landi
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í fyrra fjóra sænska menn sem grunaðir voru um að hafa verið ráðnir til að fremja ofbeldisbrot fyrir greiðslu hér á l...
Golfarar reynt að borga sig fram fyrir bið­listana - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Golfarar reynt að borga sig fram fyrir bið­listana - Vísir
Þetta kom fram í golfhlaðvarpsþættinum Seinni níu, sem er í umsjá þeirra Loga Bergmanns Eiðssonar og Jóns Júlíuss Karlssonar. Þar ræddu þeir við Hauk ...
„Ég er ekki mamma, ég er dóttir konu þinnar“ – Dæmdur fyrir að nauðga þroskahamlaðri dóttur sambýliskonu sinnar
📅 28.10.2026 👁️ 2
„Ég er ekki mamma, ég er dóttir konu þinnar“ – Dæmdur fyrir að nauðga þroskahamlaðri dóttur sambýliskonu sinnar
Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára og sex mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að nauðga dóttur sambýliskonu sinnar á heimili hennar. Konan e...
Tommy Robinson guilty of harassing Daily Mail journalists
📅 28.10.2026 👁️ 2
Tommy Robinson guilty of harassing Daily Mail journalists
The 43-year-old is convicted after a week-long trial at Southwark Crown Court.
Laun­morðingjar ráðnir hingað til lands - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Laun­morðingjar ráðnir hingað til lands - Vísir
Þetta segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn í rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Tilefni sam...
Rann­saka komu mögu­legra launmorðingja hingað til lands - Vísir

How could Israel break political deadlock? Here are four scenarios
📅 28.10.2026 👁️ 1
How could Israel break political deadlock? Here are four scenarios
With 85% of votes counted, all signs point to an impasse. The most likely outcome may be new elections.
Vandi barna orðinn að tekjulind einkaaðila
📅 28.10.2026 👁️ 2
Vandi barna orðinn að tekjulind einkaaðila
„Við erum tilbúin að leggja gríðarlega fjármuni í mannvirki og samgöngur en þegar kemur að börnum í vanda virðist alltaf vanta bæði peninga og pólitís...
Sjóð­heitar í ís­köldu teiti - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Sjóð­heitar í ís­köldu teiti - Vísir
Jón Jónsson, tónlistarmaður og meðlimur IceGuys, kom skvísunum á óvart rétt fyrir sýningu og tók lög úr myndinni sem stelpurnar voru fljótar að læra o...
17 missa vinnuna hjá Sorpu
📅 28.10.2026 👁️ 2
17 missa vinnuna hjá Sorpu
Tíu starfsmönnum Sorpu var sagt upp í dag. Sjö að auki fá tímabundna ráðningarsamninga sína ekki endurnýjaða. Þetta er hluti af hagræðingu sem stjórne...
Sautján missa vinnuna hjá SORPU
📅 28.10.2026 👁️ 2
Sautján missa vinnuna hjá SORPU
Sautján missa vinnuna hjá SORPU SORPA hefur sagt upp tíu starfs­mönnum og ákveðið að end­ur­nýja ekki tíma­bundna ráðn­ing­ar­samn­inga við sjö til vi...
Vopnahlé í Oleshky heldur, annan daginn í röð
📅 28.10.2026 👁️ 2
Vopnahlé í Oleshky heldur, annan daginn í röð
Vopnahlé í bænum Oleshky í Kherson í suðurhluta Úkraínu, sem hófst stuttu eftir miðnætti í gær, hefur haldið. Þrátt fyrir að þetta sé lítið skref og e...
Ísland ekki á lista 36 þjóða sem taka þátt í Eurovision
📅 28.10.2026 👁️ 2
Ísland ekki á lista 36 þjóða sem taka þátt í Eurovision
Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) hefur birt lista yfir þær 36 þjóðir sem hafa staðfest þátttöku í Eurovision sem fram fer í Búlgaríu í maí næst...
Greinir frá öllum lýtaaðgerðum sem hún hefur farið í og á eftir: „Mig langar að vera kynþokkafull móðir“
📅 28.10.2026 👁️ 2
Greinir frá öllum lýtaaðgerðum sem hún hefur farið í og á eftir: „Mig langar að vera kynþokkafull móðir“
Leikkonan Jennifer Lawrence (36) ræddi opinskátt um fegrunaraðgerðir, bæði þær sem hún hefur farið í og ​​þær sem hún hyggst láta framkvæma síðar, í v...
Fleiri gamal­menni en börn í Kína - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Fleiri gamal­menni en börn í Kína - Vísir
Hagstofa Kína birti í síðustu viku ný gögn sem sýna að 223 milljónir manna, eða 23 prósent þjóðarinnar, eru núna 65 ára eða eldri. Þá eru fjórtán ára ...
Surfers rescue three young women from drowning at beach in Tenerife
📅 28.10.2026 👁️ 2
Surfers rescue three young women from drowning at beach in Tenerife
Three young women were taken to hospital after surfers rescued them from the sea at Benijo beach in Tenerife yesterday evening (Tuesday).The women wer...
64 látnir eftir lestarslys á Spáni og 50 alvarlega slasaðir
📅 28.10.2026 👁️ 2
64 látnir eftir lestarslys á Spáni og 50 alvarlega slasaðir
Stjórnvöld á Spáni hafa staðfest að 64, hið minnsta, hafi farist í lestarslysi sunnan við Madríd í morgun. 80 slösuðust, þar af 50 alvarlega. Björguna...
Fjárhagslegir hvatar megi ekki ráða för í þjónustu við börn með fjölþættan vanda
📅 28.10.2026 👁️ 2
Fjárhagslegir hvatar megi ekki ráða för í þjónustu við börn með fjölþættan vanda
Salvör Nordal umboðsmaður barna segir Kveiks-þáttinn og fjölda skýrslna undanfarin ár hafa sýnt að ekki er verið að tryggja hagsmuni barna með fjölþæt...
Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun - Vísir
Í tilkynningu þess efnis á vef Stjórnarráðsins segir að uppbygging ráðuneytisstofnunarinnar nýju sé liður í innleiðingu stefnu um opinbera þjónustu og...
Your pay, energy bills and cash Isa: How the Budget affects you
📅 28.10.2026 👁️ 2
Your pay, energy bills and cash Isa: How the Budget affects you
Changes announced by Chancellor John Healey in his first Budget will affect your finances directly. Here's how.
Loka sendiráðinu snemma vegna mótmæla
📅 28.10.2026 👁️ 2
Loka sendiráðinu snemma vegna mótmæla
Vináttufélag Íslands og Kúbu hefur boðað til mótmælafundar við bandaríska sendiráðið í Reykjavík í dag. Mótmælin beinast gegn viðskiptabanni Bandaríkj...
Enn og aftur dæmdur í fangelsi - Vísir
📅 28.10.2026 👁️ 2
Enn og aftur dæmdur í fangelsi - Vísir
Íranski fjölmiðillinn Emtedad News Agency greinir frá dómnum sem er fimm ára og eins mánaðar langur en Panahi átti þegar yfir höfði sér eins árs fange...
Organiser faces fine over ‘puppy’ parade in Maspalomas dunes
📅 28.10.2026 👁️ 2
Organiser faces fine over ‘puppy’ parade in Maspalomas dunes
The organiser of a group walk through a restricted area of the Maspalomas Dunes in Gran Canaria faces a fine, after videos of the outing circulated on...
Ísland ekki meðal þátttakenda í Eurovision
📅 28.10.2026 👁️ 2
Ísland ekki meðal þátttakenda í Eurovision
Sjónvarpsstöðvar frá 36 ríkjum taka þátt í Eurovision, Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, samkvæmt lista EBU sem birtur var í dag. RÚV er ekki þe...
Ísland tekur ekki þátt í Eurovision 2027