„Með því að færa hátíðina frá september yfir í dimmasta hluta vetrarins viljum við skapa henni enn skýrari sérstöðu og nýta einstakt andrúmsloft Reykjavíkur á þessum árstíma. Myrkur, norðurljós og íslenskt vetrarlandslag verða hluti af upplifun hátíðarinnar og kallast á við tónlist og sjónræna miðla,“ segir Pan Thorarensen skipuleggjandi hátíðarinnar.
Hátíðin er ein sú langlífasta af þeim tónlistarhátíðum sem hafa verið haldnar á Íslandi og hefur verið starfandi nær óslitið síðustu sautján árin.
„Hátíðin hefur vakið mikla athygli víða um heim og er orðin mjög mikilvægur partur af tónlistarsenu Íslands með sína sérstöðu sem er fókus á tilraunakennda tónlist, raf- og sveimtónlist.“
Pan segir hátíðina og starfið í kringum hana hafa leitt af sér fjölda útgáfa, tónleika, ferðalaga erlendis og samstarf við tónlistarmenn að ótöldum ógleymanlegum uppsetningum á hátíðum erlendis og innanlands sem eru bein afleiðing hátíðarinnar.
„Þriggja daga alþjóðleg raf- og tilraunatónlistarhátíð í Reykjavík þar sem íslenskt og erlent tónlistarfólk mætist í íslenskum vetri. Myrkur, norðurljós og vetrarstemning borgarinnar skapa hátíðinni einstaka umgjörð.”
Miðasala er á midix.