Lögreglustjórinn á Suðurnesjum stýrir aðgerðum í Grindavík en að þeim koma meðal annars aðilar úr rústabjörgunarsveit Landsbjargar sem og sérsveit ríkislögreglustjóra. Miklar öryggisráðstafanir eru á vettvangi en í gær fór fram undirbúningsvinna þar sem öryggislínum og öðrum búnaði var komið fyrir.
Í morgun voru verkfræðingar sömuleiðis á svæðinu sem aðstoðuðu við að tryggja svæðið. Í kjölfarið var haldinn fundur í sérstökum bíl aðgerðastjórnar í Grindavík áður en fjölmiðlafólki var veittur aðgangur að vinnusvæðinu.
Fyrstu sigmennirnir sigu síðan niður í sprunguna á tólfta tímanum. Fram kom í máli starfsmanna aðgerðastjórnar í Grindavík að búast mætti við að unnið verði við leitina fram eftir degi í dag og áfram næstu daga.
Áhættugreining í fjórum liðum
Um er að ræða fyrsta fasa leitaraðgerða sem skipulagðar eru út frá minnisblaði og áhættugreiningu verkfræðistofunnar COWI. Samkvæmt því mati er í fyrsta áfanga miðað við sjónskoðun og leit með rústamyndavél með áherslu á að jarðvegi sé lítið sem ekkert raskað.
Í næstu fösum er síðan gert ráð fyrir tilfærslu á efni með handverkfærum, að efni sé híft upp eða lagt til hliðar á svæði sem búið er að leita á og í kjölfarið tilfærslu á stærri blokkum sem hægt er að velta til hliðar eða færa til með loftpúðum.
Ef ákveðið yrði að hífa upp stærra grjót segir í skýrslu COWI að breyta þyrfti pallinum yfir sprunguopinu og við það gætu aðstæður niðri orðið óöruggari þar sem pallurinn veiti vörn fyrir hruni að ofan.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum vildi ekki veita fjölmiðlum viðtal um framkvæmd leitarinnar þegar eftir því var leitað í morgun en von er á tilkynningu frá embættinu síðar í dag.
Elías Pétursson, bróðir Lúðvíks, var í viðtali í Bítinu í morgun þar sem hann sagði það von fjölskyldunnar að lík Lúðvíks finnist svo hægt sé að jarða hann. Þar gagnrýndi hann meðal annars að ekki hafi farið fram áhættumat áður en Lúðvík ásamt vinnufélaga hans voru settir til verka á svæðinu í janúar 2024, þó að Veðurstofan hafi sérstaklega varað við sprunguhreyfingum.
Í úrskurði Vinnueftirlitsins kom meðal annars fram að kynning á hættum og verklagi á svæðinu hefði ekki verið nægilega skýr.
„Lúlli dó því ekki vegna óviðráðanlegra náttúruafla, heldur vegna ákvarðana sem voru teknar og ákvarðana sem ekki voru teknar en hefðu betur verið teknar,“ sagði Lúðvík í morgun.
Fjölskylda Lúðvíks hefur barist ötullega fyrir því að leitað verið að jarðneskum leifum hans.