Umboðsmaður barna hefur sent mennta- og barnamálaráðuneytinu og byggingarfulltrúa Reykjavíkur bréf þar sem athugasemdir eru gerðar við að húsnæði Stuðla sé enn í notkun án þess að vottorð um öryggisúttekt hafi verið gefið út.
Umboðsmaður hefur lengi gert athugasemdir við aðstæður og öryggi á Stuðlum. Fyrir tveimur árum lést sautján ára drengur í eldsvoða á Stuðlum.
Salvör Nordal umboðsmaður barna segir að ríkinu beri að tryggja öryggi barna í neyðarvistun, enda geti þau ekki sjálf yfirgefið húsnæðið þegar hætta steðjar að.
Í bréfinu til ráðuneytisins og byggingarfulltrúa Reykjavíkur lýsir Salvör áhyggjum af því að vottorð um öryggisúttekt hafi ekki verið gefið út vegna athugasemda sem gerðar voru fyrr á þessu ári. Byggingarfulltrúi hafi heimilað áframhaldandi notkun húsnæðisins tímabundið með tilteknum öryggisráðstöfunum til 1. desember. Í bréfi sínu til byggingarfulltrúa bendir Salvör jafnframt á ákvæði laga um mannvirki þar sem kveðið er á um að óheimilt sé að taka mannvirki í notkun án vottorðs um öryggisúttekt.
Skortur á úrræðum réttlætir ekki frávik frá öryggiskröfum
Í bréfinu áréttar Salvör að skortur á öðrum vistunarúrræðum fyrir börn geti ekki réttlætt frávik frá lögbundnum öryggiskröfum. Þá kallar hún eftir því að tryggt verði að öllum öryggisráðstöfunum sé fylgt og að nauðsynlegum úrbótum verði lokið án tafar. Jafnframt þurfi að liggja fyrir viðbragðsáætlun ef ekki reynist unnt að tryggja öryggi barna í húsnæðinu. Stjórnvöld verði að gera betur, sérstaklega í ljósi þeirra hræðilegu atburða sem áttu sér stað á Stuðlum fyrir tveimur árum.
„Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi. Þegar svo alvarleg atvik verða í þjónustu við börn verðum við að sýna börnum og fjölskyldum þeirra meiri virðingu, rannsaka hvað gerðist og tryggja að nauðsynlegum úrbótum sé fylgt eftir. Börn sem dvelja í úrræðum á vegum ríkisins eiga skýlausan rétt á öruggri þjónustu. Lærdómurinn af brunanum verður að skila sér í raunverulegum aðgerðum, auknu öryggi og skýrri ábyrgð þeirra sem fara með vernd og umönnun barna,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna.