Árið 2024 lögðust stórfelld losun manna á gróðurhúsalofttegundum og ákafir gróðureldar, sem hnattræn hlýnun hefur bein áhrif á, á eitt um að valda mestu aukningu í styrk þeirra á milli ára sem sögur fara af. Veðurfyrirbrigðið El niño magnaði þá upp áhrif hnattrænnar hlýnunar.
Aukningin í fyrra var nokkuð minni, 2,8 hlutar af milljón (ppm) borið saman við 3,5 hluta á milli á milli 2023 og 2024 samkvæmt nýjum tölum Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO).
Meðalstyrkur koltvísýrings nam 426,8 hlutum af milljón í fyrra sem er 53 prósent meira en áður en menn byrjuðu að brenna jarðefnaeldsneyti í iðnbyltingunni.
Að meðaltali hefur styrkur koltvísýrings í lofthjúpnum aukist um 2,4 ppm á ári á síðasta áratuginn. Það er þrefalt hraðar en árið 1960.
Á sama tíma hefur styrkur metans aukist um 167 prósent og niturdíoxíðs um 26 prósent frá iðnbyltingu. Þó að báðar lofttegundir séu enn öflugri gróðurhúsalofttegundir en koltvísýringur hefur síðastnefnda lofttegundni mest áhrif á hlýnunarmátt lofthjúps jarðar.
Lofttegundir eins og koltvísýringur, metan og vatnsgufa eru nefndar gróðurhúsalofttegundir vegna hlýnunaráhrifa sem þær hafa. Þær hleypa sólargeislum greiðlega í gegnum sig en drekka í sig varmageislun frá jörðinni. Ef ekki væri fyrir gróðurhúsaáhrifin væri meðalhitinn við yfirborð jarðar meira en þrjátíu gráðum lægri.
Mannkynið hefur magnað upp gróðurhúsaáhrifin og valdið hlýnun með því að dæla gríðarlegu magni af kolefni út í lofthjúpinn frá upphafi iðnbyltingarinnar.
Koltvísýringur er langlífur í lofthjúpnum og safnast upp þar. Styrkur koltvísýrings í lofthjúpnum nú er talinn sá mesti í um fjórar milljónir ára. Vegna þessarar uppsöfnuðu losunar lækkaði meðalhiti jarðar ekki aftur til fyrra horfs jafnvel þó að menn hættu allri losun gróðurhúsalofttegunda strax.
Nýjasta metið yfir styrk gróðurhúsalofttegunda mun aðeins endast í eitt ár. Mannkynið losar nú ríflega fjörutíu milljarða tonna af koltvísýringsígildum á hverju ári.
Ólíkt svifryksmengun yfir umferðarþungum götum sem þynnist og dreifist safnast gróðurhúsalofttegundir upp í lofthjúpnum til lengri tíma. Koltvísýringssameindir geta þannig verið í lofthjúpnum í aldar og allt að árþúsund. Þar auka þær hlýnunarmátt lofthjúpsins með svonefndum gróðurhúsaáhrifum sem fanga hita við yfirborð jarðar.
Líkur eru jafnframt á að aukningin eigi eftir að taka enn meiri kipp í ár og á næsta ári vegna sögulega öflugs El niño sem gerjast nú í Kyrrahafi. Reiknað er með því að hann magni upp loftslagshamfarir eins og þurrka og gróðurelda sem draga úr getu jarðar til þess að binda kolefni vel fram á næsta ár.
Undanfarin ellefu ár eru nú öll á meðal ellefu hlýjustu ára í mælingarsögunni.
Eina þekkta leiðin til þess að stöðva frekari hnattræna hlýnun er að hætta alfarið losun gróðurhúsalofttegunda, sem menn losa fyrst og fremst með bruna á jarðefnaeldsneyti.
Til þess að vinda ofan af þeirra hlýnun sem þegar hefur átt sér stað og mun fyrirsjáanlega verða vegna áframhaldandi losunar mun mannkynið jafnframt þurfa að þróa tækni til þess að fanga kolefni úr lofthjúpnum og farga því í stórum stíl. Slík tækni er afar skammt á veg komin og langt frá því að farga slíku magni að það grynnkaði merkjanlega á því kolefni sem menn hafa bætt við lofthjúpinn síðustu rúmu tvö hundruð árin.