Um þetta er kosið í Ísrael
Kosningabaráttan snýst meðal annars um hvort rannsaka eigi ábyrgð á því að árás Hamas 7. október 2023 tókst, undanþágur frá herskyldu og hvernig Ísrael eigi að bregðast við efnahagslegum og öryggislegum áskorunum.
Þegar Ísraelar ganga að kjörborðinu í dag taka þeir afstöðu til herskyldu, efnahagsmála og þess hvernig ríkið eigi að rannsaka hvers vegna því tókst ekki að koma í veg fyrir árás Hamas 7. október 2023.
AFP fjallar um helstu málin sem hafa mótað kosningabaráttuna.
Ábyrgð á atburðunum 7. október
Margir Ísraelar hafa krafist þess að óháð opinber rannsóknarnefnd rannsaki mistökin sem gerðu Hamas kleift að gera árásina 7. október 2023, þegar meira en 1.200 manns létu lífið.
Þetta var mannskæðasti dagur í sögu Ísraels og þjóðaráfall sem áhrifa gætir enn.
Ísrael hefur skipað rannsóknarnefndir eftir fyrri þjóðaráföll. Gadi Eisenkot, fyrrverandi herforingi og helsti keppinautur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra í kosningunum í dag, hefur heitið því að gera það aftur og segir það „leið til að koma í veg fyrir næstu hörmungar“.