Sum börn með fjölþættan vanda dvelja árum saman í einkareknum búsetuúrræðum. Aðstandendur og fyrrverandi starfsmenn lýsa brotalömum bæði í öryggi barnanna og faglegu starfi í viðtölum við Kveik sem sýndur verður í kvöld.
Börn með fjölþættan vanda sem geta ekki búið heima af ýmsum ástæðum eru sum vistuð í einkareknum búsetuúrræðum. Ísey Jökulsdóttir á fjórtán ára dóttur sem hefur dvalið af og til í Klettabæ, stærsta einkarekna búsetuúrræðinu, frá tíu ára aldri. Stúlkan hefur ýmist verið í búsetu hluta af tímanum eða í fullri búsetu, þegar þörfin hefur verið mikil. Eins og núna.
Ísey segir að öryggi dóttur sinnar sé ekki tryggt í Klettabæ.
„Starfsmenn hafa verið sofandi á næturvakt og barnið mitt hefur farið út og labbar bara fram hjá þeim út um svalahurðina. Og finnst af lögreglunni á tánum langt í burtu. Þá vissu þau ekki einu sinni að hún hefði farið sko.“
Eigendur Klettabæjar vildu ekki veita Kveik viðtal en sögðu í skriflegum svörum að þeim þætti mjög leitt að atvikið hafi átt sér stað.
„Farið var yfir málið með starfsfólki heimilisins og stjórnendum. Unnið var í samræmi við verkferla og fengu viðkomandi starfsmenn skriflega áminningu og var þeim óheimilt að taka áfram næturvaktir. Í kjölfarið lét annar starfsmannanna af störfum. “
Geymslur til að hvíla foreldra
Erla Rós Ólafsdóttir, fyrrverandi starfsmaður hjá Klettabæ, segir vandann í Klettabæ meðal annars þann að meirihluti starfsfólks í úrræðunum sé ekki fagfólk.
„Sem mér finnst alveg smá galið ef þú ert að vinna með svona veikan hóp einstaklinga.“
Ísey segir dóttur sína ekki hafa fengið raunverulega aðstoð við hennar vanda í Klettabæ.
„Því miður eru úrræðin geymslur, bara einmitt til að hvíla foreldra.“
Nánar verður fjallað um þetta í Kveik í kvöld klukkan 20:15.