Japanskir saksóknarar hafa ákært bandarískan landgönguliða sem er grunaður um að hafa myrt japanska konu á Okinawa-eyju í Japan.
Devin Jacob Ballard er grunaður um að hafa kyrkt Önnu Yagi á hótelherbergi 3. október og fyrir að hafa stolið eigum hennar. Maðurinn neitaði sök við handtöku en hefur síðan gefið frá sér yfirlýsingar sem benda til þess að hann tengist málinu, segir AFP fréttaveitan.
Málið hefur vakið mikla reiði í Japan og kveikt umræður um veru bandaríska hersins á eyjunni, sem skiptar skoðanir eru um.
Utanríkisráðherra Japans, Toshimitsu Motegi, segir að verið sé að endurskoða siðareglur fyrir bandaríska hermenn þegar þeir eru utan herstöðvanna. Bandaríski herinn setti tveggja daga hlé á starfsemi sína til að auka aga og kröfur og setti á mánaðarlangt útgöngubann.
Bandaríkjaher hefur verið með mikla viðveru á Okinawa allt frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Um 30.000 bandarískir hermenn eru að jafnaði á Futenma-herstöðinni þar sem Ballard var við störf.
Aðgerðasinnar hafa tekið saman upplýsingar um 950 glæpi gegn konum á eyjunni síðan 1945. Þá er talið að aðeins eitt af hverjum tíu kynferðisafbrotamálum sé tilkynnt.