Lokaður borgarstjórnarfundur hófst í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan átta í morgun. Erfiðlega hefur gengið að ná tali af kjörnum fulltrúum í morgun. Efni fundarins er sagt vera trúnaðarmál.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er verið að ræða hagræðingaraðgerðir og uppsagnir hjá borginni. Þegar ráðist var í uppsagnir í sumar var sagt að frekari hagræðingaraðgerðir væru fram undan.
Borgarfulltrúar mættu til fundar hver á fætur öðrum fyrir klukkan átta í morgun.
Tæplega 90 manns var sagt upp á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði borgarinnar í ágúst. Á sjötta tug bauðst vinna aftur.
Fréttin verður uppfærð.