„Svo vaknaði ég þarna um morguninn, með öll fjögur börnin í kringum mig, og ég hugsaði: En hvað ef þau lenda í slysi, eftir einhver ár, sem námsmenn? Þetta er búið að breyta einhverju hjá þeim. Og það fyllti mig af einhverju stolti að hafa haldið alltaf áfram og að ég hafi ekki snúið við þegar þetta var eitthvað erfitt og við höfum unnið þetta. Þetta skiptir líka held ég máli fyrir alla námsmenn í framtíðinni. Ég er bara gríðarlega stolt af því,“ segir Elva Björk Haraldsdóttir, rúmlega þrítug fjögurra barna móðir, um dóm sem féll í Hæstarétti Íslands um miðjan mánuðinn. Í málinu hafði Elva Björk betur í bótamáli gegn tryggingafélaginu Verði.
Með þessum dómi lýkur sjö ára ferli í lífi Elvu Bjarkar sem hófst eftir að hún lenti í bílslysi í Reykjavík. Tveir bílar lentu aftan á bíl sem hún var í. Hún slasaðist og var metin með varanlega sex prósenta örorku í kjölfarið.
Ágreiningurinn í dómsmálinu snerist um hvort greiða ætti Elvu Björk bætur út frá lágmarkslaunum eða út frá meðaltekjum tanntækna á Íslandi en þegar bílslysið átti sér stað var hún í námi til tanntæknis. Tryggingafélagið Vörður vildi aðeins reikna henni bætur út frá lágmarkslaunum.
Elva segist ekki hafa viljað una því og þess vegna farið með málið fyrir dóm. Á endanum var dæmt henni í vil og skaðabæturnar voru reiknaðar út frá meðallaunum tanntækna.
Fjallað er um dómsmál Elvu Bjarkar í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Hvenær er nægilega mikið búið af námi?
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmi Elvu í hag og hún átti að fá hærri bætur sem reiknaðar voru út frá meðallaunum tanntækna. Vörður áfrýjaði þeirri niðurstöðu til Landsréttar og hafði betur þar. Samkvæmt þeim dómi átti Elva að fá greiddar bætur samkvæmt lágmarkslaunum.
Elva fékk áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar Íslands þar sem hún hafði betur og Vörður þarf að greiða henni tæpar sjö milljónir króna. Tekið skal fram að Hæstiréttur klofnaði í þessum dómi. Þrír dómarar vildu snúa við dómi Landsréttar og dæma Elvu í hag. Tveir dómarar skiluðu séráliti og vildu staðfesta dóm Landsréttar.
Eins og kemur fram í dómunum er eitt af því sem var undir í málinu hvort og hvenær manneskja sem lendir í slysi er talin hafa lokið nægilega stórum hluta af námi sínu til að viðkomandi eigi rétt á skaðabótum sem taka mið af þeim tekjum sem hann eða hún muni fá í framtíðinni.
Í gegnum tíðina hefur verið talið að manneskja þurfi að hafa lokið 2/3 af náminu eða meira til að eiga rétt á skaðabótum sem byggjast á tekjum sem viðkomandi gæti fengið að loknu námi. Ef þessi skilyrði hafa ekki verið fyrir hendi hafa einstaklingi sem lendir í slysi verið ákvarðar skaðabætur samkvæmt lágmarkslaunum. Í þessu máli ákveður Hæstiréttur hins vegar að lækka þessa skilgreiningu úr 2/3 og niður í 1/2 námstíma.
Líkt og segir í reifun dómsins: „Með héraðsdómi var fallist á með A að laun hennar yrðu metin sérstaklega en í dómi Landsréttar voru bætur hins vegar miðaðar við lágmarkslaun. Hæstiréttur leit til þess að A hefði lokið meira en helmingi náms á slysdegi. Var það mat réttarins að þegar litið væri til námsins, námsframvindu fyrir slysið og atvika í kjölfar þess yrði A að öllu virtu talin hafa leitt nægilega í ljós að námslok hafi verið fyrirsjáanleg þannig að árslaun hennar yrðu ákveðin sérstaklega ...“
Með þessu setur Hæstiréttur Íslands nýtt fordæmi í sambærilegum málum. Meðal annars að því leyti er þessi dómur merkilegur. Hingað til hafa fordæmin í sambærilegum málum verið á þá leið að námsmaður þurfi að hafa lokið stærri hluta af námi sínu til að fá þessar konar bætur sem Elvu Björk voru nú dæmdar.
Nítján lögmenn senda erindi til ráðherra
Eftir að þessi dómur féll sendu 19 lögmenn sem starfa á sviði skaðabótaréttar erindi til dómsmálaráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, um að breyta þurfi skaðabótalögum vegna þessa dómsmáls. Fréttavefurinn Vísir greindi frá erindinu til ráðherra í síðustu viku, í því kemur fram það mat lögmannanna að breyta þurfi skaðabótalögum til að hækka útreikning á greiðslu bóta sem byggðar eru á lágmarkslaunum vegna örorku í kjölfar slysa.
Einn af þessum lögmönnum er Arnar Vilhjálmur Arnarson. Hvaða þýðingu hefur þessi dómur og af hverju senda lögmennirnir þetta erindi til ráðherra? Arnar Vilhjálmur segir að breyta þurfi skaðabótalögum og hækka þær bótafjárhæðir sem fólk geti fengið þegar því eru dæmdar bætur samkvæmt lágmarkslaunum. „Það þarf að breyta því þannig að þessi viðmið séu sæmandi því fólki sem þarf að fá greiddar bætur út frá þessu,“ segir hann.
Tíðindin í þessum dómi er því annars vegar þetta nýja fordæmi sem Hæstiréttur setur um hversu stórum hluta náms tjónþoli þarf að hafa lokið til að fá greiddar bætur sem byggjast á námi viðkomandi og hins vegar að hækka þurfi skaðabætur sem byggjast á lágmarkslaunum.