Lokaður borgarstjórnarfundur hófst í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan átta í morgun. Erfiðlega hefur gengið að ná tali af kjörnum fulltrúum í morgun. Efni fundarins er sagt vera trúnaðarmál.
Samkvæmt heimildum fréttastofu er verið að ræða hagræðingaraðgerðir og uppsagnir hjá borginni. Þegar ráðist var í uppsagnir í sumar var sagt að frekari hagræðingaraðgerðir væru fram undan.
86 var sagt upp á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði borgarinnar í ágúst. 32 bauðst vinna aftur, 29 þáðu það boð.
Í sumarbyrjun ákvað borgarráð að leggja niður 18 störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara
Borgarfulltrúar mættu til fundar hver á fætur öðrum fyrir klukkan átta í morgun.
Fréttin hefur verið uppfærð. Fjöldi þeirra sem bauðst aftur vinna eftir uppsagnir í ágúst hefur verið leiðréttur.