Greint hefur verið frá því að írski leikarinn Barry Keoghan hafi gengist undir húðstinnandi meðferð sem kallast XERF. Aðgerðin, sem Keoghan (34) fór í, var birt í myndbandi á nstagram af Nilam Holmes, húðsérfræðingi stjarnanna. Í myndbandinu sést Keoghan liggja á meðferðarbekk á meðan meðferðaraðili fer með handfesta græju yfir húð hans.Eftir aðra meðferð sína sagði Keoghan: „Mér líður betur með sjálfan mig, ég lít betur út og mér finnst mikilvægt að hugsa um sjálfan sig, bæði að innan sem utan.“
Viðurkennir að hafa gengist undir fegrunaraðgerðir eftir vangaveltur um breytt útlit hans