Vestrænir leiðtogar hafa að mestu slitið á samskiptin við Pútín síðan Rússar réðust inn í Úkraínu í febrúar 2022. Í yfirlýsingu frá leiðtogunum segir að þeir hafi átt frumkvæðið að símafundinum. Þeir hafi rætt stríðið í Úkraínu og diplómatískar leiðir til að binda enda á það og stuðla að friði og stöðugleika í Evrópu.
„Umræðurnar voru opnar og efnismiklar. Við erum nágrannaríki Rússlands. Niðurstaða þessa stríðs mun hafa bein áhrif á öryggi okkar og á öryggi Evrópu almennt. Til að binda enda á stríðið þarf beinar viðræður,“ segir forseti Finnlands.
Forsætisráðherra Noreg leggur áherslu á í sinni tilkynningu að stríðið muni hafa áhrif á komandi kynslóðir. Hann hafi í sínu símtali lagt áherslu á mikilvægi þess að dregið verði úr spennu í Evrópu.
Bæði ríkin, Noregur og Finnland eiga landamæri að Rússlandi. Fram kemur í frétt danska ríkisútvarpsins af málinu að rússnesk yfirvöld staðfesti að símtalið hafi átt sér stað. Þá hafi leiðtogarnir rætt við Volodomír Selenskí Úkraínuforseta um símtalið.