Ræða uppsagnir og niðurskurð á aukafundi borgarstjórnar
Borgarfulltrúar sitja nú aukafund í ráðhúsi Reykjavíkur og ræða nýjar tillögur meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks um niðurskurð og uppsagnir.
Borgarfulltrúar sitja nú aukafund í borgarstjórn Reykjavíkur og ræða tillögur um uppsagnir, samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar. Fundurinn hófst klukkan 8 í morgun, samkvæmt frétt RÚV.
Eftir að nýr meirihluti tók við völdum í borginni í kjölfar sveitarstjórnarkosninga síðastliðið vor hefur rekstur og starfsmannahald borgarinnar verið í deiglunni.
Áttatíu og sex var sagt upp störfum á velferðarsviði og skóla- og frístundasviði í sumar. Síðan þá hefur rúmlega þriðjungur þess hóps verið endurráðinn til borgarinnar. 32 var boðin vinna á ný en aðeins 29 þáðu það boð.
Borgarfulltrúar svara engum spurningum um fundinn sem nú stendur yfir og vísa til þess að trúnaður ríki um fundarefnið. Það muni þó koma í ljós síðar í dag.