Björgvin Birgisson er fallinn frá

Mynd: Shutterstock
Björgvin Birgisson, skipstjóri og Akureyringur, lést á heimili sínu 13. október. Hann fæddist á Akureyri 9. apríl 1964 og ólst upp í Glerárhverfi.
Akureyri.net greinir frá andláti hans.
Björgvin lauk námi við Stýrimannaskólann á Dalvík og öðlaðist skipstjórnarréttindi. Hann helgaði starfsævi sína að mestu sjómennsku og var meðal annars skipstjóri á uppsjávarskipinu Hákoni.
Utan vinnu naut Björgvin útivistar og ferðalaga með fjölskyldunni. Veiðar og hjólreiðar skipuðu einnig stóran sess í frístundum hans og var hann þekktur fyrir kappsemi.
Eiginkona hans er Gunnhildur Einarsdóttir og eignuðust þau þrjú börn.