Síðasta föstudag var átt við hraðamyndavélabíl Lögreglunnar á Vesturlandi sem var við hraðamælingar á Vesturlandsvegi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi á samfélagsmiðlum.
Límt hafði verið yfir linsu myndavélarinnar með þeim afleiðingum að hún gat ekki myndað hraðakstursbrot á meðan.
Lögregla segir háttsemina hafa áhrif á umferðareftirlit lögreglu en alvarlegra sé að við verknaðinn hafi flutningabíll numið staðar á akrein við vegamót þar sem umferð er jafnan mikil og hröð. Því hafi skapast hætta fyrir aðra vegfarendur.
Lögregla hefur borið kennsl á þann sem grunaður er um verknaðinn og er málið til rannsóknar vegna gruns um lögbrot.
Lögreglan á Vesturlandi minnir á að tálmun á störfum lögreglu geti haft alvarlegar afleiðingar.