Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Fyrirtæki var heimilað að ganga að 990 þúsund króna tryggingarfé konu og henni gert að greiða fyrirtækinu eina milljón króna til viðbótar vegna skemmda á leiguíbúð. Kærunefnd húsamála komst að þeirri niðurstöðu að kattarúrgangur hefði valdið varanlegri lyktarmengun í gólfefnum íbúðarinnar en úrskurðurinn var birtur 27. október.
Málið snerist um íbúð sem konan tók á leigu hjá fyrirtækinu í mars 2025. Við upphaf leigutímans lagði hún fram 990 þúsund króna tryggingarfé. Fyrirtækið hélt því fram að þegar leigutímanum lauk hefði komið í ljós verulegt tjón á gólfefnum vegna kattar sem konan hafði haft leyfi til að halda í íbúðinni.
Fyrirtækið sagði íbúðina hafa angað af kattahlandi og taldi nauðsynlegt að skipta um gólfefni. Upphafleg bótakrafa þess vegna tjóns nam 1.835.000 krónum. Auk þess krafðist fyrirtækið 572.373 króna vegna tapaðra leigutekna frá miðjum september til loka október 2025.
Konan hafnaði kröfunum og hélt meðal annars fram að um eðlilegt slit hefði verið að ræða. Hún gerði jafnframt athugasemdir við úttekt á íbúðinni, meðal annars vegna þess að henni hefði verið tilkynnt um hana með aðeins tuttugu mínútna fyrirvara og henni ekki gefinn raunhæfur kostur á að vera viðstödd. Kærunefndin féllst á að annmarki hefði verið á framkvæmd úttektarinnar að þessu leyti.
Nefndin taldi hins vegar gögn málsins sýna að sterk kattarhlandslykt hefði verið í íbúðinni eftir að leigutíma lauk. Í skýrslu úttektaraðila kom fram að lyktin ætti upptök sín í parketi og parketlistum og að hefðbundin hreinsun myndi ekki duga. Mælt var með því að parket, undirlag og listar yrðu endurnýjuð í allri íbúðinni.
Kærunefndin tók fram að þótt leyfi hefði verið fyrir kattarhaldi yrði ekki fallist á að það teldist hefðbundin notkun íbúðar að kötturinn gerði þarfir sínar á gólfefnið. Konan hefði heldur ekki lagt fram gögn sem hnekktu mati úttektaraðilans.
Niðurstaðan varð því sú að fyrirtækinu var heimilað að ganga að öllu tryggingarfénu, 990 þúsund krónum. Konunni var jafnframt gert að greiða fyrirtækinu eina milljón króna í skaðabætur, auk dráttarvaxta frá 25. október 2025. Öðrum kröfum konunnar var hafnað.