Eldur Smári Kristinsson skrifar:
Reykjavíkurborg hefur gefið út uppfærðan gátlista fyrir skóla: „Gátlisti fyrir skóla til að verða transvænir“.
Skjalið er ekki saklaus leiðbeiningalisti.
Það er stefnuskjal sem krefst þess að skólar innleiði staðfestingarlíkan kynvitundar – án fyrirvara, án vísindalegrar varfærni og án tillits til bestu tiltæku gagna um börn sem glíma við sjálfsmyndarvanda og raunveruleikarof.
Gátlistinn segir skólum að nota það nafn og þau fornöfn sem barnið kýs þegar í stað, án spurninga, kynna þau fyrir öðru starfsfólki og nemendum, bjóða upp á val um salerni og búningsaðstöðu eftir „kynvitund“, tryggja kynhlutlausa aðstöðu og setja sér stefnu um núllþol gagnvart „neikvæðri og niðurlægjandi“ orðnotkun um trans- og hinsegin málefni. Þetta svokallaða núllþol nær yfir alla krítíska umræðu í málaflokknum. Hérna er beinlínis að vera að horfa aftur til „No debate“ taktíkur transöfgasinna.
Gátlistinn hvetur til fræðslu (lesist: einhliða innrætingar) á vegum Samtakanna ’78, samtökum sem eru öfgafull samtök aðallega vinstri róttæklinga og kynjafræðinga, kennslu í nýjum orðum á borð við hán, kvár og stálp og þess að transmálefni séu fléttuð inn í almenna kennslu.
Regnbogavottun er einnig hluti af pakkanum.
Foreldrar og forráðamenn eiga svo að vera innrættir með þessum umdeildu kenningum sem gengur beint gegn velferð barna þeirra, og ef þau eru ekki samvinnuþýð þá er gripið til hótana á vettvangi Barnaverndar.
Undirritaður þekkir til fjölda slíkra dæma og þeim fer fjölgandi.
Þetta gengur beint gegn Cass-úttektinni frá 2024, stærstu óháðu úttektinni sem gerð hefur verið á þjónustu við börn og ungmenni sem af einhverjum ástæðum tjá kynama eða að þau séu með einhverja kynjaða sérvitrund. Hilary Cass og teymi hennar komust að þeirri niðurstöðu að félagslegt transferli (nafn, fornöfn og klæðnaður) væru ekki hlutlaus aðgerð.
Börn sem ganga snemma í gegnum slík umskipti eru líklegri til að fara í lyfja- og hormónameðferð. Gögn um ávinning af þeim eru mjög veik.
Þegar um börn fyrir kynþroska er að ræða skal leita snemma til klínísks sérfræðings. Starfsfólk skóla sem hefur ekki viðeigandi þjálfun á ekki að ráðleggja um áhættu og ávinning slíkra umskipta. Forráðafólk á að taka virkan þátt í ákvörðunum.
Sama mynd kemur fram í úttektum frá Svíþjóð, Finnlandi og Noregi. Þessi lönd hafa hert reglur og fjarlægst staðfestingarlíkanið fyrir ungmenni vegna þess hve veikur gagnagrunnurinn er.
Reykjavíkurborg gerir hið gagnstæða:
Skólum er ætlað að auðvelda og normalísera umskipti, kenna kynvitund sem fjölbreytileika sem sé „góður fyrir alla“ og vinna með hagsmunasamtökum sem hafa verið í fararbroddi við að þrýsta á um innleiðingu staðfestingarlíkansins.
Þetta er ekki vernd barna. Þetta er aktívismi starfsmanns Reykjavíkurborgar.
Þetta er innleiðing hugmyndafræði í skólakerfið. Há tíðni fylgikvilla, svo sem geðrænna vandamála, einhverfu og áfalla, er þekkt. Sögulega hefur stór hluti barna með laskaða sjálfsmynd og kynama vaxið upp úr honum án inngripa.
Cass og aðrir sérfræðingar benda á að félagslegt transferli geti lokað á þann möguleika.
Gátlistinn nefnir ekkert af þessu.
Gátlistinn vegur einnig þungt að tjáningarfrelsi og atvinnuöryggi.
Núllþol gagnvart „neikvæðri“ orðnotkun er opið fyrir túlkun. Það getur auðveldlega náð yfir notkun líffræðilegra hugtaka, umræðu um niðurstöður Cass-úttektarinnar, það að börn vaxi upp úr kynama (desistance), áhættu af transferli eða gagnrýni á þá hugmynd að kynvitund sé mikilvægari en líffræðilegt kyn. Starfsfólk sem setur fyrirvara, notar líffræðileg hugtök eða bendir á gögnin á á hættu að vera stimplað sem fordómafullt, fá á sig kvartanir og lenda í agamálum. Regnbogavottunin og fræðslan á vegum Mannréttindaskrifstofu Íslands og Samtakanna ’78 gera samræmi að skilyrði. Þetta er ekki lýðræðislegt í skólastarfi. Þetta er skóli þar sem einu sjónarmiði er gert hátt undir höfði og það jafnvel skyldubundið, og jafnvel stríðsyfirlýsing við heimilislíf foreldra og nemenda.
Börn eiga rétt á vernd, ekki tilraunastarfsemi. Foreldrar eiga rétt á að vera upplýstir og eiga rödd. Kennarar eiga rétt á að segja sannleikann um líffræði og gögn án þess að óttast um störf sín.
Reykjavíkurborg á að fylgja bestu tiltæku gögnum, ekki hagsmunasamtökum eða starfsmönnum borgarinnar sem eru að stunda aktívisma í vinnunni.
Cass-úttektin er ekki „hatursfull“.
Hún er varúðarrödd virts barnalæknis sem rannsakaði gögnin.
Skólar eiga að gera slíkt hið sama.
Gátlistinn gerir það ekki. Hann gerir skólann að umhverfi þar sem hugmyndafræðin er mikilvægari en börnin sjálf og þau gerð að tilraunadýrum. Það er ekki vernd.
Það er kerfislæg vanræksla og níðingsskapur!